Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 13
vitað að fyrrverandi forstjóri félagsins vildi ekki kaupa fyrirtækið þegar það bauðst fyrir skemmstu. En var það ágreiningur um þessa stefnu sem leiddi til þess að Vilhjálmi Vil- hjálmssyni, forstjóra félagsins, var sagt upp störfum? „Hann var fylgjandi þeirri stefnu sem fyrri eigendur höfðu í þessum efnum. Það sama átti við um Rannveigu Rist. Það er gott og blessað en við höfum þessa sýn og ætlum að fylgja henni.“ Mikil eftirspurn eftir Ögurvík En kaupin á Ögurvík eru ekki smá í sniðum. Þau draga mjög úr skuldsetningu Brims sem var orðin töluverð eftir kaupin á HB Granda. Var það planið allan tímann að selja HB Granda Ögurvík og fjármagna þannig kaupin á fyrrnefnda félag- inu? „Við sögðum strax að Brim myndi selja eignir til þess að standa undir þessum kaupum. Við vor- um tiltölulega nýbúin að kaupa Ögurvík og það er fremur auðvelt að selja félagið því það er bara ákveðið markaðsverð á því. Það voru margir sem vildu kaupa félagið, enda með góðar veiðiheim- ildir.“ Brim hefur átt Ögurvík í um tvö ár. Á sínum tíma kom fram að kaupverðið sem Brim greiddi fyrir félagið væri trúnaðarmál en í gær var greint frá því í Markaðnum að söluhagnaðurinn næmi 900 milljónum króna. „Við erum búin að fá nokkur hlutlaus möt á verðgildi Ögurvíkur. HB Grandi getur ekki verið að kaupa eignir af stærsta eiganda fyrirtækisins á einhverju yfirverði. Hvort seljandinn er að hagnast eða tapa á viðskiptunum skiptir ekki máli í þessu sambandi. Það sem skiptir máli er að hluthafarnir séu sáttir. Þess vegna birtum við fyrirvarann á föstudag þess efnis að stjórnin og hluthafarnir myndu fara yfir þessa ákvörðun. Að lokum mun svo Samkeppniseftirlitið segja sína skoðun á málinu. Hluthafar og stjórn munu hafa nægan tíma til þess að fara yfir þessi kaup.“ Guðmundur er vanur að tala tæpitungulaust. Af þeim sökum áttar hann sig strax á því að blaðamaður er ekki fyllilega sáttur við svarið. Án þess að árétta spurninguna frekar bætir Guð- mundur við: „Ef ég svara spurningunni varðandi Ögurvík þá er það svo að Brim er ekki að taka neinn gríðarlegan söluhagnað út úr þessu. Brim á ekki meirihlutann í HB Granda og stjórnin hefur fengið hlutlaust mat á söluverðinu. Það segir líka ýmislegt um það hversu góð kaup þetta eru að það voru margir sem vildu kaupa Ögurvík núna, alveg eins og þegar Brim keypti fyrirtækið 2016. Eina ástæðan fyrir því að HB Grandi getur keypt Ögurvík núna en ekki einhver annar er að félagið hafði forkaupsrétt vegna þess að þetta er innan sama sveitarfélags.“ Eins og frægt er orðið er Guðmundur minni- hlutaeigandi í Vinnslustöðinni í Vestmanna- eyjum. Litlir kærleikar eru milli hans og meiri- hlutaeigenda. Þar mætast stálin stinn. Eftir kaupin á Ögurvík er ekki óeðlilegt að einhverjir spyrji sig hvort hluturinn í Vinnslustöðinni sé næstur á dagskrá. „HB Grandi getur aldrei keypt meira en 49% í öðru félagi í útgerð því við erum í kvótaþakinu. HB Grandi vill hins vegar vaxa og eflast. Mín að- koma að Vinnslustöðinni var í upphafi bara hlut- laus. En svo leiddist mér hvað þetta var lélegur rekstur hjá félaginu. Meirihluti eigenda vildi ekki fjárfesta í nýjum tækjum og búnaði. Þeir tóku þá stefnu að kaupa öll hlutabréf sjálfir, sem losnuðu í fyrirtækinu, og af þeim sökum hafa þeir þurft að greiða sér mikinn arð. Það kemur niður á fjár- festingunni inni í Vinnslustöðinni og fyrirtækið hefur dregist aftur úr sambærilegum sjávar- útvegsfyrirtækjum. Sjáðu bara Vinnslustöðina í samanburði við Síldarvinnsluna. Þetta voru mjög sambærileg fyrirtæki fyrir 25 til 30 árum. Það er mjög breytt og ef þú skoðar veiðigjöldin sem þessi tvö félög borga á síðasta kvótaári kemur munurinn í ljós. Vinnslustöðin veiðir lítið á sínum skipum. Þeir lifa á því að leigja kvótann og rekst- urinn er subbulegur eins og komið hefur í ljós.“ En kemur til greina að kaupa þennan hlut af Brimi? „Ég get ekki svarað því enda hefur sú umræða ekki átt sér stað á vettvangi stjórnar. En við ætl- um að vaxa og við erum sterkt almenningshluta- félag og eigum möguleika á að auka hlutafé. Það er líka mikilvægt að muna að sjávarútvegurinn er mjög fjárfrek atvinnugrein. Nýtt skip kostar fleiri, fleiri milljarða í smíðum, vinnslubúnaður frá Völku eða Marel kostar nokkra milljarða. Við þurfum aðgengi að miklu fé og það er nauðsyn- legt að fá það á sem bestum kjörum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 13VIÐTAL valda tjóni á kerfinu af sér þróun til kerfisbreytinga sem geti haft ófyrirséðar afleiðingar. „Þegar kerfið fer að stýra því hvernig við högum rekstrinum þá fara allir að reyna að spila eftir kerfinu í stað þess að spila eftir mestu hagkvæmni fyrir reksturinn og sam- félagið í heild. Þegar menn hætta að gera út frystitogarana út af kerfinu þá hættum við t.d. að nýta fjarlæg mið. Nú tala menn um að Íslendingar kunni að hafa einhvern veiðirétt við Norðurpólinn eftir því sem ísinn bráðnar. Það þarf lítið að pæla í því vegna þess að við munum ekki eiga nein skip sem komast þangað á næstu árum. Við erum líka að tapa þekkingu í þeim sjómönnum sem starfað hafa á frystitogurum og það er ekki hægt að sækja hana eins og hendi sé veifað. Þetta er mikil skammsýni. Sjómenn á frystitogurum eru einir hæst launuðu starfsmenn hér á landi og hafa skapað gríðarleg verðmæti fyr- ir þjóðarbúið. Þeir sem fara núna að tjá sig um veiðigjöldin í haust, ekki síst fræðimenn og stjórnmálamenn verða að kynna sér mál- ið í alvöru. Ef við veljum áfram vitlaust veiði- gjaldskerfi eins og það sem við höfum not- ast við á undanförunum árum þá mun það hafa enn meiri neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir sjávarútveginn og þjóðina alla en það sem komið er fram í dag.“ nú eitthvert væl hér í Reykjavík þá.“ Með þessu segir Guðmundur að auðlinda- skatturinn ætti að vera fast gjald á söluverð fisks eins og nýtingu annarra auðlinda. „Það er búið að þróa mjög fínt auðlinda- skattskerfi í olíuiðnaðinum. Þar er ákveðið gjald sem er prósentuhlutfall af söluverði olíunnar. Það á ekki að skipta máli hvort þú býrð til verðmæta vöru úr auðlindinni eða ekki heldur á þetta að vera aðgangsgjald. Það á að gilda um allar auðlindir. Þannig finnst mér að ef aðgangsgjaldið er t.d. 5% þá eigi það hlutfall einnig að greiðast í ríkissjóð af ferðum á Gullfoss og aðrar náttúruperlur sem eru náttúruauðlindir á Íslandi.“ En Guðmundur segir að veiðigjaldakerfið eins og það er byggt upp núna sé ekki að- eins ógagnsætt. Það valdi beinlínis var- anlegu tjóni á íslenskum sjávarútvegi. „Veiðigjöldin eru lögð á tegundir og þau leggjast mjög hart á þær tegundir sem sótt- ar eru með frystitogurum. Stórir frystitog- arar eru að greiða jafnvel yfir 200 milljónir í veiðigjöld á ári. Það er meira en mörg stór sjávarútvegsfyrirtæki eru að borga í veiði- gjöld á síðasta kvótaári. Þessar upplýsingar eru allar aðgengilegar á heimasíðu Fiski- stofu.“ Og hann segir að ójafnvægið í kerfinu leiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.