Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 17
„Ég hef endalausan áhuga á
nýsköpun og tækni og ég fann
fyrir mikilli tilhlökkun og
stemningu hjá Veitum
gagnvart því að taka þátt í
breytingum tengdum fjórðu
iðnbyltingunni. Mér finnst líka
skipta máli að hér starfar fjöldi
fólks með mikla þekkingu,
bæði verkfræðiþekkingu og
iðnmenntun. Hér fer saman
hugur og hönd og það er góð
blanda þar sem við erum ekki
bara að fara teikna upp hluti,
við ætlum að framkvæma.“
Ragnheiður segir gríðarleg
tækifæri vera í hugviti og
verðmætasköpun.
„Fyrir fólk í tækni-
geiranum sem vill
gera spennandi
hluti eru Veitur
réttur staður“
„Þetta er samt bara rétt að
byrja og það er eitthvað í
loftinu. Við viljum fanga þetta
andrúmsloft hjá Veitum og ég
er viss um að sú mikla gleði og
orka sem er að finna hjá
fyrirtækinu núna muni skila
sér í spennandi og skemmti-
legum verkefnum í fram-
tíðinni. Það hjálpar til að mikil
áhersla hefur verið lögð á
starfsþróun og fyrirtækið
stendur einnig framarlega
þegar kemur að umhverfis-,
öryggis-, og jafnréttismálum.
Mér finnst frábært að sjá hvað
jafnrétti skiptir miklu máli,
það er ekki sjálfgefið í svona
tæknifyrirtæki. Fyrir fólk í
tæknigeiranum sem vill gera
spennandi hluti og taka þátt í
nýsköpun og þróun eru Veitur
réttur staður. Við erum að fara
inn í framtíðina og við þurfum
að fá fleira hæfileikaríkt fólk
með okkur til að koma okkur á
næsta stig.“
„Framtíðin er núna“ segir
Hans Liljendal Karlsson,
forstöðumaður Kerfisþróunar
og stýringar. „Við vitum ekki
nákvæmlega hvernig hún
verður en það er okkur mjög
mikilvægt að hefja ferðalagið.
það er svo gaman þegar
tæknin er komin á þennan stað
sem hún komin á í dag. Nú er
hægt gera eitthvað raunveru-
legt, við erum ekki lengur að
tala um skúffuverkefni eða
tilraunir heldur raunveruleg
úrbótaverkefni.
„Með því að beita
gervigreindartækni
á gögnin okkar
munum við bæta
nýtingu“
Við erum að upplifa spenn-
andi tíma, mikil vitund-
arvakning er í gangi og ég
hlakka til að fá fólk með mér
sem er drifið áfram af
frumkvöðlahugsun, fólk sem
finnur nýjar leiðir og sér
tækifærin til úrbóta,
hagræðingar og sjálfvirkni.“
„Við ætlum að nýta nýja tækni
til hins ítrasta, hvort sem um
er að ræða stór gagnasöfn,
gervigreind eða aðrar
Drauma-
vinnustaðurinn
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Fjórða iðnbyltinginer
handanviðhorniðog
tækni og sjálfvirkni
munánæstuárumog
áratugumgerbreyta
heiminum.Mögu-
leikarnir til að nýta
tæknina í veitugeira-
numeru óþrjótandi.
Hans Liljendal Karlsson
Stemning
fyrir fjórðu
iðnbyltingunni
Ragnheiður tók nýverið við starfi forstöðumanns Framkvæmda
hjá Veitum. Hún kemur úr upplýsingatæknigeiranum en hafði
ekki mikið velt veitustarfsemi fyrir sér áður en hún hóf störf
hjá Veitum. Hún segir margt hafa komið skemmtilega á óvart.
nýjungar,“ segir Hans. „Með
því að beita gervigreindar-
tækni á gögnin okkar
munum við bæta nýtingu og
þar með fara betur með
auðlindirnar sem okkur er
trúað fyrir.
Við ætlum að vera á tánum og
taka af þrótti þátt í öllu sem
nýir tímar hafa upp á að bjóða.
Í raun eru einu takmark-
anirnar í huga okkar sjálfra.“