Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 18
Í góðu sambandi við framtíðina
Við viljum ráða
stjórnendur til að
móta framtíðina
með okkur
Í boði eru fjórar stjórnunarstöður
í framkvæmdastjórn Veitna
Rafveita
Framtíð rafveitu er snjöll og felur í sér að hámarka nýtingu
rafdreifikerfanna og vera leiðandi í orkuskiptum í
samgöngum. Stjórnandi er ábyrgðarmaður rafmagns,
leiðtogi sem brennur fyrir nýsköpun, tækni og öryggi.
Fráveita
Framtíðin felur í sér sporlausa fráveitu, blágrænar
regnvatnslausnir og fræðslu til almennings. Stjórnandi
fráveitu framtíðarinnar er leiðtogi sem brennur fyrir
nýsköpun, samskiptum og hreinum ströndum.
Stóra stundin er runnin upp
Við leitum að hugmyndaríku og drífandi fólki sem
er tilbúið að taka þátt í nýsköpun og framþróun
og móta með okkur snjalla framtíð.