Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 24

Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 24
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTA OGGINN VIÐSKIPTI Á MBL.IS Heimurinn óviðbúinn fyrir annað hrun CCP selt til Suður-Kóreu Veiking krónunnar tengist líklega … Kjöt og fiskur skellir í lás WOW sagt óska aðkomu bankanna Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Þóroddur Bjarnanson tobj@mbl.is Íslenskt lambakjöt hefur löngumþótt herramannsmatur, og við Ís- lendingar keppumst við að dásama það, daginn út og inn. Tilhugsunin um safaríkan hrygg með stökkri puru eða ljósrautt innralæri með sveppasósu kallar umsvifalaust fram vatn í munn- inn. Og fyrst ég er farinn að tala um lambakjöt verð ég að minnast á ís- lenska lamba-jerky-ið sem ég smakk- aði um daginn á ónefndum sveitabæ hér á landi. Af því fæ ég líklega aldrei nóg. Enn hef ég ekki rætt um íslenska hangikjötið, með uppstú og grænum baunum. Þvílík veisla. Á ferðum mínum norður um heiðarí síðustu viku var ég rækilega minntur á þessa dásamlegu auðlind okkar Íslendinga þegar ég sá menn á fjórhjólum uppi um allar koppagrund- ir, í sjálflýsandi göllum, rekandi hópa af þessum fallegu, en ljúffengu skepn- um í réttir. Það er ekki síður ánægju- legt að virða þessar skjátur fyrir sér í hóp í fjarska, en í mikilli nálægð á disknum fyrir framan mann. Í þessu samhengi er rétt að sendavinum okkar í Japan og Kína sér- stakar hamingjuóskir, en útflutningur á íslensku lambakjöti til þessara landa er nú að fara að hefjast í stórum stíl. Í frétt af málinu segir að þar þyki það bæta heilsuna að borða kjöt framleitt í Evrópu. Að lokum vil ég nota tækifærið ogbenda á skekkjuna í dæminu. Ég hef enga möguleika á að kaupa mér ferskan kínverskan lambahrygg, hvað þá japanskt kinda-jerky. Von- andi verður ráðin bót þar á. Alþjóðlegt lambakjöt Sá grunur læddist að Innherja ásíðasta ári að staðan í ferðaþjón- ustunni hér á landi væri viðkvæm. Gríðarlegur vöxtur og mikil fjárfest- ing bentu ekki síst í þá átt. Þann 9. nóvember var bent á það á þessum vettvangi að í ritinu Fjármálastöð- ugleiki sem Seðlabankinn gefur út með reglubundnu millibili var skaut- að létt yfir stöðu ferðaþjónustunnar sem burðaráss í hagkerfinu. Engu orði var þá eytt í þá staðreynd að tvö innlend flugfélög hafa haldið uppi langstærstum hluta fólksflutninga til og frá landinu. Sú staða hefur síst breyst. Þau bera hitann og þungann af nærri 80% allra áætlanaferða til og frá landinu. Eitthvað sat þessi staða í Innherjaog þremur vikum síðar var undrun lýst á því að flugfélögin tvö séu ekki skilgreind í hópi kerfislega mikilvægra fyrirtækja. Í þeim hópi eru skv. skilgreiningu fjármálastöð- ugleikaráðs aðeins þrjú félög, við- skiptabankarnir stóru. En nú hafa stjórnvöld vaknað upp við breytta sviðsmynd og fulltrúar fjögurra ráðu- neyta, hvorki meira né minna, hafa frá því í sumar unnið „viðbragðsáætl- un“ vegna hugsanlegra áfalla í rekstri „mikilvægra“ atvinnufyrirtækja. Það er mikilvægt að stjórnvöldhafi opnað augun fyrir þeirri staðreynd að það eru ekki aðeins bankastofnanir sem eru burð- arstoðir hagkerfisins og ef þær svigna eða brotna getur það haft áhrif á allt burðarvirkið sem at- vinnulífið byggir grundvöll sinn á. Nú mættu stjórnvöld einnig staldra við og velta fyrir sér stöðunni á Keflavíkurflugvelli. Þar er ríkisfyr- irtæki með á prjónunum einhverja stærstu einstöku framkvæmd í sögu landsins. Fátt virðist koma í veg fyr- ir að ISAVIA leggi út í fram- kvæmdir við flugvöllinn og flustöð- ina sem muni kosta á annað hundrað milljarða króna! Er víst að rík- issjóður og stjórnmálaforystan sé tilbúin til að standa frammi fyrir orðnum hlut í því? Félögin reyndust kerfis- lega mikilvæg eftir allt Netverslun Nike jókst um 31% eftir umdeilda auglýsingaherferð samkvæmt gögnum Edison Trends. Umdeild auglýs- ing eykur sölu 1 2 3 4 5 „Það er búinn að vera gríðarlegur straumur af Íslendingum til Torre- vieja síðustu tvö ár, og meira en 200 hafa keypt þar íbúðir. Það búa núna nálægt 1.000 Íslendingar á svæðinu,“ segir Kristján Sveinsson í samtali við ViðskiptaMoggann, en hann og eigin- kona hans, Birna Guðmundsdóttir, fluttu til Spánar fyrir tveimur árum og kynntust þar eigendum bygginga- félagsins Euromarina fyrir tilviljun. „Það var einhver ævintýraþrá í okk- ur, og allt í einu vorum við farin að sjá um Íslandsmarkað fyrir þau.“ Höfuðstöðvar Euromarina eru í Ciudad Quesada-hverfinu sem er að sögn Kristjáns 30 þúsund manna bæjarfélag, að mestu byggt af Euro- marina á síðustu 46 árum. „Mér fannst mjög áhugavert að ein fjöl- skylda væri að byggja hverfi sem er stærra en Garðabær og Kópavogur til samans.“ Endurgreiða flug og hótel Kristján og Birna halda kynningar á Euromarina 4-6 sinnum á ári. Næsta kynning er á Grand hóteli á laugardag og sunnudag. „Svo bjóðum við upp á skipulagðar ferðir með fólk til Spánar, en aldrei meira en tvö pör í einu. Flug og hótel kostar 45.000 kr. en við endurgreiðum ef íbúð er keypt.“ Kaupendur eru á öllum aldri. „Fólk er jafnvel að hugsa þetta sem fjárfestingu til framtíðar, og vill kannski eiga eignina skuldlausa þeg- ar það fer á eftirlaun. Það er einnig hægt leigja íbúðina út, og við hjálp- um til við það.“ Þau segja að fasteignaverð hækki nú um 7-8% ár frá ári á Spáni og hús- in séu traust og vönduð. Hægt er að klára dæmið fyrir um 25 m.kr., með öllum gjöldum. Þau Birna og Krist- ján aðstoða við fjármögnun, sem er allt að 70%, á 1,9%-3,5% óverð- tryggðum vöxtum. Margir Íslendingar hafa áhuga á að búa á Spáni þegar eftirlaunaaldri er náð, og jafnvel mun fyrr. Euromarina íbúðirnar eru með aðgengi að sundlaug. 200 íbúðir á tveimur árum Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is 200 Íslendingar hafa keypt íbúðir hjá Euromarina á Torrevieja á Spáni, á síð- ustu tveimur árum. SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.