Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Nú er
...líka orðinn léttur
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sigríður Andersen dómsmálaráð-
herra hefur lagt fram stjórnarfrum-
varp á Alþingi um refsingar fyrir
hópmorð, glæpi gegn mannúð,
stríðsglæpi og glæpi gegn friði.
Með þessu er verið að innleiða í
íslenskan rétt sáttmála um ráðstaf-
anir gegn og refsingar fyrir hóp-
morð frá 1948, Genfarsamninginn
frá 1949 ásamt viðaukum og Róm-
arsamþykkt um Alþjóðlega saka-
máladómstólinn. Með frumvarpinu
er m.a. verið að tryggja að íslensk
stjórnvöld geti nýtt sér fyllingarlög-
sögu Alþjóðlega sakamáladómstóls-
ins ásamt því að rannsaka og ákæra
sjálf fyrir glæpi sem falla undir lög-
sögu dómstólsins.
Sérstakri
nefnd var falið að
fjalla um hvort
þörf væri á laga-
breytingum
vegna innleiðing-
ar fyrrnefndra
sáttmála og mat
nefndin svo vera.
Þórdís Inga-
dóttir, dósent við
lagadeild Háskólans í Reykjavík og
formaður nefndarinnar, segir að Ís-
land sé skuldbundið sérstaklega til
að innleiða sáttmálan um hópmorð
sem og Genfarsamningana því við
erum búinn að skuldbinda okkur til
að saksækja fyrir þá glæpi sem
falla þar undir. „Þetta hefur bara
aldrei verið gert og það er verið að
gera það núna,“ segir Þórdís en Ís-
land undirritaði t.d. hópmorðssátt-
málann 14. maí 1949. „Við höfum
verið skuldbundin af þjóðrétti að
saksækja fyrir brot á Genfar. Okk-
ar afstaða var lengi sú að við mynd-
um þá bara saksækja það sem er
t.d. líkamsárás en samkvæmt dóma-
framkvæmd erlendis hefði það ekki
verið talið fullnægjandi.“
Í lagafrumvarpinu er að finna
m.a. ákvæði um þjóðarmorð, bann
við notkun efnavopna í alþjóðlegum
vopnuðum átökum sem og um
ábyrgðir herforingja. Ákvæði sem
við fyrstu sýn virðast eiga lítið er-
indi við Ísland. En Þórdís segir að
innleiðingin sé mikilvæg enda sé
um alþjóðlegar skuldbindingar að
ræða ásamt því að lögin hafi varn-
aðaráhrif. Lögin eiga þannig við um
Íslendinga sem taka þátt í átökum
erlendis eða ef erlendir málaliðar
flytjast hingað til lands.
Saksóttir óháð þjóðerni
„Möguleikinn er alltaf fyrir
hendi. Stóra skuldbindingin sam-
kvæmt hópmorðs- og Genfarsátt-
málunum er að ef einhver fyrir-
finnst hér á landi sem hefur framið
þessa glæpi í útlöndum, alveg óháð
þjóðerni eða hverjir eru fórnar-
lömb, þá ber okkur skylda til að
saksækja eða framselja þá.“
Norðmenn innleiddu sambæri-
lega löggjöf fyrir nokkrum árum og
segir Þórdís að meðal röksemda þar
í landi hafi verið að tryggja að Nor-
egur yrði ekki áfangastaður fyrir þá
sem ætla að flýja undan réttvísinni.
Bendir hún m.a. á að ákveðnir að-
ilar voru saksóttir í Finnlandi fyrir
hópmorðin í Rúanda og málsóknir í
Svíþjóð gegn sænskum meðlimum í
hryðjuverkasamtökunum ISIS.
„Með frjálsri för fólks, átökum,
móttöku flóttamanna og öðru þá
verður þessi löggjöf að vera í lagi.
Bæði til að geta saksótt fyrir það
sem kemur upp en líka til varn-
aðaráhrifa svo við verðum ekki
áfangastaður þeirra sem eru að
flýja. Þannig að þeir vita að ef þeir
finnast hér þá eru landslög sem
taka á málinu. Svo má ekki van-
meta Íslendinga sem eru úti um
allt. Í ISIS er t.d. fullt af Evr-
ópubúum.“
Innleiða alþjóðlega sáttmála í lög
Frumvarp um refsingar fyrir hópmorð lagt fram á Alþingi Tryggir að íslensk stjórnvöld geti rann-
sakað og ákært fyrir m.a stríðsglæpi Lögin hafa einnig varnaðaráhrif, segir dósent í lögfræði við HR
Þórdís
Ingadóttir,
Þúfa myndlistarkonunnar Ólafar Nordal er
vinsæll viðkomustaður hjá þeim sem ganga
um Reykjavíkurhöfn. Þessar ungu stúlkur
nutu þess að spígspora um steinþrep lista-
verksins og virða fyrir sér fallegt útsýnið.
Listaverkið skemmdist sem kunnugt er í
miklum rigningum í byrjun árs. Eftir viðgerð
var aðgangur að því heimilaður á ný um sjó-
mannadagshelgina í sumar.
Þúfan var reist árið 2013 og er í eigu HB
Granda. Hún er 26 metrar í þvermál og átta
metra há.
Morgunblaðið/Eggert
Iðjagræn Þúfan er skemmtilegur viðkomustaður
Veður víða um heim 17.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 skúrir
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 8 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 14 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 14 skýjað
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 17 skúrir
London 23 léttskýjað
París 28 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 28 léttskýjað
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 25 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 26 heiðskírt
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 7 skýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 24 rigning
Chicago 27 heiðskírt
Orlando 30 heiðskírt
18. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:00 19:45
ÍSAFJÖRÐUR 7:03 19:52
SIGLUFJÖRÐUR 6:46 19:35
DJÚPIVOGUR 6:29 19:15
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Gengur í norðan og norðaustan 13-
20 m/s, heldur hvassari í vindstrengjum suðaustan
til á landinu um kvöldið. Rigning norðan- og aust-
anlands, en snjókoma til fjalla. Hiti 3 - 12 stig.
Austan og norðaustan 3-10 m/s, en 13-18 um landið norðvestanvert. Lengst af rigning norðan-
og austanlands. Bjart með köflum suðvestantil, en líkur á skúrum síðdegis. Bætir í vind í kvöld.