Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga
frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 17. september 2018, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með
5. september 2018 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í
eindaga til og með 17. september 2018, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og trygginga-
gjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og
utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi,
úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi,
vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum,
aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum,
jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi
Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og
sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 18. september 2018.
Tollstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
ÚR BÆJARLÍFINU
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Í litlu bæjarfélagi með fjölskrúð-
ugt íþrótta- og menningarlíf fagna
allir þegar vel gengur. Nú hafa
knattspyrnumenn og áhugamenn
ríka ástæðu til þess að fagna, en
nokkurs konar eyðimerkurgöngu
Skallagríms í neðstu deild er nú lok-
ið. Liðið hafði verið heil 15 ár í neðstu
deild, en nú tekur annað við, þ.e. and-
stæðingar úr sambærilegum bæj-
arfélögum í 3. deild á sumri kom-
anda. Þessi árangur náðist eftir
harða baráttu fyrst við Ými og svo
við Álftanes. Skallagrímur hafði bet-
ur gegn Álftanesi í einvígi liðanna sl.
miðvikudag. Skallagrímur fer því
upp um deild á fleiri mörkum skor-
uðum á útivelli. Einvígi liðanna end-
aði í 6-6 en dugði til. Menn spá því að
vel verði mætt á áhorfendapallana
næsta sumar.
Á sama tíma og fótboltamenn
fagna búa körfuboltamenn sig undir
veturinn, safna mannskap og styrkja
hópinn. Karlalið Skallagríms í körf-
unni stendur knattspyrnumönnum
framar á landsvísu, en þeir munu
spila í efstu deild á komandi vetri.
Spennandi verður að sjá hvernig
þeim farnast í efstu deild því hóp-
urinn er að miklu leyti byggður á
ungum og efnilegum heimamönnum
sem hafa leikið með eða spilað í ung-
lingalandsliðum.
Íþróttir og góður árangur er
ekki bara fyrir keppnismenn í hóp-
íþróttum. Það sýndi og sannaði Björg
Kristófersdóttir Borgnesingur, sem
landaði nýju íslandsmeti í 100 metra
bringusundi á EM-garpamóti í Slóv-
eníu. Hún synti á tímanum 01.59,53
sem er nýtt met í aldursflokki garpa
65-69 ára. Frábær árangur en gamla
metið er frá árinu 2013 og er
02:31,43.
Allir íþróttabæir þurfa að eiga
viðeigandi samastað með stórum
skjá og bar og þess háttar. Nú hefur
hið nýja og glæsilega Hótel B59 tekið
þann kaleik með stæl. Þar er að auki
boðið upp á spennandi nýjung sem
kallast „Framandi fimmtudagar“ en
þá er boðið upp á smárétti frá ýms-
um heimshornum, einu landi í senn.
Þannig hefur verið á boðstólum m.a.
marokkóskur matur, indónesískur og
mexíkóskur, og fleira er fram undan.
Nokkuð til að prófa og hlakka til.
Eins og allir vita er Borgarnes
mikil samgönguæð hvort sem er fyrir
þá sem eiga leið norður eða vestur
gegnum þjóðveg 1. Það er stundum
kvöl fyrir heimamenn en þjóðvegur 1
er líka eina leið bæjarbúa milli bæj-
arhluta, en líklegt er að margir hafi
lent í töfum sl. fimmtudag vegna
langra biðraða, en verið var að mal-
bika báðar akreinar á Borgarbraut í
miðju bæjarins. Áætlað var að fram-
kvæmdirnar stæðu yfir frá kl. 9:00 til
22:00, svo það reyndi vel á þolinmæð-
ina.
Eyðimerkurgöngu
í neðstu deild lokið
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Biðskylda Líklegt er að margir hafi lent í töfum vegna malbikunar.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Bílar