Morgunblaðið - 18.09.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
og gerir þau hæfari til að takast á við
áskoranir í sínum daglega rekstri.“
Áhugi er grundvallarforsenda
Baldur segir að það sé þó grund-
vallarforsenda fyrir þátttöku í skól-
anum að fyrirtækin séu opin fyrir
skráningu. „Flest þeirra eru alvar-
lega að íhuga þetta, en ástæður fyrir
því eru svo mismunandi.“
Baldur segir að fyrirtækin komi
úr nokkrum geirum atvinnulífsins.
Sjö koma úr hugbúnaðargerð og
tengdri þjónustu, fimm fyrirtæki eru
úr rannsóknum og nýsköpun, fjögur
eru í ferðaþjónustu og eitt kemur úr
framleiðslugeiranum.
Spurður nánar um stærð fyrir-
tækjanna, segir Baldur að stærsta
fyrirtækið sé með um átta milljarða
ársveltu. Fjögur fyrirtækjanna eru
með veltu yfir einn milljarð króna á
ári, en hin eru öll með minna en 300
milljónir króna í veltu á ári.
Var mikill áhugi á þátttöku?
„Við ætluðum upphaflega að hafa
færri fyrirtæki í skólanum, en áhug-
inn reyndist meiri en við áttum von
á. Við höfum þó þurft að segja nei við
nokkur fyrirtæki. Það voru þá fyrir-
tæki sem voru komin aðeins of
skammt í sínu þroskaferli til að eiga
heima meðal hinna þátttakendanna.“
Elstu áratuga gömul
Baldur segir að fyrirtækin séu
komin mislangt á þroskabrautinni.
Öll séu þau þó búin að slíta barns-
skónum, eins og hann orðar það.
„Elstu fyrirtækin eru áratuga
gömul, en þau yngstu voru stofnuð
eftir hrun.“
Voru sett einhver sérstök skilyrði
fyrir inntöku í skólann?
„Nei, en við skoðuðum þó væn-
leika þess að þau gætu átt upp á pall-
borðið hjá almenningi sem fjárfest-
ingarkostur. Við höfum í því tilliti til
dæmis horft mikið til sænska mark-
aðarins, og á ný fyrirtæki í þeirri
kauphöll. First North markaðurinn
er hvað virkastur í Stokkhólmi, og
því er gott að skoða hann til að sjá
hvað virkar og hvað virkar ekki.“
Baldur segir að það sé merkileg
staðreynd að 70% nýrra fyrirtækja á
First North í Svíþjóð hafi til dæmis
ekki skilað hagnaði, og stór hluti sé
með engar tekjur.
En eru fyrirtæki sem eru ekki
með neinar tekjur vænlegur fjárfest-
ingarkostur?
„Nei, ekki ef maður horfir bara til
fortíðar fyrirtækjanna, en þessi
sænsku fyrirtæki sem þarna hafa
skráð sig eru öll með mikla vaxtar-
möguleika og búin að klára einhver
þróunarferli, ásamt því að vera með
flotta vöru. Þau eru því á fyrstu stig-
um tekjumyndunar. Þannig nota þau
markaðinn til að hjálpa sér að taka
næsta skref yfir í að verða alvöru
rekstrarfyrirtæki. En eins og allir
vita, þá er áhættusamt að fjárfesta í
hlutabréfum, sumum gengur vel en
öðrum síður.“
Allir fá heimavinnu
Eins og fyrr sagði er stærsta
fyrirtækið í First North skólanum
með marga milljarða í tekjur. Þarf
slíkt fyrirtæki að setjast á skóla-
bekk?
„Það er svo ólíkt að vera með
skráð fyrirtæki og óskráð, og
óskráð fyrirtæki geta átt margt
ólært til dæmis hvað varðar sam-
skipti við fjárfesta. Félög geta verið
óörugg á þessu sviði, þannig að þar
komum við inn og hjálpum til.“
Skólinn mun standa fram í apríl á
næsta ári, en nemendur hittast
mánaðarlega. Þess á milli er heima-
vinna. „Heimavinnan er valkvæð,
en snýr öll að hlutum sem fyrirtæk-
in geta skoðað í sínum rekstri, end-
urbætt verkferla og annað.“
Er hægt að falla í skólanum?
„Nei, en kannski þróum við þetta
lengra á næsta ári, og byrjum að
gefa einkunnir,“ segir Baldur og
brosir.
Kennarar í skólanum eru Baldur
sjálfur, aðrir sérfræðingar Nasdaq
Iceland og svo fulltrúar samstarfs-
fyrirtækjanna. Þá koma inn valdir
gestafyrirlesarar frá skráðum fé-
lögum á markaði. „Þetta er mjög
fjölbreyttur og flottur hópur fyrir-
lesara.“
Aðspurður hvort Kauphöllin
bjóði fyrirtækjunum sértilboð á
kauphallaraðild að loknum skólan-
um, segir Baldur að greiðslur til
Kauphallarinnar séu ekki miklar,
en þátttakan í skólanum geti
minnkað þröskuldinn fyrir fyrir-
tækin að því leyti að þau þurfi þá
væntanlega að eyða minni fjárhæð-
um í aðkomu ráðgjafa í skráning-
arferlinu.
Skólavistin er fyrirtækjunum að
kostnaðarlausu.
Sautján fyrirtæki setjast
á skólabekk í Kauphöllinni
Mun meiri aðsókn en gert var ráð fyrir Stærsta með 8 milljarða veltu
Markaður Ef allt fer að óskum gæti fjölgað verulega á First North mark-
aðnum á Íslandi á næsta ári. Fimm fyrirtæki eru skráð á þann markað í dag.
Morgunblaðið/Þórður
Kauphallaraðild
» Ókeypis er í First North
skólann.
» Fjögur fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu sækja skólann.
» Allir verða að sýna áhuga á
mögulegri skráningu til að fá
inngöngu.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fulltrúar sautján smárra og meðal-
stórra íslenskra fyrirtækja settust á
skólabekk í Kauphöllinni, Nasdaq
Iceland, nú á dögunum, þegar First
North skólinn svokallaði var settur.
Skólinn kennir sig við First North
vaxtarmarkaðinn sem rekinn er á
mörkuðum Nasdaq á Norðurlöndum
og er kallaður fullu nafni First North
- næsta skref.
Baldur Thorlacius, „skólastjóri“
skólans og viðskiptastjóri hjá Kaup-
höllinni, segir að verkefnið sé unnið í
samstarfi við Íslandsbanka, lög-
mannsstofuna Logos, endurskoðun-
arfyrirtækið KPMG og Nýsköpunar-
sjóð atvinnulífsins. „Hugmyndin er
að hjálpa fyrirtækjum að búa sig
undir mögulega skráningu á First
North. Einn hvatinn að þessu var sá
að þessi undirbúningur nýttist fyr-
irtækjum hvort sem þau skrá sig eða
ekki. Þetta eru allt hlutir sem þau
þurfa hvort eð er að fara í gegnum og
vinna úr, ef þau ætla að ná betri ár-
angri í rekstri. Skólinn auðveldar því
félögunum bæði að skrá sig á markað
Stjórn fasteignafélagsins Regins
ákvað á fundi sínum í gær að full-
nýta heimild 4. greinar samþykktar
félagsins til að hækka hlutafé Reg-
ins um 220,5 milljónir hluta en mið-
að við gengi hlutabréfa félagsins
nemur virði aukningarinnar um
4,26 milljörðum króna. Verður
hlutaféð notað til að greiða fyrir
kaup Regins á öllu hlutafé í FAST-1
slhf. og dótturfélögum þess.
FAST-1 er m.a. eigandi Turnsins
við Höfðatorg þar sem nú eru skrif-
stofur Reykjavíkurborgar.
Þetta kom fram í tilkynningu fé-
lagsins, kaupverðið er 22,7 millj-
arðar króna og verður að fullu fjár-
magnað með útgáfu
framangreindra hluta, lánsfé og yf-
irtöku áhvílandi skulda. Hlutafé í
Regin fyrir hlutafjáraukningu er
1,6 milljarðar króna að nafnvirði en
að henni lokinni ríflega 1,8 millj-
arðar króna. peturhreins@mbl.is
Reginn kaup-
ir Fast-1
Fullnýta heimild til
hlutafjáraukningar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfðatorg Meðal nýrra eigna.
18. september 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 109.34 109.86 109.6
Sterlingspund 143.49 144.19 143.84
Kanadadalur 84.09 84.59 84.34
Dönsk króna 17.14 17.24 17.19
Norsk króna 13.291 13.369 13.33
Sænsk króna 12.142 12.214 12.178
Svissn. franki 113.32 113.96 113.64
Japanskt jen 0.9776 0.9834 0.9805
SDR 153.28 154.2 153.74
Evra 127.87 128.59 128.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 159.953
Hrávöruverð
Gull 1206.2 ($/únsa)
Ál 2015.0 ($/tonn) LME
Hráolía 78.45 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Ben Baldanza sit-
ur enn í stjórn
WOW air sam-
kvæmt upplýsing-
um frá fyrirtækja-
skrá
Ríkisskattstjóra
sem Morgunblað-
ið óskaði eftir.
Greint var frá því í
fréttum um liðna
helgi að hann væri hættur í stjórninni.
Í samtali við vefsíðuna turisti.is sagð-
ist Baldanza hafa sagt sig úr stjórn fé-
lagsins í ágúst síðastliðnum þegar
hann tók sæti í stjórn bandaríska
flugfélagsins JetBlue. Um helgina var
Baldanza einnig kynntur sem stjórn-
armaður hjá WOW air. Þeirri skrán-
ingu hefur nú verið breytt og nú sitja
að sögn fyrirtækisins aðeins þau Liv
Bergþórsdóttir, Helga Hlín Hákonar-
dóttir, Skúli Mogensen og Davíð Más-
son í stjórninni. Samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið hefur aflað
ber Baldanza fulla ábyrgð á starfsemi
flugfélagsins, líkt og aðrir stjórnar-
menn, þar til að fyrrgreindri skrán-
ingu fyrirtækjaskrár RSK hefur ver-
ið breytt með formlegum hætti.
Samkvæmt upplýsingum frá RSK
ber að tilkynna um úrsögn úr stjórn
fyrirtækis innan mánaðar frá því að
hún kemur til.
Ben Baldanza kom inn í stjórn
WOW air í upphafi árs 2016 eftir að
hann lét af störfum hjá Spirit Air-
lines. Hann hefur komið að rekstri
nokkurra heimsþekktra flugfélaga á
undanförnum áratugum, m.a. hjá
American Airlines, US Airways og
Northwest Airlines.
Enn í stjórn WOW
skv. fyrirtækjaskrá
Ben Baldanza