Morgunblaðið - 18.09.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 18.09.2018, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Takk fyrir allt og allt. Helga Rún og Hekla Sif. Afi Ási var einstakur maður og afi. Ég var svo heppinn að fá að verja miklum tíma með afa og ömmu þegar ég var yngri, bæði á heimili þeirra og svo einnig í úti- legum vítt og breitt um landið. Þessum stundum fækkaði aðeins þegar árunum fjölgaði en alltaf bý ég að þessum góðu minning- um. Margar voru stundirnar þeg- ar ég varð eldri sem ég sat við eldhúsborðið á Miðvanginum, drakk kaffi og spjallaði við afa um stjórnmál og íþróttir, en afi var mikill íþróttaunnandi og þó að hann hafi fylgst með flestum íþróttum var handboltinn í fyrsta sæti. Hann hélt með Haukum og er hann aðalástæða þess að ég fór einnig að halda með Hauk- unum. Við fórum saman á leiki og má segja að áhugi hans á hand- boltanum hafi smitast yfir á mig og fleiri barnabörn. Seinna þegar við barnabörnin vorum farin að stunda íþróttir sjálf mætti hann á leiki og skipti þá engu máli hvort við spiluðum undir merkjum Hauka, FH, eða HK eða hvort íþróttin var hand- bolti eða fótbolti, alltaf studdi hann okkur áfram og hélt með okkur. Það var alltaf gaman að vera innan um afa, hann var einstak- lega orkumikill og glaðlyndur og alltaf eitthvað að brasa. Iðulega var hann klæddur í vinnubuxur og með Peltor-heyrnarhlífar á höfðinu, tilbúinn að láta hendur standa fram úr ermum. Alltaf var hann reiðubúinn að aðstoða mig, sama hvort það var að sjóða í pústgrein á gömlum Suzuki- jeppa, leggja pípulagnir í íbúð- inni minni eða skutla mér á æf- ingar. Þannig var afi, alltaf til- búinn að hjálpa með bros á vör. Takk fyrir allt, elsku afi. Andri. Afi var einn af þessum stór- kostlegu mönnum sem gátu allt. Yfirvegaður, hjartahlýr og með einstakan húmor. Vinnusamur var hann, alltaf eitthvað að bauka og brasa en hafði samt sem áður alltaf tíma til að stjana við okkur barnabörnin. Hvort sem það var að koma manni á æfingu eða í fiðlutíma þá var hann alltaf tilbú- inn að skjótast með mann með bros á vör. Þær bílferðir voru iðulega ansi snöggar enda fór hann afi minn mjög fljótt yfir á Freelandernum sínum. Afi var mikill Haukamaður og fór ég á ófáa handboltaleiki með honum og skemmti mér konunglega, ekki af því ég hafi einhvern sér- stakan áhuga á handbolta heldur hafði ég dálæti á því að fylgjast með afa þar sem hann lifði sig svo ótrúlega inn í leikina. Afi var einnig örlátur maður og man ég sérstaklega eftir því eina páskana þegar afi kom á Miðvanginn með poka fulla af páskaeggjum. Páskaeggin voru ætluð okkur barnabörnunum og erum við þónokkuð mörg. Svarið sem ég fékk þegar ég spurði af hverju í ósköpunum hann væri að kaupa öll þessi páskaegg var að hann hefði einfaldlega alltaf lang- að til að gera þetta. Mér hefur alltaf þótt gott að vera hjá ömmu og afa og dýrmæt voru hádegishléin sem ég eyddi á Miðvanginum með ömmu og afa í gegnum mína skólagöngu en þar lærði ég einmitt að tómatsósa og sulta ganga með flestum mat, allavega að mati afa. Takk fyrir allt, elsku afi. Ég elska þig. Rósa Árnadóttir ✝ Sveinn Gíslasonvélsmiður fæddist í Reykjavík 7. mars 1929. Hann lést á Landspítal- anum í Fossvogi 10. september 2018. Foreldrar hans voru Gísli Sveinsson vélsmiður, f. 6. ágúst 1897, d. 10. desember 1964, og Kristín Guðmunds- dóttir húsfreyja, f. 27. janúar 1903, d. 4. ágúst 1971. Hálf- bróðir Sveins í móðurætt var Garðar Þorfinnsson, f. 22. ágúst 1925, d. 30. október 1994, fyrr- verandi maki Sigurlína Sigurð- ardóttir, f. 22. ágúst 1932. Börn þeirra eru Sigurður Kristján, f. 25. nóvember 1961, og Pálína Kristín, f. 1. ágúst 1963. Bróðir Sveins var Guðmundur Júlíus (Bói), f. 6. júní 1930, d. 13.11. 1983, maki Sigrún Ólöf Sveins- dóttir, f. 27. september 1930, d. 5. apríl 2018. Börn þeirra eru Gísli, f. 15. desember 1952, d. 15. þeirra eru Sólveig Ösp Haralds- dóttir, Sigrún, Agnar Páll og Anna Sigríður. Sveinn Gíslason ólst upp í for- eldrahúsum lengst af á Hjalla- vegi 11 í Reykjavík. Hann lærði vélsmíði í fyrirtæki föður síns og bræðra hans, Vélsmiðjunni Steðja. Hann dvaldi um fimm ára skeið í Vancouver í Kanada þar sem hann lærði húsasmíði. Eftir að hann kom heim 1958 stofnaði hann ásamt bróður sín- um eigið fyrirtæki sem fram- leiddi vörur fyrir rafmagns- veitur. Sveinn starfaði síðar hjá Lýsi hf. í 25 ár og sá þar um við- hald og uppsetningu véla. Hann lét af störfum 2014 þá 85 ára gamall. Sveinn var félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur frá 1964 og var þar virkur bæði í leik og starfi. Hann var um langt skeið félagi í Lionsklúbbnum Fjölni. Hann naut þess að ferðast með fjöl- skylduna um landið með tjald, svefnpoka og veiðistöng. Syðri- Grund í Svarfaðardal varð síðar hans sælureitur. Útför Sveins fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 18. septem- ber 2018, klukkan 15. september 1979, Guðný, f. 8. nóvem- ber 1954, og Krist- inn, f. 30. október 1957. Eiginkona Sveins er Sigrún Pálsdóttir lækna- ritari, f. 18. júlí 1939. Foreldrar hennar voru Páll Tómasson húsa- smíðameistari, f. 4. október 1902, d. 16. janúar 1990, og Anna Jónína Jónsdóttir hús- freyja, f. 20. janúar 1920, d. 5. apríl 2006. Uppeldissonur Sveins er Hilmar Þórðarson tón- skáld, f. 9. apríl 1960, maki Gunnhildur S. Gunnarsdóttir arkitekt, f. 26. maí 1963. Börn eru Victoría Sædís Echegaray, Gunnar Manuel Echegaray og Sveinn Úlfur. Hilmar á dóttur, Ingibjörgu Völu. Sonur Sigrún- ar er Páll Tómasson arkitekt, f. 4. júní 1956, fyrrverandi maki Sigríður Agnarsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 1952. Börn Mig langar í örfáum orðum að minnast elsku mágs míns, Sveins Gíslasonar. Þau Lillý systir og Svenni giftu sig á Hálsi í Fnjóskadal árið 1963 hvar frændi okkar Sigurður Haukur Guðjónsson þjónaði. Veislan var heima hjá foreldrum brúðarinnar, Önnu J. Jónsdóttur og Páli Tómassyni í Skipagötu 2 á Akureyri. Nú eru liðin fimmtíu og fimm ár og kveðjustundin frið- sæl og falleg runnin upp. Svenni lést þann 10. þessa mánaðar eftir stutt veikindi, en hann var hraustur og heilsugóður fyrir. Við kveðjum hann með miklum söknuði. Systir mín Sigrún Pálsdóttir (Lillý) og Svenni, eins og við fjöl- skyldan og vinir köllum hann, hafa átt mörg góð ár saman, siglt áfram með miklum samtaka- mætti og verið sjálfum sér næg. Ef eitthvað kom upp á voru málin leyst af æðruleysi og ekki gert meira úr en efni stóðu til. Svenni var sáttur við lífið, já- kvæður, hlýr og þakklátur fyrir sitt. Strákarnir Hilmar og Palli og barnabörnin voru Svenna hug- leikin. Hann eignaðist nafna, Svein Úlf Hilmarsson, og voru þeir sérstaklega nánir. Svenni náði góðu sambandi við fólk og vildi öllum vel. Hann var traust- ur, gerði mestar kröfur til sjálfs sín og minni til annarra, og var umburðarlyndur og ljúfur að öllu leyti. Aldrei heyrði ég hann segja styggðaryrði um nokkurn mann. Minningar um samverustundir með þeim Lillý og Svenna eru ótal margar; frá Fálkagötunni, Kársnesbrautinni, Skúlagötunni og Frakkastíg, en þangað fluttu þau árið 1980. Svenni og Lillý hafa alltaf ver- ið gestrisin og góð heim að sækja og hafa margar fjölskylduveisl- urnar verið haldnar hjá þeim. Mjög ánægjulegt er að koma á fallegt heimili þeirra þar sem hver hlutur á sinn stað og alltaf allt eins og nýtt, farið svo vel með og mikil áhersla á vandvirkni hjá þeim báðum, hvort sem var verið að smíða stiga, elda eða þrífa. Við áttum líka margar ánægju- stundir fyrir norðan í Skipagöt- unni hjá mömmu og pabba. Áhugamál Svenna fyrir utan fjölskylduna, heimilið og vinnuna voru bílar, veiði, fótbolti og golf. Það voru engar öfgar varðandi áhugamálin, meira gert til ánægju og til að njóta lífsins. Ég og fjölskyldan mín, Birgir, Jón Hrói, Páll Tómas, Ólöf, Ul- rike og barnabörnin, þökkum fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning góðs drengs. Sigurbjörg Pálsdóttir. Árin líða hjá en samt er eins og sumir eldist lítið sem ekki neitt. Þannig var það með Svenna mág minn. Ég trúði því að hann væri eilífur en nú hefur hann kvatt þessa jarðvist. Minningin er sannarlega eilíf og mun gefa hlýju alla tíð. Mér þótti svo vænt um hann mág minn sem var mér eins og faðir. Hlýja hans og vænt- umþykja var beint frá hjartanu. Á lífsleiðinni voru alls kyns þrautir sem hann þurfti að leysa. Stundum gat ég verið ósátt við hann en innst inni held ég að það hafi verið vegna þess að mér fannst hann ekki fara nógu vel með sig. Hann gat djúsað og djammað, vakað langtímum sam- an, borðað ís og súkkulaði svo dögum skipti og ekkert virtist bíta á hann. Svenni var vélsmiður að mennt og í vinnunni í Steðja vann hann með alls kyns óholl efni sem hann andaði að sér alla daga. Það virtist engin áhrif hafa til hins verra. Hann var ótrúlega hraustur alla tíð. Það verður nú samt að segjast eins og er að mjög oft tók ég þátt í nammidög- unum með honum. Föðurleg umhyggja hans gaf mér mikið. Ég gat alltaf leitað til hans með öll mín mál til úrlausn- ar. Ófáar voru bílferðirnar með honum á unglingsárunum á hvaða tíma sólarhringsins sem var. Hann var alltaf glaður og hress og tilbúinn til að skutla mér hingað og þangað eða sækja mig. Svenni var barngóður og reyndist hann börnum mínum, Önnu Pálu, Sindra og Sunnu Mjöll, ætíð mjög vel. Þau meta það mikils og hugsa með mikilli hlýju og söknuði til hans. Þau höfðu gaman af að færa honum Seven Up og marssúkkulaði á af- mælinu hans 7. mars ef hægt var að koma því við. Alltaf gladdist hann jafn mikið. Bassi, hundurinn okkar Ein- ars, fann líka fljótt notalegheitin í fari Svenna. Honum fannst gott að liggja ofan á fótum Svenna og njóta þegar hann kom til hans í heimsókn. Reyndar mátti oft ekki á milli sjá hvor naut betur. Á síðustu árum hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með því fallega sambandi sem ríkti á milli hans og Lillýjar systur. Svenni var kletturinn í lífi hennar. Ógleymanlegar eru heimsóknirn- ar á Frakkastíginn til þeirra. Alltaf var veisluborð, mikið hleg- ið og sagðar sögur. Það er mikill söknuður sem ríkir í hjarta mínu en ég horfi til þess hversu heppin ég var að hafa átt hann Svenna minn að í svona langan tíma. Fyr- ir það er ég þakklát sem og fyrir það að hann beið eftir mér til þess að ég gæti kvatt hann og knúsað í hinsta sinn. Við Einar og börnin sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til elsku systur og mágkonu og nán- ustu ættingja. Þýtur í stráum þeyrinn hljótt, þagnar kliður dagsins. Guð er að bjóða góða nótt í geislum sólarlagsins. (Trausti Á. Reykdal) Helena Pálsdóttir. Sveinn Gíslason Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginkona mín, SJÖFN HALLDÓRSDÓTTIR, lést að Ási í Hveragerði miðvikudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju miðvikudaginn 19. september klukkan 14. Eyvindur Erlendsson börn, tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN RAGNAR EINARSSON, Sólheimum 23, Reykjavík, andaðist í Veiðivötnum sunnudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 21. september klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og minningarsjóð Tónstofu Valgerðar. Erla Elíasdóttir Bergljót Jónsdóttir Oddur Bjarnason Valgerður Jónsdóttir Einar Steinþór Jónsson barnabörn og fjölskyldur þeirra Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BRAGI ÞORSTEINSSON, Vatnsleysu, Biskupstungum, sem lést miðvikudaginn 12. september, verður jarðsungin frá Skálholtskirkju laugardaginn 22. september, klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Halla Bjarnadóttir Ingunn Birna Bragadóttir Ragnheiður Bragadóttir Eymundur Sigurðsson Kristrún Bragadóttir Björn D. Þorsteinsson Bragi Steinn, Sigurður og Halla Eymundsbörn og Katrín Ingunn Björnsdóttir Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN MAGNÚSSON, múrarameistari, Holtagerði 8, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík fimmtudaginn 13. september. Útför fer fram í Húsavíkurkirkju mánudaginn 24. september klukkan 14. Anna Sigrún Mikaelsdóttir Sólveig H. Sveinbjörnsdóttir Einvarður Hallvarðsson Helga Sveinbjörnsdóttir Heiðar Smári Þorvaldsson Guðný Sveinbjörnsdóttir Inga Maren Sveinbjörnsd. Valgeir Baldursson barnabörn, barnabarnabörn og bræður Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG AÐALHEIÐUR Þ. HJARÐAR, lést miðvikudaginn 12. september. Guðgeir Þorvaldur, Svandís, barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður, sonar, bróður og barnabarns okkar, EINARS KRISTJÁNS GUÐMUNDSSONAR, Tjarnarbóli 14. Sérstakar þakkir færum við Jóni G. Bjarnasyni og öðru starfsfólki Útfararstofu Kirkjugarðanna fyrir aðstoð og fagmannleg vinnubrögð við framkvæmd og skipulagningu útfararinnar. Einnig viljum við þakka vinum og vandamönnum fyrir hlýhug og stuðning. Alía Margrét Einarsdóttir Guðmundur Gunnarsson Thassanai Thaebthao Ingifríður Ragna Skúladóttir Guðmundur Guðbjartsson Guðmundur Dór Guðmunds. Hrafnkell Skúli Guðmundsson Alexía Ýr Magnúsdóttir Patrik Birnir Guðmundsson Aron Máni Guðmundsson Margrét Dóra Guðmundsd. Moritz W. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.