Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 24. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heimili& hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 28. september Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þrátt fyrir að vinir og vandamenn séu ekki á sömu leið og þú líður þér mjög vel. Settu markmið þín og væntingar á blað. 20. apríl - 20. maí  Naut Samtal við ættingja, nágranna eða fjölskyldu hefur jákvæð áhrif á þig. Einhver lofar þér gulli og grænum skógum en þú efast um efndir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ástin getur komið til manns á ólík- legustu stöðum – í kjörbúðinni eða bank- anum. Láttu hart mæta hörðu í viðskiptum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Finnist þér eitthvað vera að vaxa þér yfir höfuð er enn meiri ástæða til að spýta í lófana og taka málin í sínar hendur. Þú átt fullt í fangi með að fylgja tísku- straumum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Mundu að þótt allt gangi þér í haginn eina stundina er lánið fallvalt og betra að vera við öllu búinn. Þú ert ekki við eina fjöl- ina felld/ur í ástamálum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þeir þættir í fari þínu sem fram að þessu hafa valdið ánægju í vinahópnum virðast nú valda þér erfiðleikum. Allir hafa eitthvað til málanna að leggja, líka börn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Varastu að gagnrýna aðra um of því þú ert nú svo sem ekki fullkomin/n. Það geng- ur hvorki né rekur í ástamálunum þessa mánuðina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur fulla ástæðu til að vera ánægð/ur því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Leitaðu ráða varðandi val á inn- réttingum, það margborgar sig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitthvað gerir það að verkum að þú dregur þig inn í skel. Dveldu þar eins lengi og þú þarft. Mundu svo að lífið heldur áfram. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að finna farsælan farveg fyrir alla þína innri orku. Leyfðu öðrum að njóta með þér. Komdu erfða-, fasteigna- og tryggingamálunum á hreint. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú tekur lífinu of alvarlega og þarft að losa aðeins um hömlurnar. Hugsun þín er skýr og því geturðu komið miklu í verk á næstu vikum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt á hættu að verða fyrir barðinu á manneskju sem á mjög erfitt um þessar mundir. Gefðu þér góðan tíma til að sinna viðgerðum heima fyrir því miklu skiptir að árangurinn verði sem bestur. ÍVísnahorni á fimmtudaginn voruvísur eftir Auðólf Gunnarson lækni og slæddist þar inn vond villa og biðst ég velvirðingar á því. Rétt er vísan, „Kvöld á Hólsfjöllum“, svona: Á Hólsfjöllum var himneskt kveld við hjara norðurslóðar. Þá fjöllin bar við arineld aftansólar glóðar. Auðólfur var svo elskulegur að senda mér fleiri vísur. Hér er „Á Balí“: Á Balí er blítt að vera. Þar brosir hver einasta snót. Á höfðinu byrðar þær bera, banana jafnt sem grjót. Og þegar sólin sest þar við sjávarins ystu rönd, verða til vafurlogar, sem verma þau draumalönd. Haust. Fellur lauf og fölnar nár, fer að haust og vetur. Sláttumannsins slynga ljár slær nú allt, sem getur. Frostrósir falla á gluggann, fölnuð er rósin mín. Ég finn, að hún felst bak við skuggann feigðin og kallar til sín. Ólafur Stefánsson yrkir afmælis- vísu til Sigurlínar Hermannsdóttur á Leir: Yrkir vel í önnum dags, alvöru og grín. Syngur kát til sólarlags Sigurbaugalín. Sigurlín þakkaði fyrir vísuna með þessari athugasemd þó: „Ég veit að fljóð er hvorugkynsorð en ég á í vand- ræðum með að skilgreina mig sem hvorugkyn. En takk fyrir vísuna!“: Nýju ári fagnar fljóð fáni upp var dreginn. Afmælis- fær ágætt ljóð er að vonum fegin. Ég hitti karlinn á Laugaveginum og fór með þessar stökur. Að vanda hnykkti hann höfðinu afturábak til vinstri og tautaði: Góðar vísur gleðja að vísu karlinn. Oft hún ber mér boðnarvín, bestu þakkir, Sigurlín! Mér finnst fara vel á því að birta þetta fallega haustljóð eftir Ingólf Ómar: Gulnað hefur gróður jarðar gránað efstu strýtur fjalla, litir haustsins lyngið prýða lauf af birkihríslum falla. Héluslæða hlíðar þekur hraunið grátt og bratta stalla. Kyrrðin andar köldu lofti kemur brátt að skapadómi, döggin frýs á dýjamosa dregur kul að litlu blómi. Skógarþrestir klökkvir kveða kvaka álftir sárum rómi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá Hólsfjöllum til Balí „ÉG VEIT EKKI MIKIÐ UM FORELDRA MÍNA. ÉG VAR ALINN UPP AF ÖRYGGISMYNDAVÉLUM.“ „ÉG HÉLT AÐ ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ TAKA TIL Í ELDHÚSINU.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að erfa hvort annað að öllu saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ÆTTI AÐ SLÁ ÞIG FYRIR ÞETTA! JÁ? ÞÚ OG HVAÐA HER? JÆJA, DRENGIR, ÚT MEÐ SLAGINN EÐA ÉG HÆTTI AÐ VEITA YKKUR! KANNSKI TALAÐI ÉG AF MÉR! ÞAÐ ER Í LAGI – MÁ BJÓÐA ÞÉR DRYKK? ÆTLAR ÞÚ AÐ STARA Á SÍMANN ÞINN ALLT STEFNUMÓTIÐ OKKAR? JÁ GEGGJAÐ Víkverji rifjaði upp kynnin af AllyMcBeal um helgina; sjónvarps- þáttum sem hann hafði allnokkurt dálæti á fyrir um tveimur áratug- um. Sjónvarp Símans endursýnir þá um þessar mundir en þetta var fyrsti þátturinn sem Víkverji sér frá upphafi til enda. x x x Það voru jól og í forgrunni varmál manns sem hafði verið sagt upp störfum á grundvelli þess að hann hafði séð einhyrning á skrif- stofu sinni. Maðurinn greindi vinnu- félögum sínum frá þessari merki- legu sýn og var í framhaldinu rekinn með þeim skýringum að hann væri augljóslega ekki fær um að sinna starfi sínu lengur. Hann var í ábyrgðarstöðu og þurfti að taka stórar ákvarðanir á hverjum degi, þar sem háar fjárhæðir héngu á spýtunni. Maðurinn skaut upp- sögninni til dómstóla og fékk hina knáu Ally McBeal og lagateymið á stofunni hennar til liðs við sig. x x x Eftir að hafa hlýtt á rökin, með ogá móti, ákvað dómarinn að ógilda uppsögnina. Sannarlega væri ósennilegt að maðurinn hefði í raun og veru séð einhyrning á skrifstofu sinni en ekki væri þó sannað að það hefði áhrif á hæfni hans til að gegna áfram starfi sínu. Maðurinn hrósaði sigri en fékk í kveðjuskyni holl ráð frá lagateymi sínu. „Næst þegar þú sérð einhyrn- inginn, hafðu það þá bara fyrir þig!“ x x x Hafið þið veitt því athygli hvaðþað er miklu skemmtilegra að lesa bílnúmer eftir að bókstöfunum fjölgaði í þrjá? Alltént veit Víkverji fátt skemmtilegra á þessum síðustu og verstu tímum. Um helgina ók hann á eftir bæði BOB87 og ROY87, að ekki sé talað um JIM99. Allt númer af handahófi sem orðið hafa til í tölvu. Svo er það MYZ00. Að vísu núll en ekki O í lokin en það er sama. Loks má nefna TEK21. Undir stýri var karl- maður sem mögulega hefur sagt við konuna sína um morguninn: Ég tek 21! vikverji@mbl.is Víkverji Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé nafn Guðs um aldir alda því að hans er viskan og mátturinn. (Daníel 2.20)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.