Morgunblaðið - 18.09.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Heimssýn stendur vaktina ogsegir í pistli sínum frá eftir-
tektarverðum fundi með Poul M.
Thomsen í Hörpu en hann var í
fyrstu lotu afskipta AGS hér en
fór síðan í seintæk-
ari verkefni: „Poul
M. Thomsen, Dan-
inn eitilharði, sem
saumaði saman
efnahagsáætlun
með íslenskum
stjórnvöldum
haustið 2008, fór
síðan og gerði það sama í Grikk-
landi og Portúgal og er nú yfir-
maður Evrópumála hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, sagði
aðspurður á fundi í Hörpu í dag
(laugardag) að viðreisnin í Grikk-
landi hefði verið miklu, miklu
erfiðari en á Íslandi, ekki hvað
síst vegna aðildar Grikklands að
evrusvæðinu.
Reyndar hefði aðild Grikk-lands að evrusvæðinu átt
stóran þátt í að skapa hinn gíg-
antíska skuldavanda sem orsak-
aði kreppuna þar í landi með of
lágum vöxtum og of auðveldum
aðgangi að lánsfé, en svo hefði
lausn vandans orðið miklu erf-
iðari þar sem ekki var hægt að
fella gengið heldur þurftu mjög
sársaukafullar sparnaðaraðgerðir
hins opinbera, svokölluð innri
gengisfelling, að koma til.
Það var líka athyglisvert aðPoul Thomsen sagði að-
spurður að það hefði verið hag-
stætt fyrir Íslendinga að vera
með sjálfstæða peningastefnu og
sveigjanlegt gengi.“
Afskiptum AGS lauk fljótt hérog voru í mýflugumynd mið-
að við síðari verkefni. Og geta
má þess að efnahagur Íslands er
bólginn og skuldir hverfandi, á
meðan þjóðarframleiðsla skuld-
ugra Grikkja er nú fjórðungi
minni en áður var.
Poul M. Thomsen
Sjálfstæð mynt
gerði útslagið
STAKSTEINAR
Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már
Björnsson hlutu í gær fjölmiðlaverð-
laun umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins. Sveinn Runólfsson fékk
Náttúruverndarviðurkenningu Sig-
ríðar í Brattholti, en verðlaunin voru
veitt í tengslum við Dag íslenskrar
náttúru, sem haldinn var í fyrradag.
Var það niðurstaða dómnefndar
að veita þeim Tómasi og Ólafi Má
fjölmiðlaverðlaunin fyrir myndefni,
upplýsingar og greinaskrif um ís-
lenska náttúru á síðustu tólf mán-
uðum. Segir í rökstuðningi nefnd-
arinnar að þeir félagar hafi heimsótt
fjölmarga staði og sótt þangað nýtt
efni, bæði ljósmyndir og myndskeið,
og m.a. nýtt sér samfélagsmiðla til
að koma þessu efni á framfæri.
Sveinn Runólfsson hlaut við-
urkenningu fyrir að hafa um áratuga
skeið staðið í framvarðasveit í bar-
áttunni fyrir vernd og endurreisn
vistkerfa landsins. Segir í rökstuðn-
ingi umhverfisráðherra að Sveinn
hafi helgað líf sitt þeirri hugsjón
sinni að græða landið og tryggja
sjálfbæra nýtingu þess. „Sveinn hef-
ur verið óþreytandi í boðskap sínum,
fræðslu og hvatningu,“ segir þar.
Morgunblaðið/RAX
Í þágu náttúrunnar
Þrír hlutu viðurkenningar umhverf-
isráðuneytis á Degi íslenskrar náttúru
Velferðarráðuneytinu verður skipt
upp í heilbrigðisráðuneyti og félags-
málaráðuneyti, jafnréttismál munu
færast á ábyrgð forsætisráðuneyt-
isins og málefni mannvirkja færast
úr umhverfisráðuneyti í félagsmála-
ráðuneyti.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá viðkomandi ráðuneytum.
Í tilkynningu segir að markmiðið
með breytingunum sé að skýra
verkaskiptingu, skerpa pólitíska for-
ystu og skapa aukin sóknarfæri í
málaflokkum sem ríkisstjórnin hef-
ur í forgangi. Tillaga til þingsálykt-
unar þessa efnis hefur verið sam-
þykkt í ríkisstjórn og verður hún
lögð fyrir Alþingi.
Með breytingunni fjölgar ráðu-
neytum úr níu í tíu. Ráðgert er að
embættistitill ráðherra nýs félags-
málaráðuneytis verði félags- og
barnamálaráðherra og endurspeglar
það áform stjórnvalda um aukna
áherslu á málefni barna og ung-
menna.
Undirbúningur að breyttri skipan
ráðuneyta hefur staðið yfir í sumar
og hefur forsætisráðuneytið leitt
vinnuna í samráði við hlutaðeigandi
ráðherra.
Stefnt er að því að forsetaúr-
skurður um skiptingu Stjórnarráðs
Íslands í ráðuneyti og skiptingu
stjórnarmálefna milli ráðuneyta
komi til framkvæmda 1. janúar 2019.
Velferðarráðuneyti skipt í tvennt
Jafnréttismál og málefni mannvirkja færast einnig milli ráðuneyta
Skipt upp Velferðarráðuneytinu
verður brátt skipt í tvö ráðuneyti.
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
allar BaÐHErBErGISINNrÉTTINGar
oG ÞVoTTaHÚSINNrÉTTINGar
fáSTmEÐ 20%afSlæTTI
ÚT SEpTEmBEr 2018
GÓÐ KaUp
NÚ Er laG aÐ GEra
Við gerum þér
hagstætt tilboð í
innréttingar, vaska
og blöndunartæki
- afSláTTUr -
20%
íSEpTEmBEr 2
018
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
opIÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/