Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Sheer
Driving Pleasure
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
6
5
BMW i3 ER ENGINN VENJULEGUR RAFBÍLL. BMW i3 ER FYRSTI FJÖLDAFRAMLEIDDI
BÍLLINN Í HEIMINUM MEÐ YFIRBYGGINGU ÚR HÁSTYRKTUM KOLTREFJUM OG EINI
RAFBÍLLINN Í HEIMINUM MEÐ VOTTAÐ 100% HREINT FRAMLEIÐSLUFERLI.
BMW i3. VERÐ FRÁ: 4.790.000 KR.
RAFBÍLL ÞARF EKKI AÐ
LÍTA HVERSDAGSLEGA ÚT.
KOMDU Í REYNSLUAKSTUR OG UPPLIFÐU ÞAÐ NÝJASTA
OG FULLKOMNASTA Í RAFBÍLATÆKNI.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Umhverfisstofnun hefur hafnað
beiðni Ferðafélags Íslands um að
reisa 42 fermetra skjólhús í
Hrafntinnuskeri, sem er innan
Friðlandsins að Fjallabaki. Fram
kemur í úrskurði stofnunarinnar
að með byggingu skjólhússins sé
verið að auka við þjónustu við
ferðamenn á svæðinu, sem sé til
þess fallið að leiða af sér aukna
notkun á salernum og þar með
aukið magn seyru.
Fyrirhugað var að fara í fram-
kvæmdir við skjólhúsið í þessum
mánuði, en þar er gert ráð fyrir að
verði aðstaða til eldunar og vaskur
til að þrífa áhöld, ásamt borðum
með bekkjum fyrir um 40 manns.
Húsið á að koma í stað vaskaskýlis
sem er á staðnum til að notast við
frárennsli sem þar er.
Vilja bæta þjónustu,
ekki fjölga gestum
Páll Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Ferðafélagsins,
segir að málið verði rætt áfram við
Umhverfisstofnun og vonandi finn-
ist á því farsæl lausn. Skálinn í
Hrafntinnuskeri er einn afskekkt-
asti fjallaskáli á landinu og erfitt
er að koma árlega 5-10 tonnum af
seyru af svæðinu um illfæra slóða.
Páll segir að ekki sé fyrirhugað að
fjölga gestum í Hrafntinnuskeri,
heldur sé ætlunin að auka þjón-
ustu við þá sem þangað koma.
Í niðurstöðum Umhverfisstofn-
unar segir meðal annars: „Þrátt
fyrir að umferð í gegnum Hrafn-
tinnusker kalli á að til staðar sé
tiltekin þjónusta svo sem salern-
isaðstaða fyrir göngufólk bendir
Umhverfisstofnun á að umbætur
og stækkun á aðstöðu eru til þess
fallnar að auka mögulega fjölda og
viðverutíma gesta í Hrafntinnu-
skeri sem leitt getur til aukins
umfangs seyru.
Í ljósi þess að meðhöndlun
seyru á svæðinu er ekki í við-
unandi horfi og varanleg lausn þar
á hefur ekki verið fundin telur
Umhverfisstofnun ekki forsvar-
anlegt að heimila framkvæmdir
við skjólhús á svæðinu að svo
stöddu.“
Nýr skurður á hverju ári
Í áliti Umhverfisstofnunar kem-
ur fram að árlega síðustu ár hafi
verið grafinn skurður um 200
metra frá skála. Þar hafi úrgangi
verið veitt í og síðan mokað yfir
aftur og reynt hafi verið að grafa
ekki í sama skurð ár eftir ár. Við
skoðun á urðunarstað hafi komið í
ljós að nokkuð af ólífrænum úr-
gangi, svo sem blautþurrkur,
dömubindi og plastumbúðir hafi
skilað sér upp úr jarðvegi.
Seyra er vandi í
Hrafntinnuskeri
FÍ fær ekki að reisa nýtt skjólhús
Gæti leitt til fjölgunar ferðamanna
Tólf manna vinnuhópur á vegum
Ferðafélags Íslands fór í vinnu-
og frágangsferð í Hrafntinnusker
um helgina. Farið var með efni og
aðföng á fimm jeppum og tveimur
vörubílum með krana. Einnig
voru grafa og haugsuga með í för.
Mun fleiri komu að undirbúningi
ferðarinnar með margs konar efn-
isútvegun og snúningum.
Framan af var veðrið ágætt en
síðasta daginn kafsnjóaði, en ferð-
in stóð yfir frá fimmtudegi til
sunnudags. Eftir nokkurn barning
tókst þó að koma öllum bílum og
búnaði heilum heim, samkvæmt
upplýsingum Páls Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Ferða-
félagsins. Skálinn í Hrafntinnu-
skeri er í um 1.100 metra hæð.
Þrær voru tæmdar og seyra
urðuð samkvæmt samkomulagi
við sérfræðinga Umhverfisstofn-
unar, að sögn Páls. Pappír bindi
og rusl var flokkað frá og flutt til
byggða til förgunar. Tengingar
að hitaspíral voru endurnýjaðar
eftir bráðabirgðaviðgerð í vor.
Hlífðarkápur settar yfir rör og
tengingar og mokað yfir. Efni í
nýja og endurbætta vatnsveitu
var flutt á staðinn og einnig var
geymsluhús flutt þangað og kom-
ið fyrir, en þar er rafmagn og lýs-
ing. Eldra skjólhús á tjaldsvæði
var tekið og flutt í burtu en þakið
á því var brotið og gegndi það því
illa hlutverki sínu. Unnið var að
ýmsum viðgerðum og lagfær-
ingum á húsum og búnaði og öllu
rusli var safnað saman og flutt til
förgunar.
Ljósmynd/Páll Guðmundsson
Á Laugaveginum Húsakostur Ferðafélagsins í Hrafntinnuskeri í Friðlandinu að Fjallabaki er í um 1.100 metra hæð.
Barningur Á sunnudag snjóaði talsvert og kom grafan í góðar þarfir við að
moka í gegnum skafla og koma fólki og búnaði til byggða.
Vinnuferð í vetrarveðri