Morgunblaðið - 18.09.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Af öllu því fjölmarga semAstrid Lindgren var tillista lagt er ég ekki frá þvíað hennar helsti styrkur sé
hvernig hún skrifar um hugrekki.
Hvers vegna það er nauðsynlegt,
hvernig það birtist í breytni okkar og,
síðast en ekki síst, hvernig við temj-
um okkur það. Þess vegna er Lína
langsokkur fyrirmynd en Superman
til dæmis ekki; við dáumst að ofur-
kröftum og fögnum afrekunum sem
þeir vinna mögulega, en það er stað-
fastur ásetningur hennar að vera hún
sjálf og lifa á eigin forsendum sem
heillar öðru fremur, og sem við viljum
að börnin okkar tileinki sér. Svona
innan marka góðra siða að sjálfsögðu.
Þess vegna er Snúður líka okkar
maður í Nangijala. Í honum sjáum
við það undraeðli hugrekkisins birt-
ast skýrast þegar sá sem sýnir það
upplifir það ekki, en breytir engu að
síður rétt í erfiðum aðstæðum.
Og þess vegna er Ronja Matthías-
ardóttir kannski eindregnasta fyrir-
myndin í öllum þessum ótrúlega
sagnasjóði, þessu einstaka persónu-
galleríi. Þessar makalausu æfingar
hennar í að detta ekki ofan í Helvítis-
gjána, sem auðvitað geta ekkert farið
fram annars staðar en á barmi henn-
ar, og hljóta að fela í sér hættuna sem
forðast ber. Er ekki líka dásamlegt
að jafnvel ofvaxna barnið Matthías
skuli skilja þetta og hleypa dóttur
sinni út í skóginn, þrátt fyrir allar vel
þekktar hættur hans, með þau heil-
ræði ein að vopni að passa sig og
standa sig? Dramað hefst síðan þegar
þetta sama hugrekki sem Ronja hef-
ur fengið að byggja upp í glímunni við
náttúru og yfirnáttúru í skóginum
gefur henni kraft til að gera tvær
uppreisnir gegn föður sínum. Hafna
óréttlátum lífsháttum hans fyrst og
harðýðgi og yfirráðum svo. Gerir það
sem hún þarf að gera, því annars er
maður bara lítið skítseiði, eins og
Jónatan Ljónshjarta, bróðir hennar í
öðrum heimi, orðaði það svo eftir-
minnilega.
Þessi meginþráður sögunnar um
Ronju, togstreita dóttur og föður og
þróun sambandsins við Birki Borka-
son, er einstakur í höfundarverki
Lindgren, í það minnsta í fantasíu-
deildinni. Hann er líka kannski það
eina í þessum bókum sem er beinlínis
á heimavelli leikhússins. Skoðun á
samskiptum fólks. Þar skína líka
túlkendur helstu hlutverka í upp-
færslu Þjóðleikhússins að þessu
sinni. Útgeislun og óstýrlátur kraftur
Sölku Sólar Eyfeld þýðir að hún er
eins og sköpuð í titilhlutverkið og
samleikur þeirra Sigurðar Þórs Ósk-
arssonar í hlutverki Birkis er fallega
útfærður, hjarta sýningarinnar sem
slær af krafti fyrir allra augum. Það
gustar líka af Erni Árnasyni í hlut-
verki Matthíasar, en kemur nokkuð á
óvart hvað hann sýnir okkur lítið af
kjánanum og karlabarninu, sem gerir
Matthías svo hlægilegan og ég hefði
fyrirfram haldið að yrði grunntónn
túlkunar þessa tiltekna leikara. Eins
er lágstemmd hófstilling áhrifamikill
grunntónn í fallegri túlkun Eddu
Björgvinsdóttur á Skalla-Pésu (en af
hverju ekki Skalla-Petra?). Vigdís
Hrefna Pálsdóttir er síðan glæsileg
sem Lovísa, hin mynduga rödd skyn-
semi og heilbrigðrar hlýju í óstýrlát-
um og hávaðasömum karlaheimi
Matthíasarborgar. Því þetta er óneit-
anlega karlaheimur, þótt fáeinir ræn-
ingjar hafi undirgengist dramatúrg-
íska kynskiptaaðgerð, eins og tíðar-
andinn kallar sem betur fer á.
Leikhúsið blómstrar þegar það
stillir persónulegum átökum og sál-
rænum þroskaferlum upp fyrir fram-
an okkur. Það er hins vegar svo
margt annað sem þarf að gera skil í
þessari sögu sem leikhús á í brösum
með: Landslag og veður. Yfirnáttúru-
legar verur. Og svo auðvitað hinar
ógurlegu náttúruhamfarir sem verk-
ið hefst á. Bíótæknin getur þetta, en
hvorki hún né leiksviðið hafa samt
roð við ímyndunarafli lesandans. Hér
er öllu tjaldað til af tækni stóra sviðs-
ins: hringsviðið snýst, ljósaróbótarnir
sömuleiðis, flugkerfið þeytir skógar-
nornum um loftin blá og hljóðkerfið í
(fullmiklum) botni. Og já, Matthí-
asarborg klofnar með bauki og
bramli í upphafi sýningarinnar. Fáir
leikstjórar standa Selmu Björns-
dóttur á sporði við að halda stuðbolt-
anum á lofti og sýningin er keyrð
áfram af miklum krafti og gleði,
rækilega undirstrikað með stomp- og
fimleikainnblásnum dönsum Birnu
Björnsdóttur og Auðar B. Snorra-
dóttur. Samt læddist að þessum
áhorfanda sá grunur að með þessari
viðteknu nálgun barnastórsýninga
væri leikhúsið að heyja tapað stríð á
vígvelli keppinautarins. Leikhús
verður aldrei bíó. Ætli leiklausnir
sem virkja ímyndunarafl áhorfand-
ans myndu kannski virka betur en til-
raunir til að koma í staðinn fyrir það?
Gæti leikgerð sem setti samskipti
aðalpersónanna framar í forgangs-
röðina, gæfi tilfinningum og drama
meira pláss, náð sterkari tökum á
okkur?
Þetta er þriðja uppfærsla söng-
leiks Anninu Enckell og Sebastians á
íslensku atvinnusviði. Í leikskrá kem-
ur fram að fjölmargar aðrar leik-
gerðir séu til og að mínu mati er eng-
in ástæða til að festa þessa í sessi sem
einhvers konar klassík. Það er sagan
sem er sígild, ekki þessi tiltekna út-
færsla hennar. Það háir henni til
dæmis nokkuð hvað tónlist Sebast-
ians er óeftirminnileg og karakter-
laus. Það segir sína sögu að ekkert
laganna hefur fest sig á viðlíka hátt í
sameiginlegt tónminni okkar og titil-
lög leikgerðanna um Emil í Kattholti
og Línu. Það sem verra er: lögin eru
nánast öll almennir stemningar-
söngvar, óbundnir kringumstæðum
persónanna sem hefja upp raust sína
og vinna engan veginn vinnuna sína
sem hluti af sögunni, eins og söng-
leikjalög eiga að gera og er sterkasta
vopn formsins. Flutningur tónlistar-
innar er á hinn bóginn til mikils sóma
hér, bæði undirleikur og söngur.
Salka og Sigurður blómstra en þó
kannski öðrum fremur Vigdís
Hrefna, ekki síst í úlfasöngnum, eftir-
minnilegasta lagi verksins. Í fjör-
ugum hópsöngvunum hefði þurft að
gefa röddunum meira vægi í hljóð-
myndinni svo orðaskil heyrðust, jafn-
vel tempra líka óhóflegan hljóðstyrk-
inn. Mögulega hoppa aðeins minna.
Effektar og hljóðjafnvægi gerðu líka
rassálfum, skógarnornum og grá-
dvergum erfitt fyrir í sínum lögum,
en ungu leikararnir í þeim gervum
bættu það upp með kröftugri nær-
veru og frábærum hreyfingum.
Leikmynd Finns Arnars Arnar-
sonar er augnayndi mikið, rómantísk
og ríkulega skreytt og skapar ótal
leikrými í samspili við hringsvið og
lýsingu Ólafs Ágústs Stefánssonar og
nýtt af fimu öryggi af leikstjóranum.
Óhjákvæmilega kom skógurinn held-
ur illa út úr jafnvægislistinni við að
gefa ólíkum athafnasvæðum Ronju
rými. Eitt veglegt kirsuberjatré í
þrengslum milli kletta gefur eig-
inlega frekar tilfinningu fyrir snotr-
um lystigarði en dulmögnuðum skógi
með hættum og refilstigum við hvert
fótmál. Búningar Maríu Th. Ólafs-
dóttur styðja, líkt og kastalaveggir
Finns Arnars, hina viðteknu mynd af
þessum fortíðar- og fantasíuheimi
sem texti bókarinnar og myndir Ilons
Wikland hafa galdrað fram í huga
lesenda, kynslóð fram af kynslóð.
Í Ronju ræningjadóttur er öllu
vopnabúri stóra sviðsins tjaldað til,
sem sýnir virðingu hússins fyrir
yngstu skjólstæðingum sínum.
Mögulega hefði Þjóðleikhúsið mátt
fylgja fordæmi söguhetjunnar og
sýna meira hugrekki í efnistökum og
nálgun en það er þó enginn efi að þar
í salnum mun fjöldi barna skemmta
sér, taka andköf af spennu og ískra af
hlátri næstu mánuðina.
Kjarnakona verður til
Ljósmynd/Olga Helgadóttir
Virðing „Í Ronju ræningjadóttur er öllu vopnabúri stóra sviðsins tjaldað til,
sem sýnir virðingu hússins fyrir yngstu skjólstæðingum sínum.“
Þjóðleikhúsið
Ronja ræningjadóttir bbbmn
Eftir Astrid Lindgren. Leikgerð: Annina
Enckell. Tónlist og söngtextar: Sebast-
ian. Þýðing leiktexta: Þorleifur Hauks-
son. Þýðing söngtexta: Böðvar Guð-
mundsson. Leikstjórn: Selma Björns-
dóttir. Tónlistarstjórn og útsetningar:
Hjörtur Ingvi Jóhannsson. Danshöf-
undar: Birna Björnsdóttir og Auður B.
Snorradóttir. Leikmynd: Finnur Arnar
Arnarson. Búningar: María Th. Ólafs-
dóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson.
Myndband: Ingi Bekk. Hljóðmynd: Aron
Þór Arnarsson og Kristinn Gauti Einars-
son. Leikarar: Salka Sól Eyfeld, Sig-
urður Þór Óskarsson, Örn Árnason, Vig-
dís Hrefna Pálsdóttir, Baldur Trausti
Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Oddur Júlíusson, Bjarni
Snæbjörnsson, Þórey Birgisdóttir, Björn
Ingi Hilmarsson, Sölvi Viggósson Dýr-
fjörð og fleiri. Frumsýning á Stóra sviði
Þjóðleikhússins 15. september 2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
New York City-ballettflokkurinn
rak um helgina tvo af helstu karl-
dönsurum flokksins eftir að þeir
voru nefndir í ákæru konu sem sak-
ar þriðja dans-
arann, sem hafði
þegar sagt upp
hjá flokknum,
um að hafa
dreift á netinu
póstum með
ósæmilegum
myndum af
henni.
Í yfirlýsingu
dansflokksins
segir að rétt hafi
verið talið að
segja mönnunum upp eftir að at-
hæfi þeirra var kannað og metið
sem svo að það væri slæmt fyrir
orðspor flokksins, þótt athæfið,
óleyfileg dreifing mynda af konu
sem þriðji dansarinn var þá í tygj-
um við, hafi átt sér stað utan vinnu-
tíma. Í frétt The New York Times
segir að málið þyki afar alvarlegt
fyrir dansflokkinn en vegna upp-
sagnanna séu nú þrír af fjórtán að-
alkarldönsurum hans horfnir á
braut en aðeins vika sé í að sýn-
ingatímabilið hefjist.
Annar dansarinn, Amar Ramas-
ar, er ein af skærustu stjörnum
New York-ballettsins. Þeir Zachary
Catazaro, hinn dansarinn sem sagt
var upp, hafa ekki neitað ásökun-
unum en segja athæfið, sem þeir
harmi, þó ekki koma dansflokknum
við og mun stéttarfélag þeirra taka
að sér vörn þeirra fyrir dómi.
Dönsurum sagt
upp í New York
Heimili dans-
flokksins í Lincoln
Center.
Þessa dagana stendur yfir í Lyon í
Frakklandi tveggja vikna rómuð
danshátíð sem haldin er þar á
tveggja ára fresti. Á sunnudaginn
var einn af hápunktum hátíðarinnar,
skrúðganga danshópanna sem sýna í
borginni, og var gengið, eða dansað,
undir þemanu „friður“ – allt að 5.000
dansarar tóku þátt í göngunni.
Lokahluti göngunnar var samstillt
dansverk eftir Yoan Bourgeois við
lag Johns Lennons, Imagine.
Rúmlega fjörutíu danshópar víðs-
vegar að úr heiminum sýna á tvíær-
ingnum í Lyon og eru sýningar
þeirra settar upp í allrahanda húsa-
kynnum, á danssviðum sem í yfir-
gefnum verksmiðjum, á torgum sem
í verslunum. Kastjósinu er beint að
ýmsum tegundum danslistar, djass-
dansi sem sirkusdansi, samtíma-
dansi sem ballett.
AFP
Friðardans Á sunnudag fóru dansarar hópanna sem sýna í Lyon og fleiri til
í skrúðgöngu – eða skrúðdans – um borgina þar sem þemað var friður.
Allrahanda dans-
sýningar í Lyon
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 20/9 kl. 20:00 57. s Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s
Fös 21/9 kl. 20:00 58. s Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s
Besta partýið hættir aldrei!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 3. s Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 9. s
Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s
Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Lau 29/9 kl. 20:00 8. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 Frums. Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s
Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s
Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Fim 11/10 kl. 20:00 10. s
Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Fös 12/10 kl. 20:00 12. s
Velkomin heim, Nóra!
Elly (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s
Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s
Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s
Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s
Síðasta uppklappið.
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is