Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 6
unglingsárum með mót- orhjóladellu og svo hefur þessi bíladella undið upp á sig. Snapchattið byrjaði á næturvöktum Garðar er með marga fylgj- endur á Snapchat. Hann segir að glugginn inn í þann heim hafi opnast fyrir tæplega fjórum ár- um þegar hann var á næt- urvöktum ásamt félaga sínum. „Þetta hófst á næturvöktum á bílaleigu. Við vorum mikið að sprella að næturlagi í vinnunni og þetta spurðist út og fólk fór að fylgjast með okkur. Svo óx þetta hratt og svo var þetta Snapchat-samfélag orðið risa- stórt. Ætli ég sé ekki með um 15.000-20.000 fylgjendur.“ Garðar segist vera miklu prúðari núna en þegar þeir félagarnir byrjuðu á Snapchat. „Ég var miklu verri í upphafi. Þegar þetta stækkaði þurfti ég að fara að taka tillit til fólks og vera ekki að særa það. Maður reynir að haga sér vel. Ég er alveg gagnrýndur, en ég reyni að vera alltaf á góðu nótunum. Ekki vera með ruddaskap. Það hef- ur hjálpað mér að haga mér betur.“ Ertu í draumastarfinu eða myndir þú vilja vera í öðru starfi? „Mig hefur alltaf langað til að vinna við eitthvað tengt ferðalögum og svo væri ég alveg til í að vera í vinnu sem tengdist skemmtanaiðnaðinum eins og til dæmis að vinna í út- varpi, vera fararstjóri eða skemmtanastjóri.“ Hann fylgist vel með útvarpinu því hann hlustar mikið á það í vinnutímanum. „Ég hef mest gaman af viðtölum við tónlistarmenn og fleira í þeim dúr.“ Aðspurður hvað hann geri í frítíma sínum kemur í ljós að fjölskyldan hans skiptir hann miklu máli. „Konan mín og börnin eru besti félagsskapurinn. Svo finnst mér gott að hafa einhverja gulrót handan við horn- ið. Ég lifi fyrir þá hluti,“ segir hann. Garðar er virkur á In- stagram og Snapchat. Notendanafn hans á In- stagram er iceredneck. „Svona krónísk bíla- della er ólæknandi“ D agsdaglega er ég í bílaflutningum fyrir bílaleigu. Ég hef verið í þessari vinnu í þrjú ár, en fyrir þann tíma vann ég annars staðar í sjö ár. Þá vann ég á öðrum flutningabílum eða við malarflutninga,“ segir hann en hann var í kringum 22 ára þegar hann tók meirapróf. Hann leiddist út í starfið vegna þess að hann hefur sérlegan áhuga á bílum, vörubílum og bara öllum tækjum og tólum. Í dag keyrir hann um á Mercedes Benz og segir hann að bíll- inn sé alveg ágætur þótt hann hafi ekki valið bílinn sjálfur. Dagarnir á trukknum geta verið langir og strangir en í þessu starfi er unnið í öllum veðrum. „Ég er ekki „steddí“ í bílaflutningum á þessum stóra bíl. Upp á síðkastið hef ég verið svolítið í því að sækja bilaða bíla. Þá byrjar dagurinn klukkan fimm á morgnana og stendur yfir í tólf tíma,“ segir hann. Hann segir að starfið geti ver- ið erfitt, sérstaklega í vondum veðrum. „En svona í heild er þetta alveg ágætt.“ Þegar Garðar er spurður út í bíla- delluna kemur í ljós að hann er alveg fársjúkur af henni. „Ég er fársjúkur bílaáhugamaður. Ég er með mikla aðdáun á tækjum og tólum, hrað- skreiðum bílum og allt sem tengist bíladellu finnst mér spennandi. Ég hef alltaf verið svona, ég þekki ekkert annað. Svona krónísk bíladella er ólæknandi.“ Spurður um eigin farartæki kemur í ljós að Garðar skiptir mikið um bíla. „Ég skipti mjög ört um bíla. Oft á ég líka nokkra í einu. Ég hef stundað það að kaupa lask- aða bíla og gera þá upp. Ég er ekki með neina menntun í bílaviðgerðum. Ég er sjálflærður í þeim. Þetta byrjaði á Garð ar Vi ðars son tók m eirap rófa þega r han n var 22 á ra. Garðar Viðarsson eða Snapchat-stjarnan Gæi keyrir trukk fyrir Blue Car Rental. Hann er alinn upp í Njarðvík þar sem hann býr í dag ásamt fjölskyldu sinni. Garðar segist hafa leiðst út í starfið vegna ólæknandi bíladellu. Marta María mm@mbl.is Garðar Við- arsson - Gæi Garðar elskar bíla og tryllitæki og er frekar lunkinn í að gera upp laskaða bíla. Vinnan við bílaflutn- ingana getur verið erfið í brjáluðum veðrum. „Mig hefur alltaf langað til að vinna við eitt- hvað tengt ferðalögum og svo væri ég al- veg til í að vera í vinnu sem tengdist skemmtanaiðn- aðinum eins og til dæmis að vinna í útvarpi, vera fararstjóri eða skemmt- anastjóri.“ 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.