Morgunblaðið - 21.09.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 21.09.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Reki ehf Höfðabakka 9 110 Reykjavík Sími: 562 2950 Fax: 562 3760 E-mail: bjorn@reki.is Vefsíða: www.reki.is Reki ehf. er stoltur umboðsaðili fyrir Donaldson á Íslandi. Eigum hverskyns síur fyrir flest tæki til lands og sjávar. Reynslu- bolti með 50 ár að baki Hjalta Samúelsson ættu margir að þekkja sem komið hafa að vinnuvélum með einum eða öðrum hætti en hann býr að yfir fimmtíu ára ýtureynslu. Nína Guðrún Geirsdóttir /ninag@mbl.is CAT D5B árg. 1979. Keypt af ræktunarsambandi Naut- eyrar- og Snæfjallahrepps 1985. Hjalti breytti tönninni í fjölskekkitönn. H jalti hefur unnið við jarðvinnu um nær allt land og starfað á ýtu frá því hann var 17 ára gamall eða allt frá árinu 1962. Á svo löngum ferli er frá mörgu að segja og vinnuumhverfið vitanlega breyst jafnt og þétt að sögn Hjalta. „Í þessu hafa orðið breytingar eins og gengur. Helsta breytingin er sú að ferlið í dag er allt sjálf- virkara. Gps-tæknin hefur gjörbreytt þessari vinnu, áður fyrr voru ýturnar beinskiptar og miklu erfiðari í stjórnun. Svo þegar „power“-skiptingin kom fram á sjónarsviðið og tók við af gírstöngunum varð mun auðveldara að stjórna. Ég á til dæmis nýja vél sem er keypt í fyrra og hún skiptir sér sjálf upp og niður eftir álagi og hefur marga gíra upp á að bjóða. Einnig hefur hún mengunarbúnað sem gerir vél- ina umhverfisvænni. Þrátt fyrir þetta er vinnan alltaf sú sama.“ Auk þess þótti Hjalta mikil búbót í Jersey-dreifara sem hann hefur notað í 25 ár. „Vegagerðin keypti þetta tæki 1993 og ég notaði það í vinnu minni á fimmtáninum um tíma. Svo keypti ég dreifarann af Vegagerðinni og hef breytt honum mikið í gegnum tíðina og sett á hann gps- vélstýringu.“ Ýtuferill Hjalta hófst með sumarstarfi 4. júní árið 1962 þar sem hann vann við að slétta tún hjá bændum víða við Ísafjarðardjúp en í dag má líklegast enn sjá verk hans á þeim slóðum. Að hans sögn voru ýtur að miklu leyti í eigu ræktunarsambanda á þeim tíma. „Ræktunarsamband Djúpmanna keypti D6-vélina árið 1955 fyrir bændur og í vegagerð og var það fyrsta vélin sem ég vann á. Þessi vél sem ég byrja að vinna á var köll- uð Pálína Bjarnadóttir, sem var vísun í þá Pál í Þúfum og Bjarna í Vigur en þeir voru framámenn í Djúpinu og stóðu framarlega í því að fá þessa vél keypta árið 1955. Tveir bræður mínir höfðu unnið á henni, annars vegar Sigurjón og svo tók Sigurbjörn við af honum og ég svo af Sigurbirni. Ég hef ekki hætt síðan.“ Eftir að Ræktunarsamband Djúpmanna skiptist í tvennt keypti Ræktunarsamband Ögurs og Reykjafjarðarhrepps DTD20-vél árgerð 1963. Segir Hjalti að lítið hafi verið um verkefni fyrstu sumrin og umrætt ræktunarsamband því ákveðið að selja vélina. Hann gerir tilboð í vélina ásamt tveimur samstarfsmönnum og eignast þar með sína fyrstu ýtu árið 1969. „Þá fer ég að gera þetta út af alvöru og keypti fljótlega út einn af þessum samstarfsmönnum mín- um.“ Hjalti hefur alls átt átta ýtur yfir ævina en önnur ýtan sem hann eignaðist var International TD 15 árið 1977 eða „fimmtáninn“. „Þá ýtu keypti ég af Ræktunarsambandi Vestur-Húnvetninga árið 1977 en það var International TD 15C og er árgerð 1973. Þá ýtu á ég enn þann dag í dag og er hún enn í fullri notkun og hefur reynst mér gríðarlega vel.“ Síðustu þrjár ýtur sem hann hefur keypt eru nýjar Caterpillar D6N. Hjalti hefur mikið starfað nálægt heimahögunum og var hann m.a. einn af þeim sem unnu við gerð Djúp- vegarins um Ísafjarðardjúp í upphafi 8. áratugarins. „Þar komu margir ýtumenn við sögu; margar ýtur og mikið verk. Það var þónokkuð miðað við þann tíma og var þar unnið allan sólarhringinn.“ Leitin að týndu ýtunni Hjalti segir að í gegnum tíðina hafi ýmislegt komið upp á á ýtunni en hann hafi blessunarlega aldrei orðið fyrir slysi „Þetta er ennþá gam- an svo að ég held áfram, þó að aldurinn sé farinn að hækka.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.