Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 eða lent í háskalegum uppákomum. „Þó man ég eftir einu eftirminnilegu atviki á Norðausturlandi. Eftir að vinnu við Raufarhafnarveg árið 2010 lauk var ég fenginn til að laga veiðimannaveg uppi á Hólaheiði fyrir veiðifélag Ormarsár. Þegar þessu verki hafði miðað vel og lítill hluti þess var eftir bilaði sexan og vildi ekki fara í gang aftur, ljóst var að það þurfti að fá varahluti í vélina, sem tók sex vikur að þessu sinni en venjan er að þeir komi daginn eftir að þeir eru pantaðir. Þegar svona ófyrirséð bilun verður velur maður ekki stað til að leggja vélinni, en hún stoppaði í all- nokkurri laut í landinu. Þegar átti að fara að setja vara- hlutinn í vélina var heiðin slétt snjóbreiða og enginn gps- punktur til af staðnum sem sexan var á. Þegar leitarmenn frá Björgunarfélagi Raufarhafnar fundu hana á öðrum degi leitarinnar var hún að mestu hulin snjó en aðeins sást í smáblett á húsinu og gps-rör á tönninni.“ Skapandi og skemmtileg vinna Hjalti segir að fyrst og fremst hafi hann áhuga á vinnunni sem gerir hana skemmtilega. Hann segist ekki gera upp á milli verka en í hverju verki sé lokasprett- urinn skemmtilegastur. „Ég hef gaman af því að klára og ljúka við verkin, það er skemmtilegast þegar þetta er að komast á loka- skeið. Þessi vinna er yfir höfuð skemmtileg. Maður er alltaf að skapa eitthvað. Það er ekki nokkur leið að láta sér leiðast. Ég kann líka vel við það að vera einn einhvers staðar, ég hef til dæmis opnað Kollafjarðarheiði nærfellt undanfarin 30 ár og hef gaman af vormokstri í blíðskaparveðri.“ 73 ára í fullu fjöri Hjalti hefur víða komið við á löngum ferli og komið að verkefnum um allt land. „Suðausturhornið hefur að mestu sloppið. Ég hef ekkert komið að verkum frá Búðarháls- virkjun að Vopnafirði á suðausturhorni landsins. En þetta eru allt tilviljanir hvar maður lendir,“ útskýrir Hjalti. Verkefnin eru ennþá næg en í sumar starfaði hann um tíma í Fnjóskadal þar sem nýjasta vél hans er í dag. Einn- ig hefur hann verið í Hvolsdal og starfar hann á fimmtán- inum í Lundarreykjadal í dag. Hjalti áætlar að halda áfram ýtustörfum svo lengi sem hann getur. „Þetta er ennþá gaman svo að ég held áfram, þó að aldurinn sé farinn að hækka.“ International TD15c árg. 1973 með Jersey-dreifara og viðbættum gps- búnaði.Vélin var keypt af Ræktunarsambandi Vestur- Húnvetninga árið 1977 og hefur reynst afar vel í gegnum tíðina. Svona var umhorfs á Hólaheiði í nóv. 2010. Á endanum var jarðýta fengin til að sækja ýtuna. „Í þessu hafa orðið breyt- ingar eins og gengur. Helsta breytingin er sú að ferlið í dag er allt sjálfvirk- ara. Gps-tæknin hefur gjörbreytt þessari vinnu, áður fyrr voru ýturnar beinskiptar og miklu erf- iðari í stjórnun.“ Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.