Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 23 TRÉSMÍÐAVÉLAR Vélar fyrir atvinnumenn og handverksfólk Yfir 40 ára frábær reynsla á Íslandi Rennibekkur Lata Verð 139.800,- Tifsög Deco-flex Verð 35.660,- Lykilverslun við Laugaveg – Áratuga þekking og reynsla Opið virka daga 9-18 laugardaga 10-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is pónsuga 2 stærðir Verð frá 89.800,- Slípivél BTS800 Verð 38.490,- Súluborvél 2 stærðir Verð frá 25.770,- Smergill BG150 Verð 17.980,- Sambyggð vél Combi 6 Verð 239.800,- SRennibekkur DMT 460 Verð 58.190,- Iðnaðarsuga HA1000 Verð 21.520,- Bandsög 2 stærðir Verð frá 45.150,- Slípivél OSM100 Verð37.520,- Ný vefverslun brynja.is Borðsög TS310 Verð 73.600,- Borðsög HS120 TILBOÐ 55.480,- Hefill HMS850 Verð frá 54.870,- Landspítalanum við Hringbraut er líka í þessum flokki.“ Hann bendir á að síðastliðin ár og áratugi hafi vitund í öryggis- og gæðamálum aukist mikið þótt enn sé töluvert starf óunnið þar. „Meira er unnið í undirverktöku nú en var áður. Er það bæði vegna þess að innlendir að- ilar sjá sér hag í því en einnig eru stofnuð fyrirtæki í kringum aðkomu erlenda vinnu- aflsins til landsins. Fasteignafélög eru orðin stórir verkkaupar á markaðnum, sem er breyting frá því sem var,“ segir Sigurður. Hafa tækniframfarir mikil áhrif á bygging- arbransann? „Já, en byggingariðnaðurinn er íhalds- samur iðnaður í eðli sínu og innan hans verða engar stökkbreytingar.“ Hann segir að töluverðar framfarir hafi orðið við hönnun mannvirkja og má rekja þær að mestu til hönnunar í tölvugeiranum þar sem vélbúnaður og hugbúnaður hefur tekið stórstígum framförum auk þess sem snjalltækjatæknin hefur hafið innreið sína. Aðgengi að bættum upplýsingum og þrívídd- argögnum hjálpar til við framleiðsluna. „Meiri verksmiðjuframleiðsla er nú en áður var, til dæmis í gluggasmíði, stigum, svölum og baðherbergjum. Einingahús (gámahús) eru nú að ryðja sér til rúms meir og meir á markaðnum sem varanlegt húsnæði eftir að hafa í gegnum tíðina mest þjónað sem bráða- birgðahúsnæði. Gámarnir eru þá settir saman og mynda eina heild og ómögulegt er að sjá að lokum að um einingahús sé að ræða,“ segir hann og bætir við: „Töluverðar framfarir hafa átt sér stað í vélstýringum á tækjum þar sem með hjálp gps-tækninnar geta þau unnið sjálfstæðar og óháðari landmælingum en áður. Í landmæl- ingum hefur einnig orðið umbylting á síðustu 20 árum með tilkomu gps-tækninnar. Upp- steypa mannvirkja hefur tekið mjög litlum breytingum síðastliðna áratugi en uppsláttur, járnabinding og niðurslögn steypu er nánast eins og hún var fyrir áratugum.“ Hvaða tækninýjung hefur bætt starfsum- hverfið hvað mest í þessum geira? „Sé horft áratugi aftur í tímann er það lík- lega tilkoma krana á vinnustað sem hefur breytt hvað mestu en þeir eru lykiltæki í allri framleiðslu á byggingarstað. Sé litið skemmra aftur í tímann eru það líklega fram- farir í öryggismálum sem hafa bætt starfsum- hverfi hvað mest. Fyrir 50 árum þekktist ekki að notaðir væru hjálmar á byggingarstöðum en nú eru þeir nánast staðalbúnaður ásamt öryggisskóm, öryggisgleraugum, sýni- leikafatnaði og fallvarnarbeltum.“ Nú er verið að þróa hugbúnað fyrir sjálf- keyrandi bíla. Mun það líka gerast í vinnu- vélaheiminum? „Já, með stöðugt bættri tækni í vélstýringu vinnuvéla, sem getið er að framan, er ekki nokkur vafi á því að við munum sjá vinnu- vélar grafa skurð frá A til B án stýringar af hálfu mannshandarinnar svo dæmi sé tekið.“ Morgunblaðið/HariMorgunblaðið/RAX Sigurður segir að kranar hafi markað tímamót í byggingariðnaðinum. Svona leit Reykjavík út árið 2009.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.