Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Ó
neitanlega er ákveðinn sjarmi yfir starfi Hrólfs Sum-
arliðasonar og starfsmanna hans hjá Blaðadreifingu ehf. Þeir
leggja af stað fljótlega eftir að fyrstu dagblöðin koma úr
prentvélunum og aka vítt og breitt um suðvesturhornið á með-
an aðrir sofa.
„Maður upplifir mikið frelsi á bak við stýrið á þessum tíma sólarhringsins.
Starfið er flókið og krefjandi, en Blaðadreifing hefur yfir að ráða mjög góðu
og hæfu starfsfólki sem kann sitt fag vel: það þarf að ljúka við ákveðið verk-
efni, koma blöðunum á sinn stað, og þegar ekið er um miðja nótt er upplif-
unin eins og að vera einn í heiminum. Vegirnir eru auðir og á sumrin sér
maður náttúruna í allri sinni dýrð en á veturna eru það norðurljósin sem
lýsa upp leiðina,“ segir Hrólfur.
Blaðadreifing tekur að sér dreifingu flestra dagblaða og tímarita sem gef-
in eru út á Íslandi og hefur á að skipa flota sendibíla frá Mercedes-Benz.
Dreifing Morgunblaðsins er veigamesti hluti starfseminnar en fyrstu blöðin
leggja af stað úr prentsmiðjunni fljótlega eftir miðnætti. „Við tökum allt höf-
uðborgarsvæðið, Suðurnesin, Suðurlandið alla leið að Hvolsvelli og allt upp
að Flúðum og Laugarvatni ásamt því að koma blöðum á Aust- og Vestfirði í
flug,“ útskýrir Hrólfur en koma þarf blaðinu til blaðbera á öllum tímum árs,
sama hvernig viðrar.
Verða að ráða við krefjandi færð
Það er vegna misjafnrar færðar að vetri til sem Hrólfur hefur einkum
reitt sig á Mercedes-Benz Vito því auk þess að vera hæfilega stór er Vitoinn
með fjórhjóladrifi. „Að hafa fjórhjóladrif breytir öllu enda er yfirleitt ekki
byrjað að moka snjó af götum fyrr en skömmu áður en morgunumferðin fer
af stað. Aðstæður á vegum geta því verið mjög krefjandi og kemur fjór-
hjóladrifið í veg fyrir að bílarnir festist, tefjist og þurfi aðstoð. Yfir vetr-
armánuðina erum við alltaf með hjálparbíl í viðbragðsstöðu til að draga bíla
lausa en undanfarin tvö ár höfum við ekki þurft á honum að halda enda
sendibílarnir okkar ráðið vel við vetrarveðrið.“
Hrólfur íhugar núna að bæta Sprinter-sendibílum við flotann og þykir til-
hugsunin spennandi enda Mercedes-Benz Sprinter stærri og á margan hátt
fjölhæfari en Vito. Hann segir Sprinterinn hingað til hafa haft þann veik-
leika að vera afturhjóladrifinn en nú sé von á nýrri kynslóð með fram-
hjóladrifi sem á eftir að gjörbreyta aksturs- og notkunareiginleikum bílsins.
„Með framhjóladrifi má segja að bíllinn fari mun lengra en auk framdrifsins
er Sprinterinnn búinn fullkominni spólvörn og mjög erfitt að festa hann þótt
mikill snjór sé á vegum.“
Hrólfur segist halda tryggð við Mercedes-Benz því þótt þessir þýsku
gæðabílar séu dýrari en sumir aðrir sendibílar sem finna má á markaðinum
hafi þeir ótvíræða kosti sem borga sig fyrir rekstur fyrirtækis eins og Blaða-
dreifingar. „Það fyrsta sem maður finnur er hvað þeir eru þægilegir í akstri
og stundum stelst ég til að fara á Sprinter eða Vito frekar en fjölskyldubíln-
um ef ég þarf að skjótast eitthvað. Fjöðrunin er mjúk, mikill kraftur í vél-
inni, farþegarýmið hljóðlátt og öll þjónusta við viðskiptavini umboðsins til
fyrirmyndar. Ég hef reynt ýmsar aðrar tegundir en sný alltaf aftur til Benz
á endanum.“
Sá muninn í Portúgal
Hrólfur fékk að prufukeyra Sprinter á kynningu sem haldin var í Portó í
Portúgal fyrr á árinu. „Þangað mættu kaupendur víða að úr heiminum og
fengu að kynnast eiginleikum bílsins. Til samanburðar var hægt að aka
fimm gerðum af sambærilegum sendibílum frá öðrum framleiðendum og var
himinn og haf á milli þeirra og nýja Sprintersins,“ segir Hrólfur. „Með nýrri
hönnun, breyttri staðsetningu vélar og fjöðrunarbúnaði úr glertrefjum hef-
ur m.a. tekist að breikka og lækka gólfið í bílnum án þess að lækka öxulhæð-
ina svo að auðveldara er að lesta bílinn og stíga upp í hann. Þá er hægt að
búa Sprinterinn fullkomnustu tækni sem t.d. grípur inn í þegar fjarlægðin í
næsta bíl er of lítil og hægir bíllinn þá ferðina eða bremsar jafnvel. Þá er
hægt að tala við leiðsögukerfið og gaman að geta einfaldlega spurt bílinn
hvar megi finna næsta matsölustað eða bensínstöð.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Þegar ekið er um miðja nótt er upplifunin eins og að vera einn í heiminum. Vegirnir eru auðir og á sumrin sér
maður náttúruna í allri sinni dýrð en á veturna lýsa norðurljósin upp leiðina,“ segir Hrólfur.
Blaðið þarf að
skila sér sama
hvernig viðrar
Hrólfur hjá Blaðadreifingu er tryggur við-
skiptavinur Mercedes-Benz og bindur miklar
vonir við nýja Sprinterinn.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Þegar starfsmenn Blaðadreif-
ingar ehf. halda af stað með ný-
prentuð dagblöðin stimpla þeir
sig inn í dreifingartölvu Morg-
unblaðsins og geta umboðs-
menn og blaðburðarfólk þannig
fylgst betur með hvernig dreif-
ingin gengur. Hrólfur segir dreif-
inguna ganga mjög skipulega
fyrir sig og hægt að nota brott-
farartímann frá prentsmiðjunni til
að reikna út af töluverðri ná-
kvæmni hvenær blöðin eru
væntanleg á hvern afhending-
arstað.
Veðrið getur þó sett strik í
reikninginn og ökumenn Blaða-
dreifingar gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að áskrifendur
geti lesið Morgunblaðið við
morgunverðarborðið eins og
þeir eru vanir, sama þótt snjón-
um kyngi niður. Hrólfur segir
það stundum koma fólki á óvart
að blaðið hafi komið inn um lúg-
una um morguninn ef mikið
vonskuveður hefur verið um
nóttina. „Það gerðist t.d. fyrir
nokkrum árum að Hellisheiðin
varð ófær, svo ég sæti lagi og
fer til Keflavíkur og ek þaðan
Suðurstrandarveginn. Þar hafði
þurft að losa stóran bíl og snjó-
gröfur hreinsuðu veginn, og
slepp ég þar í gegn, kem blöð-
unum á Þorlákshöfn, alla leið til
Hvolsvallar og enda svo í Hvera-
gerði og sé fram á að þurfa að
gista þar um nóttina. Nema
hvað svo tekst að opna heiðina
um stund um miðja nótt, svo ég
komst beinustu leið heim áður
en leiðin tepptist aftur.“
Viðbrögð íbúa á svæðinu létu
ekki á sér standa á samfélags-
miðlum. „Fólk var gáttað á að
blaði skyldi berast, enda var
heiðin lokuð þegar það fór að
sofa og ennþá lokuð þegar það
vaknaði um morguninn. Áskrif-
endur skildu ekkert í þessu og
sumir héldu hreinlega að Davíð
Oddsson sjálfur hlyti að hafa
flutt blaðið með hugaraflinu.“
Morgunblaðið/Ómar
Stundum þarf að snúa á veðrið