Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Bernhard - Honda á Íslandi Vatnagörðum 24 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.honda.is Umboðsaðilar: Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800 • Bílver, Akranesi, sími 431 1985 Höldur, Akureyri, sími 461 6020 • Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 VERÐ KR. 1.690.000 4X4 • AFLSTÝRI • DCT SJÁLFSKIPT SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN • VATNSKÆLT TRX420FA6 Veður víða um heim 21.9., kl. 18.00 Reykjavík 5 léttskýjað Bolungarvík 3 alskýjað Akureyri 4 rigning Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 12 skúrir Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 20 heiðskírt Lúxemborg 14 léttskýjað Brussel 15 heiðskírt Dublin 13 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 15 skýjað París 18 heiðskírt Amsterdam 14 skúrir Hamborg 15 skúrir Berlín 15 rigning Vín 26 heiðskírt Moskva 20 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 25 heiðskírt Winnipeg 9 skýjað Montreal 16 skúrir New York 19 alskýjað Chicago 23 skýjað Orlando 30 skúrir  22. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:12 19:30 ÍSAFJÖRÐUR 7:16 19:36 SIGLUFJÖRÐUR 6:59 19:19 DJÚPIVOGUR 6:41 19:00 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Suðvestlæg átt, 3-8 m/s og smá skúrir sunnan- og vestanlands, en annars léttskýjað. Hiti kringum frostmark norðaustantil, en annars 2 til 7 stig að deginum. Hæg norðlæg átt og víða bjartviðri, en 5-10 m/s og skúrir eða él eystra. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á Suðausturlandi og frystir víða í kvöld. Niðurrif á reit Sementsverksmiðj- unnar á Akranesi, sem var reist á árunum 1956 til 1958, stendur yfir. Niðurrifinu á að ljúka fyrir 1. októ- ber næstkomandi. Sementstankarnir stóru munu standa áfram. Einnig voru hug- myndir um að sementsstrompurinn, 68 metra hár, fengi að standa, en hann hefur í hugum margra verið tákn Akraness. Hins vegar sam- þykktu 94% íbúa Akraness í ráðgef- andi kosningu að strompurinn skyldi felldur. Bæjarstjórn Akra- ness samþykkti á dögunum sam- hljóða tillögu þess efnis. Skipulags- stofnun hefur nú staðfest að niðurrif sé heimilt. Á næstu vikum verður klárað að semja um niðurrif strompsins og þá mun liggja fyrir hvenær það mun eiga sér stað, að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra. Íbúðabyggð mun rísa á Sementsreitnum þegar fram líða stundir. sisi@mbl.is Sér fyrir endann á niðurrifi mannvirkja á Sementsreitnum á Akranesi Heimilt að rífa stóra strompinn Morgunblaðið/Eggert Sementsreiturinn Stompurinn stóri gnæfir yfir reitinn en önnur mannvirki eru að mestu horfin. Áætlað er að það muni taka mánuð að rífa strompinn. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Alls hafa 43 karlar og konur sótt meðferðarúrræði Heimilisfriðar á fyrstu sex mánuðum ársins. Um er að ræða meðferð- arúrræði fyrir einstaklinga sem beita ofbeldi í nánum sambönd- um en Heimilis- friður undirritaði samstarfssamn- ing við velferðar- ráðuneytið í fyrradag. Andrés Ragn- arssonar sál- fræðingur stofnaði til úrræðis fyrir gerendur heimilisofbeldis, ásamt Einari Gylfa Jónssyni sálfræðingi, fyrir um 20 árum en Heimilisfriður hét áður Karlar til ábyrgðar. „Það sem við erum í rauninni að gera er að forrita tölvuna upp á nýtt. Við þurfum að breyta hugs- unargangi, viðhorfi, hvernig þú tal- ar og hvernig þú hagar þér og sér- staklega í því sem við köllum ögrandi aðstæður. Þannig það er okkar hlutverk að kenna þeim nýj- an máta til að bregðast við,“ segir Andrés í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er sálfræðileg meðferð sem er langtíma meðferð. Menn eru hérna yfirleitt lengi þó það séu auð- vitað undantekningar frá því en við viljum gjarnan hafa fólk lengi.“ Ofbeldið hefur áhrif á börnin Meðferðin er ætluð þeim sem beita maka sinn ofbeldi. Spurður hvort þeir sem beita börn sín of- beldi geti sótt úrræðið segir Andrés ofbeldi gegn maka og börnum oft haldast í hendur. „Það er náttúru- lega þannig að mjög oft blandast það. Það er slatti af fólki sem hefur bara beitt maka sinn ofbeldi en aðr- ir sem hafa gert hvort tveggja. Það er hins vegar undantekningalaust þannig að þeir sem hafa beitt of- beldi á heimilum hafa alltaf alvarleg áhrif á börn. Alveg sama hvort þau verða vitni að því, verða fyrir því sjálf eða hafa aldrei séð það og bara búið á heimilinu þá eru afleiðing- arnar alvarlegar fyrir starfsemi og líf barna.“ Nú starfa fimm sálfræðingar hjá Heimilisfriði, fjórir á höfuðborgar- svæðinu og einn á Akureyri. Í þeirri tölu er Einar Gylfi, einn stofnenda Heimilisfriðsar talinn með en hann hefur þó verið að draga sig til hlés vegna hás aldurs. Einn sálfræðing- ur sér um makaviðtöl og hefur að- setur á öðrum stað en þar sem unn- ið er með gerendur. „Við erum að gæta þess að makar þeirra fara í viðtöl annað. Það eru ákveðin ör- yggisjónarmið í því og við reynum að sjá til þess að þau hittist ekki í þeim tilvikum.“ Tilvísanir algengari en áður Andrés segir að breytt verklag lögreglu og félagsmálayfirvalda fyrir tveimur og hálfu ári síðan hafi leitt til þess að fleiri koma í með- ferð með tilvísun, ábendingu eða jafnvel vegna þrýstings frá barna- verndarnefndum, félagsmálayfir- völdum eða lögreglu. „Áður fyrr var stærsti hópurinn þeir sem vildu gera eitthvað í sínum málum. Núna er sá hópur um 20 til 30% en það er oft mikilvægur hópur því það er sá hópur sem er að koma snemma í ferlinu. Hefur kannski beitt ofbeldi einu sinni og vill alls ekki verða eins og pabbi sinn og mamma sín.“ Hann segir mikilvægt að fá fólk sem fyrst inn því þá er líklegra að árangur náist. Háskóli Íslands gerði veigamikla rannsókn árið 2014 á árangri Heimilisfriðar og fyrri úrræðum þar sem kom í ljós að í nær öllum tilfellum gengur mjög vel að uppræta líkamlegt of- beldi. „Það hættir í nánast öllum til- vikum af þeim sem koma til okkar. Það gengur mun hægar með and- legt ofbeldi, það er bara flóknara og seigara og langvinnara og sömu- leiðis með kynferðislegt ofbeldi. Það er líka flóknara og menn eru ekki alltaf með hugtök á hreinu og hvar skilin eru á milli ofbeldis og eðlilegs kynlífs.“ Tugir gerenda leitað til Heimilisfriðar Meðferð Þjónusta Heimilisfriðar er ætluð þeim sem beita maka sinn ofbeldi.  Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa tugir gerenda leitað aðstoðar eftir að hafa beitt maka ofbeldi  Fimm sálfræðingar starfa nú hjá Heimilisfriði  Ná að uppræta líkamlegt ofbeldi í nær öllum tilvikum Andrés Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.