Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Verið velkomin í reynsluakstur! benni.is. Bílaríki, Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636 Opið: Virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 GÓÐA SKEMMTUN! 3.490.000kr. Tivoli DLX, 4x4, beinskiptur, dísel Einnig fáanlegur sjálfskiptur með 4x4 Birtm eð fyrirvara um m ynda-og textabrengl. Það er fátt skemmtilegra en ferðalag á fjóhjóldrifnum Tívoli sportjeppa frá SsangYong. Bílabúð Benna gefur þér kost á að njóta þess til fulls og býður hann nú á ævintýrlega góðum kjörum. + Fjórhjóladrif með læsingu + Sjálfskiptur með 4x4 + 1,5 tonna dráttargeta + Þægilegt aðgengi + Ríkulegur staðalbúnaður + Góð yfirsýn yfir umhverfið + Frábærir aksturseiginleikar + Fimm ára ábyrgð Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hvalfjarðargöngin voru lokuð í fjór- ar nætur í vikunni. Þá stóð Spölur fyrir allra síðustu hreingerningar- og viðhaldstörninni í göngunum á 20 ára rekstrartíma fyrirtæksins. Göngin verða því afhent ríkinu eins fín og flott og mögulegt er. Spölur stefnir enn að því að af- henda Vegagerðinni Hvalfjarðar- göng til eignar og rekstrar sunnu- daginn 30. september næstkomandi. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt næsta föstudag, 28. september. Stjórn Spalar tilkynnti hluthöfum félagsins þessa ákvörðun sína fyrr í mánuðinum en tók jafnframt fram að tímasetningin væri kynnt að þeim forsendum gefnum að ríkisskatt- stjóri fallist á tiltekna meðferð á skattalegri afskrift ganganna og í öðru lagi að Samgöngustofa skili fyrirvaralausri úttekt á göngunum í aðdraganda eigendaskiptanna. Sam- kvæmt upplýsingum frá Gylfa Þórð- arsyni, forstjóra Spalar, í gær hafði úrskurður ríkisskattstjóra ekki bor- ist en hins vegar er Samgöngustofa búin að skila úttekt sinni. Fram kemur í frétt á heimasíðu Spalar að þau voru mörg og fjöl- breytt handtökin sem unnin voru í göngunum í vikunni. Skipt um blás- ara í loftinu á einum stað, rifflur í malbiki breikkaðar munna á milli (rásir sem ætlað er að vekja athygli ökumanna á því að þeir séu á leið yf- ir á akrein umferðar úr gagnstæðri átt), sprungur í steypuklæðningu fylltar, náttúrulegur vindstrengur (trekkur) mældur, þvegið og pússað og margt fleira mætti nefna af við- vikum og viðfangsefnum. Fjórar nætur í röð voru göngin lokuð frá miðnætti til kl. 6 að morgni. „Nú eru haustverkin að baki og ríkið fær mannvirkið afhent eftir fáeina daga, þrifið og fægt líkt og stássstofa í aðdraganda jólaboðs,“ segir í fréttinni. Út af stendur að hressa upp á merkingar á akbrautum en í það verk átti að ráðast að morgni laugar- dags. Beita átti umferðarstýringu á meðan frekar en að loka alveg fyrir umferð. Tímamótunum fagnað Margir Vestlendingar bíða spenntir eftir því að gjaldtöku í göngin verði hætt. Í tilefni tímamót- anna bókaði bæjarráð Akranes eft- irfarandi á síðasta fundi sínum: „Bæjarráð fagnar þessum merku tímamótum og leggur áherslu á að áætluð tímamörk um yfirtöku rík- isins á Hvalfjarðargöngum standist og að framkvæmdin verði með þeim hætti að það sé ekki til tjóns fyrir hluthafa Spalar ehf. og Eignarhalds- félags Spalar hf. Bæjarráð fagnar þeim fréttum að áfram verði mönnuð vakt í Hvalfjarðargöngunum eftir yfirtöku ríkisins. Bæjarráð telur mjög mikilvægt að áfram verði ör- yggi þeirra sem um göngin fara í fyrirrúmi líkt og verið hefur í tíð Spalar.“ Göngin orðin eins og stássstofa  Spölur lauk í vikunni allra síðustu hreingerningar- og viðhaldstörninni í Hvalfjarðargöngum  Enn er stefnt að því að afhenda göngin 30. september þótt úrskurður ríkisskattsjóra sé ókominn Ljósmynd/Spölur Göngin fínpússuð Það voru mörg handtökin sem menn á vegum Spalar unnu í Hvalfjarðargöngunum í vikunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.