Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Hverafold 1-3 | www.fastgraf.is Glæsilegt heilsárshús til sölu Um er að ræða sumarhús af vönduðustu gerð. Það er fjögurra herbergja og selst með öllum búnaði. Húsið er sérstaklega hljóðeinangrað milli herbergja og hurðir eru það einnig. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Í tveimur herbergjum er gengið úr herbergi inn á bað og þaðan er hægt að ganga út á verönd. Eitt herbergi er með baði handan við ganginn og er einnig hægt að ganga út úr því út á verönd. útsýni úr húsinu er óviðjafnanlegt, þar sést meðal annars til Heklu, Eyjafjallajöluls og Vestmannaeyja. Þess má einnig geta að hinn fallegi strandavöllur er aðeins í örskotsfjarlægð frá húsinu. Nánari upplýsingar veitir Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali s 863 1126, josep@fastgraf.is Fasteignasalan Grafarvogi kynnir Langanes 7, glæsilegt heilsárshús um fimm kílómetrum fyrir vestan Hvolsvöll á rétt við Rangá. Sannkallaða glæsivillu, húsið selst með öllu innbúi. Fasteignamiðstöðin er með til sölu afar sérstaka íbúð á Snorrabraut 56b, 105 Reykjavík. Eignin er einkar vel staðsett í nágrenni miðbæjar Reykjavíkur með einstöku útsýni. „Sjón er sögu ríkari“ Um er að ræða stærstu íbúðina í húsinu 126,8 m2 að stærð, ásamt um 70 fm svölum. Íbúðin sem er á efstu hæð (áttundu hæð) er í raun þakíbúð í nýlegu og góðu fjölbýlishúsi. Lyfta er í húsinu upp á áttundu hæðina þar sem eru eingöngu tvær íbúðir, þ.e. sú íbúð sem hér um ræðir og ein önnur. Íbúðin er á tveimur hæðum. Á neðri hæð er: forstofa, hol og gangur, eldhús með vönduðum tækjum og vandaðri innréttingu. Á neðri hæðinni er einnig baðherbergi, gott herbergi, borðstofa með útgangi á svalirnar og glæsileg stofa. Geymsla og þvottahús er innan íbúðarinnar. Úr forstofunni og holinu er sér lyfta innan íbúðar upp á efri hæð, sem hefur verið nýtt sem stofa (bókastofa), en það rými býður upp á ýmsa möguleika. Íbúðirnar í húsinu eru með kvöð um að ekki megi selja þær nema til 55 ára og eldri. Húsvörður er í húsinu. Eignin er eins áður segir afar sérstök. Snorrabraut 56b, 105 Reykjavík Íslenska liðið sem teflir í opnaflokki ólympíumótsins í Bat-umi í Georgíu, sem hefst ámánudaginn, er skráð í 44. sæti af 185 þátttökuþjóðum. Þetta er sama staða og var uppi fyrir síð- asta ólympíumót sem haldið var í Baku í Aserbaídsjan haustið 2016 en þá hafnaði íslenska sveitin í 60. sæti eftir hörmuleg úrslit í loka- umferðum mótsins en byrjaði vel. Á undanförnum ólympíumótum hafa verið tefldar ellefu umferðir og gefin tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir jafn- tefli. Vinningatalan hefur því ekkert sérstakt vægi og góður árangur á lokasprettinum skiptir höfuðmáli. Sú breyting varð á íslenska liðinu að Hjörvar Steinn Grétarsson hætti við þátttöku og Guðmundur Kjart- ansson var valinn í hans stað. Liðið er þannig skipað: 1. borð: Héðinn Steingrímsson, 2. borð: Jóhann Hjartarson, 3. borð: Hannes Hlífar Stefánsson, 4. borð: Helgi Áss Grétarsson, 5. borð: Guðmundur Kjartansson. Greinarhöfundur er liðsstjóri. Íslenska liðið í kvennaflokki er skipað Lenku Ptacnikovu á 1. borði, Guðlaugu Þorsteinsdóttur á 2. borði, Nansý Davíðsdóttur á 3. borði, Jó- hönnu Björgu Jóhannsdóttur á 4. borði og Sigurlaugu Friðþjófsdóttur á 5. borði. Liðsstjóri er Björn Ívar Karlsson. Eini nýliðinn í hópnum er Nansý Davíðsdóttir, sem er 16 ára gömul. Mikil uppsöfnuð reynsla er til staðar í báðum liðum; Guðlaug tefldi á sínu fyrsta ólympíumóti í Buenos Aires fyrir 40 árum og Sigurlaug fyrir 38 árum á Möltu eins og Jó- hann. Greinarhöfundur fer nú á sitt 19. ólympíumót en tefldi fyrst í Haifa í Ísrael árið 1976. Bandaríska liðið á titil að verja í opna flokknum og margir spá því aftur sigri. Sveitin er skipuð sömu mönnum og í Baku fyrir tveim ár- um: Fabiano Caruana, Hikaru Na- kamura, Wesley So, Samuel Shank- land og Ray Robson. Bandaríkjamenn raðast efstir í styrkleikaröðinni og þar á eftir koma Rússar, Kínverjar, Aserar, Indverjar og Úkraínumenn. Anand kemur nú aftur inn í lið Indverja en Magnús Carlsen tekur sér frí vegna heimsmeistaraeinvígisins í nóv- ember en hann skilaði Norðmönnum í 5. sæti síðast, sem er langbesti ár- angur Norðmanna á ólympíumóti frá upphafi. Undanfarin ár hefur verið bein út- sending frá öllum viðureignum á ól- ympíumótunum. Slóðin á heimasíðu mótshaldarans er: https://batumi- 2018.fide.com/en. Nýr forseti FIDE verður kosinn í Batumi Þing Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, verður haldið samhliða ól- ympíumótinu og síðustu daga þess mun draga til tíðinda því þá verður kosinn nýr forseti FIDE, en Kirsan Iljumzhinov, sem setið hefur frá árinu 1995, dregur sig í hlé. Fram- bjóðendur eru þrír, þar af einn heimsþekktur skákmaður, enski stórmeistarinn Nigel Short. Aðrir í framboði eru Grikkinn Georgios Makropoulos, sem undanfarin ár hefur verið starfandi forseti FIDE, og Rússinn Arkady Dvorkovich, fyrrverandi varaforsætisráðherra Rússlands. Kosningafyrirkomulagið hjá FIDE hefur verið þannig þegar þrír hafa verið í framboði að fái eng- inn hreinan meirihluta í fyrstu um- ferð þá fellur sá úr leik sem hlýtur fæst atkvæði og síðan er kosið aftur milli hinna tveggja. Skáksamband Íslands studdi framboð Garrí Kasparov í kosningu til forseta FIDE í Tromsö í Noregi árið 2014, en af einhverjum ástæð- um gefur stjórn SÍ ekki upp afstöðu sína nú. Gunnar Björnsson, forseti SÍ, situr þing FIDE í Batumi. Ólympíuskákmótið hefst í Batumi á mánudaginn Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Eini nýliðinn Nansý Davíðsdóttir er 16 ára gömul og teflir á 3. borði fyr- ir kvennalið Íslands. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Aðspurður hvað hann hefði að segja um vestræna sið- menningu svaraði Ma- hatma Gandhi því til, að hann teldi hana vera góða hugmynd. Réttarríkið Ísland er líka góð hugmynd. En búum við í réttarríki? Við höfum allar þær stofnanir og sett lög sem eru forsendur þess að hægt sé að kalla þjóð rétt- arríki. Hins vegar hefur tækniþró- un undanfarinna ára gert það að verkum að erfitt er að færa rök fyrir tilvist réttarríkisins. Fyrir til- stilli netsins er orðið mun skemmra milli hugsunar og tján- ingar og upplýsingaflóð rafrænna miðla veldur því að óáreiðanlegar upplýsingar rata fljótar til dóms almennings á samfélagsmiðlum. Múg- sefjun og skrílslæti á samfélagsmiðlum hafa leitt til þess að óljós mörk eru á milli hávaða í umræðunni og raun- verulegs þjóðarvilja. Þeir sem hæst hafa ná áheyrn fjölmiðla, með þeim afleiðingum að alls kyns vitleysa verð- ur að „staðreyndum“ umræðunnar. Svo langt gengur það að hávaðinn hefur áhrif á stefnumótun löggjaf- ans í ýmsum málum og hefur fyrr- verandi hæstaréttardómari ásakað Hæstarétt um að túlka lög í sam- ræmi við skrílslæti umræðunnar. Réttarríkið er fallið. Dómsvaldið er ekki lengur í höndum settra dómara, heldur í höndum of- stopafólks á netinu. Ákæruvaldið hefur færst frá saksóknara til æðstu presta umræðunnar. Heim- ildir valdstjórnar til fullnustu refs- inga eru nú í höndum múgsins. Öllum ásökunum í umræðunni skal trúað, það er að segja ef þær koma frá „réttum“ þjóðfélagshópum. Meginregla réttarríkisins, að mað- ur teljist saklaus uns sekt er sönn- uð, er minning og sagnfræði. Þessi þróun hefur komið við feð- ur sem standa í umgengnisdeilum með sérstökum hætti. Vilji ofbeld- isfullar barnsmæður tryggja áframhaldandi umgengnistálmun nægir fyrir þær að ljúga hræðileg- um sökum upp á barnsfeður sína. Í ofanálag eru þeir sakfelldir og sviptir æru í umræðunni. Gildir þá einu hvort þeir eru saklausir eða sekir gagnvart bærum stjórnvöld- um eða dómstólum. Í mars á síðasta ári lagði öfga- fólk á ráðin um að eyðileggja mannorð allra forsvarsmanna svo- kallaðra feðrahreyfinga inni á lok- uðum hópi á Facebook sem ber nafnið Aktívistar gegn nauðg- unarmenningu. Skjáskot voru tek- in af þessum umræðum sem nú eru kölluð „femínistaskjölin“. Eru þar hræðilegar sakir bornar á menn þótt sumir þeirra standi hvorki í umgengnisdeilum né held- ur nokkrum ágreiningi við barns- mæður sínar. Sjálfur sætti ég því að 30 ára gamlar heilsufarsupplýs- ingar voru dregnar upp á yfirborð- ið til að eyðileggja trúverðugleika minn. „Tilgangurinn helgar með- alið“ er játning þessa öfgafólks. Hið óhugnanlega við þennan of- beldisverknað er að Halla Gunn- arsdóttir, ráðgjafi forsætisráð- herra í jafnréttismálum, og Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, tóku virkan þátt í þessari skipulögðu aðför gegn heiðarlegum feðrum, sem margir hverjir þjást vegna þess að þeir fá ekki að umgangast börn sín. Alls kyns hænsni úr stjórn- sýslu, fræðasamfélagi og fjöl- miðlum horfðu á og klöppuðu upp vitleysuna. Réttarríkið Ísland er ekki leng- ur til. Eina huggunin er sú að flestar konur, rétt eins og flestir karlar, eru gott og sómakært fólk. Skríllinn hins vegar hefur tekið sér völd og hlutverk löggæslu, ákæruvalds, dómara og böðuls. Réttarríkið Ísland? Eftir Gunnar Kristin Þórðarson » Skríllinn hefur tekið sér völd löggæsl- unnar, ákæruvalds, dómara og böðuls. Gunnar Kristinn Þórðarson Höfundur er með BA í guðfræði, MPA í opinberri stjórnsýslu og fyrrverandi formaður Karlalistans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.