Morgunblaðið - 22.09.2018, Side 6

Morgunblaðið - 22.09.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur líkur á að maður sem lést í hjól- reiðaslysi á Nesjavallavegi í fyrravor hefði lifað slysið hefði hann verið með hjálm. Í umræddu slysi lést hjólreiðamaðurinn af völdum höfuð- áverka. Það var síðdegis 22. maí 2017 að vegfarendur komu að slösuðum hjól- reiðamanni á Nesjavallaleið neðst í brekkunni vestan við Dyrafjöll. Mað- urinn hafði tekið hjólið á leigu hjá reiðhjólaleigu þremur dögum fyrr og gist nóttina fyrir slysið við Úlfljóts- vatn. Engin vitni voru að slysinu. Vegfarandi hafði séð hann um 2-3 km austan við slys- stað um kl. 13.42 en tilkynning barst lögreglu kl. 14.01. Engin ummerki fundust á vettvangi né á hjólinu um árekstur. Nefndin bendir á að um það bil 70 til 75% banaslysa hjólreiðamanna eru af völdum höfuðáverka. Höfuð- áverkar eru algeng ástæða fyrir ör- orku sem leggur mikið á hinn slasaða og hans nánustu sem og samfélagið í heild. Vitnað er í nýlega viðamikla samanburðarrannsókn á niðurstöð- um fjölda rannsókna frá mörgum löndum á áhrifum hjálma á höfuð- meiðsli í hjólreiðaslysum. Leiðir hún í ljós að hlutfall þeirra sem urðu fyrir höfuðmeiðslum var að meðaltali helmingi minna meðal þeirra sem voru með hjálm en hjá þeim sem voru án hjálms. Öryggisáhrif hjálma mælast meiri fyrir alvarleg höfuð- meiðsl. Hlutfall þeirra sem urðu fyrir alvarlegum höfuð- meiðslum, þ.m.t. banaslysum, var að meðaltali 69% lægra meðal þeirra sem voru með hjálm en þeirra sem ekki voru með hjálm Hvetur rannsóknarnefndin hjól- reiðamenn til að nota ávallt viður- kennda reiðhjólahjálma við hjólreið- ar. Hún beinir því jafnframt til samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytisins að endurskoða reglur með tilliti til hjálmaskyldu fyrir allt hjól- reiðafólk. gudmundur@mbl.is Áhersla á notkun hjálma  Hjólreiðamaður líklega lifað af hefði hann verið með hjálm Öryggi Frá vettvangi hjólreiðaslyssins á Nesjavallavegi vorið 2017. þrýstingi. Það lyftir byggingar- kostnaði upp. Í þriðja lagi er það arkitektúr og efnisval. Þetta er tölu- vert dýrari byggingarstíll en víðast annars staðar. Í fjórða lagi er grund- vallarmunur á öllum skilum innan- húss. Þ.e.a.s. frágangi innanhúss hvað varðar bæði sameign og íbúðir. Það eru sérsmíðaðar og veglegar innréttingar, skápar og hurðir í öll- um íbúðum. Allar íbúðir eru með aukinni lofthæð, með loftræstikerfi og ljósastýringum sem hægt er að tengja við snjallkerfi. Þá eru sérvalin rafmagns- og hreinlætistæki sem eru jafnvel sérpöntuð fyrir þetta verkefni og meira af búnaði en al- mennt tíðkast,“ segir Þorvaldur. Hann segir að við slíka framleiðslu náist ekki sama hagræðing og við meiri fjöldaframleiðslu og stöðlun. „Það lyftir byggingar- og fram- kvæmdakostnaði ansi mikið upp. Þegar allir þessir þættir koma sam- an eru forsendurnar allt aðrar en í því sem má kalla hefðbundnar íbúð- ir. Söluverðið endurspeglar það.“ Þorvaldur segir aðspurður mögu- legt að sameina íbúðir 601 og 602 í byggingunni G1. Þær kosta um 257 og 199 milljónir, alls 456 milljónir. Staðsetningin vegur þungt Samkvæmt greiningu Íbúðalána- sjóðs (ÍLS) var meðalverð nýrra íbúða í Reykjavík á fyrstu sjö mán- uðum ársins um 51 milljón. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræð- ingur hjá Íbúðalánasjóði, segir stað- setninguna vega þungt í verðlagn- ingu nýrra íbúða í miðborginni. „Það er mikil eftirspurn eftir því að búa miðsvæðis í Reykjavík. Þar hefur byggðin verið þétt. Þar er auk- in þjónusta. Ég held að verðmunur á íbúðum, sem eru annars vegar mið- svæðis í Reykjavík og hins vegar í jöðrum höfuðborgarsvæðisins, endurspegli það að miklu leyti.“ Dýrasta íbúðin á 257 milljónir  Fermetraverð á nýjum íbúðum á Hafnartorgi í Reykjavík er tæplega 900 þúsund  Verð óseldra íbúða er frá 64,8 til 256,8 milljónir  Mögulegt er að sameina tvær íbúðir sem kosta um 450 milljónir Verð nýrra íbúða í fyrsta áfanga Hafnartorgs, Geirsgötumegin (G) Bygging G1 Bygging G2 Íbúð Verð, m. kr. Birtir m2 Verð á m2, þús. kr. Íbúð Verð, m. kr. Birtir m2 Verð á m2, þús. kr. 201 101,8 110 928 206 110,8 120 922 202 SELD 82 207 93,8 112 835 203 95,8 125 767 208 99,8 125 796 204 102,5 118 872 209 108,8 117 929 205 109 118 923 301 SELD 106 306 98,5 120 823 302 64,8 82 793 307 95,8 112 852 303 97,8 125 782 308 SELD 125 304 106,8 118 907 309 92,8 117 792 305 97,8 118 832 401 89,8 106 844 406 100,8 119 846 402 66,8 82 817 407 98,8 112 884 403 101,8 125 814 408 104,8 125 840 404 109,8 122 901 409 SELD 117 405 102,8 118 868 501 92,8 107 865 506 106,8 120 888 502 69,8 83 843 507 SELD 112 503 113,8 126 904 508 108,8 125 873 504 SELD 119 509 110,8 117 945 505 112,8 118 953 601 256,8 232 1.106 603 168,8 154 1.094 602 198,8 177 1.124 604 162,8 148 1.101 Meðalverð 110,1 887 Meðalverð 110,8 895 Heimild: Hafnartorg.is Mynd: ÞG Verk Meðalverð og -stærð nýrra* íbúða Fyrstu sjö mánuði ársins 2018 *Byggingarár skráð 2017 eða 2018 í fasteignaskrá 60 40 20 0 Meðalverð, m.kr. Stærð, m2 120 80 40 0 Reykjavík Höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur Suðurnes, Akranes, Árborg, Ölfus og Hveragerði 51 m.kr. 89,2 m2 54,2 m.kr. 120 m2 33,9 m.kr. 112,9 m2 Heimild: Hagd. Íbúðalánasj. og Fasteignaskrá Meðalverð (m.kr.) Meðalstærð (m2) Þorvaldur Gissurarson Ólafur Heiðar Helgason Félagið Austurhöfn er að byggja lúxusíbúðir og Marriott Edition hótel við Hörpu, norðan við Hafnartorgið. Félagið Íslenskar fasteignir stýrir verkefninu. Sveinn Björnsson, eigandi og framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna, segir áformað að hefja sölu fyrstu íbúðanna um jólaleytið. Stefnt sé að því að afhenda íbúðirnar haustið 2019. Íbúðirnar við hafnarbakkann séu 180-190 m². Þá séu fjórar yfir 300 m² þakíbúðir á 6. hæð. Aðrar íbúðir séu smærri. Salan hefst um jólaleytið ÍBÚÐIR Á AUSTURHÖFN Austurhöfn Húsin eru í smíðum. Teikning/T.ark arkitektar BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Meðalverð 34 íbúða á Hafnartorgi er um 110 milljónir og meðalverð á fer- metra tæplega 900 þúsund krónur. Þá eru sex íbúðir seldar. Má ætla að söluverð þeirra sé yfir 600 milljónir. Um er að ræða tvö fjölbýlishús við Geirsgötu. Síðar fara þrír stigagang- ar í sölu sem snúa að Tryggvagötu. Meðalverðið er ef til vill það hæsta sem sést hefur í miðborginni. Til samanburðar var meðalverð 94 íbúða í Bríetartúni 9-11 um 64,4 milljónir og meðalverð nýrra íbúða á Hverfisgötu 94-96 um 66 milljónir. Íbúðir á 10. til 12. hæð Bríetartúns eru reyndar dýrari og á svipuðu róli og íbúðirnar á Hafnartorgi. Um áramótin koma svo íbúðir í sölu við Austurhöfn (sjá ramma- grein), ásamt því sem íbúðir á Hverfisgötu og á Brynjureit við Laugaveg fara í sölu á næsta ári. Um 20 hópar sýnt áhuga Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verks, segir um 20 hópa hafa bókað kynningarfundi vegna íbúð- anna. Í þeim hópi séu nokkrir er- lendir aðilar sem sýnt hafa áhuga. „Þetta eru jafnvel betri viðbrögð en við bjuggumst við,“ segir Þor- valdur sem telur aðspurður að viss hópur hafi beðið eftir íbúðunum. Af þessum viðbrögðum að dæma sé ekki að sjá að umræða um mögu- lega niðursveiflu hafi slegið kaup- endur út af laginu. Þorvaldur segir aðspurður að í einhverjum tilvikum séu aðilar að skoða bæði íbúðir og skrifstofur á Hafnartorgi. Það sé ófrágengið. Þá staðfestir Þorvaldur að búið sé að skrifa undir leigusamninga sem ná til um 60% atvinnuhúsnæðis á Hafnartorgi í fermetrum talið. Meiri íburður en venja er Spurður um verðlagningu íbúða á Hafnartorgi segir Þorvaldur margt hafa áhrif á söluverðið. „Það skýrist af nokkrum þáttum. Í fyrsta lagi er þetta dýr staður. Þ.e.a.s. dýr lóð og byggingarréttur. Í öðru lagi er dýrara að komast þarna upp úr jörðinni. Það þarf enda að hanna allan kjallarann fyrir neðan- sjávarálag. Þ.e.a.s. álag undir sjávar- Horfið hefur verið frá því að fram- lengja út árið það fyrirkomulag sem verið hefur á göngugötum í mið- bænum í sumar. Samkvæmt tilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg mun tíma- bili svonefndra göngugatna í miðborginni ljúka hinn 1. október næstkomandi og þá verður opnað á ný fyrir bílaumferð um þær. Tillaga um varanlegar göngugötur verði hins vegar mótuð í vetur og muni liggja fyrir í vor. Eyþór Laxdal Arnalds, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur, sagði í samtali við mbl.is í gær að hann væri ánægður með að hætt hefði verið við að halda göngugötufyrirkomulaginu í vetur. „Þá gefst vonandi tími til að ræða við kaupmenn og íbúa og hlusta á aðra sem þurfa að komast um,“ segir hann. „Þetta er mjög um- deilt mál og við trúum því að samráð sé rétta leiðin þegar þannig er.“ Kristín Soffía Jónsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur, segir að í raun hafi ekki verið hætt við neitt, þar sem ekki hafi verið búið að sam- þykkja tillöguna. Hins vegar hafi verið talið betra að undirbúa málið í vetur, meðal annars með auknu samráði við hagsmunaaðila, en stefnt er að því að tillagan verði lögð fram að nýju í vor. „Stefnan er sú að þetta verði varanlegt, en núna erum við stödd í nokkurs konar millibils- ástandi,“ segir Kristín Soffía. „Við teljum að það sé allra hagur að þetta sé gert vel.“ sgs@mbl.is Hætt við göngu- götur í vetur  Tillagan lögð aftur fram í vor Morgunblaðið/Eggert Göngugötur Tillagan verður lögð aftur fram næsta vor.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.