Morgunblaðið - 22.09.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
Gjafavöruverslun
Kringlan
Gríptu gjöf
með þér!
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ullarkápur
í úrvali
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Túnikur
Kr. 8.900
Str. 44-56
Fleiri litir
Opið í dag kl. 11-15
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Til sölu
Iðnfyrirtæki
Til sölu er vel rekið skuldlaust iðnfyrirtæki, sem hefur
sterka markaðsstöðu á sínu sviði og góðan orðstý.
Velta 150m. EBITDA 28m.
Nánari upplýsingar eru veittar á trúnaðarfundi
hjá Firma Consulting. Sími 896 6665
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
Frábærar
haustyfirhafnir
Vind- og vatnsþéttar
Kr. 29.900
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Frumvarp um að afnema einkaleyfi
ríkisins á smásölu áfengis og að
einkaaðilum verði heimiluð slík sala
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum,
hefur verið lagt fram á Alþingi í
fimmta skiptið. Fyrsti flutningsmað-
ur frumvarpsins
nú er Þorsteinn
Víglundsson,
þingmaður Við-
reisnar.
Fram kemur í
greinargerð með
frumvarpinu að
frumvarpið gerir
ráð fyrir að al-
mennt verði heim-
ilt að selja áfengi í
smásölu í sér-
verslunum með mat- og drykkjarvör-
ur en ekki stórmörkuðum og mat-
vöruverslunum. Þar kemur jafnframt
fram að gert er ráð fyrir að áfeng-
isauglýsingar verði heimilaðar með
takmörkunum.
Þorsteinn Víglundsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að frum-
varpið hefði tekið verulegum breyt-
ingum á þinginu 2016-2017, í
meðförum allsherjar- og mennta-
málanefndar og væri flutt núna í
þeirri mynd.
„Þetta er orðin talsvert önnur nálg-
un en var í upphafi. Það er bara geng-
ið út frá því að einokun ríkisins sé af-
numin, en ríkinu sé heimilt að selja
áfram áfengi í sérverslunum sínum,“
sagði Þorsteinn.
Hvað varðar þann hluta frum-
varpsins sem gerir ráð fyrir að heim-
ila áfengisauglýsingar, sagði Þor-
steinn að það væri að hluta til svar við
þeim tvískinnungi sem ríkti á auglýs-
ingasviðinu. „Við erum auðvitað með
heilmiklar áfengisauglýsingar. Allir
vita að auglýsingar bjórframleiðenda
á léttöli, eru ekkert annað en auglýs-
ingar á bjór,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn kveðst vonast til þess að
frumvarpið í þessum búningi nái að
ganga til nefndar, og þá komi á dag-
inn hvaða viðbrögð málið fær.
„Mér þykir mjög eðlilegt, miðað við
það hversu oft málið hefur verið lagt
fram á þingi, og um það skapist heitar
umræður, að þingið taki málið fyrir,
klári vandaða nefndarvinnu um það
og taki svo afstöðu til málsins í at-
kvæðagreiðslu, en eins og menn vita
hefur málið aldrei komið til atkvæða-
greiðslu á Alþingi,“ sagði Þorsteinn.
Frumvarpið
flutt í 5. sinn
Eðlilegt að Alþingi greiði atkvæði
Morgunblaðið/Hari
Áfengi Áfengisfrumvarpið verður
flutt í fimmta skipti í vetur.
Þorsteinn
Víglundsson
Krafan um tilvísun fyrir konur með
einkenni hefur alltaf verið við lýði
hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags
Íslands, að sögn Ágústs Inga
Ágústssonar yfirlæknis. Fram kom
í Morgunblaðinu í gær að hefðu
konur einkenni eða áhyggjur og
vildu koma í skimun án þess að hafa
fengið boðun þyrftu þær að fá til-
vísun hjá heimilislækni. Ágúst Ingi
var spurður nánar út í það.
„Leitarstöðin hefur unnið skv.
samningi við Sjúkratryggingar Ís-
lands og krafan um tilvísun kemur
m.a. fram í þessum samningi,“
sagði í svari Ágústs. „Skimun, af
hvaða toga sem hún er, er í eðli sínu
ætluð fyrir einkennalausa einstakl-
inga. Mikilvægt er að halda því
þannig til þess að geta metið hvort
skimun hjá einkennalausum geri
gagn. Annars gæti hæglega litið út
fyrir að það greindust mun fleiri í
skimun en raunin er. Þegar konur
eru með einkenni og fá tilvísun fara
þær í skoðun á vegum Landspítala
sem hefur tekið yfir sérskoðanir á
brjóstum af Leitarstöðínni. Sú
starfsemi er reyndar til húsa á
sama stað en er alfarið á ábyrgð og
í umsjá Landspítala. Skimunin felur
eingöngu í sér röntgenmyndatöku
af brjóstum en við einkenni þarf
alltaf að fara fram klínísk skoðun
og mat læknis sem ákveður hvort
nauðsynlegt sé að konan fari í frek-
ari rannsóknir. Þess vegna er held-
ur ekki æskilegt að konur geti kom-
ið beint í myndatöku að eigin
frumkvæði.“ gudni@mbl.is
Krafa um tilvísun vegna skimunar
kemur frá Sjúkratryggingum
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Matur