Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
Bragð af
vináttu • Hágæðagæludýrafóður
framleitt
í Þýskalandi
• Bragðgott og
auðmeltanlegt
• Án viðbættra
litar-, bragð- og
rotvarnarefna
Útsölustaðir:
Byko, Gæludýr.is,
4 loppur, Multitask,
Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vísindamenn leggja til miklar fram-
kvæmdir neðansjávar við Suður-
skautslandið til að varna því að Thwai-
tes-jökull, sem gæti orðið að ísjaka á
stærð við Bretland, brotni frá og fljóti
út á haf. Losni jakinn og bráðni gæti
sjávarborð hækkað um nokkra metra,
samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar.
Tvær hugmyndir hafa komið fram
um hvernig koma megi í veg fyrir að
jökullinn sigli út á haf. Sú hófsamari
er engu að síður af þeirri stærðar-
gráðu að hún jafnast á við gerð
Panamaskurðar eða Súezskurðar. Í
henni felst að gera jarðvegshóla á hæð
við Eiffelturninn á sjávarbotni. Þeir
eiga að styðja við jökulbrúnina sjávar-
megin.
Hinn valkosturinn er að ryðja upp
um 100 metra háum garði, eða vegg, á
sjávarbotni. Garðurinn yrði 80 til 100
kílómetra langur og myndi koma í veg
fyrir að hlýr sjór kæmist undir íshell-
una, bræddi hana neðan frá og veikti.
Greint var frá þessum metnaðar-
fullu áformum í The Cryosphere,
tímariti European Geosciences Union,
á fimmtudaginn var. Greinin þykir
endurspegla þau viðhorf að það að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda, svo gott sem það er, gerist lík-
lega ekki nógu hratt til að koma í veg
fyrir stórkostlegar loftslagsbreyt-
ingar sem myndu hafa hörmulegar af-
leiðingar.
Mikil hækkun sjávarborðs
Haft er eftir aðalhöfundi grein-
arinnar, Michael Wolovick, vísinda-
manni við Princeton-háskóla, að
Thwaites-jökull geti verið upphafið að
bráðnum sem á endanum muni hækka
sjávarborð á heimsvísu um nálægt
þrjá metra.
Það að draga úr kolefnismengun
mun ekki duga til að koma í veg fyrir
loftslagsbreytingarnar. Einu trúverð-
ugu leiðirnar til þess að tryggja að
hlýnun verði innan við tvö stig á Cel-
síus, miðað við hitastig fyrir iðnvæð-
ingu, eins og stefnt er að með Par-
ísarsáttmálanum, er að draga mikið
magn koltvísýrings (CO2) út úr and-
rúmsloftinu. Verkfræðileg áform, sem
áður var hafnað vegna þess að þau
væru óhagkvæm, óþörf eða beinlínis
hættuleg, eru ekki lengur á jaðri vís-
indalegrar og pólitískrar umræðu
heldur orðin ofarlega á baugi. Á meðal
þeirra má nefna að dreifa ögnum í
geimnum sem endurkasta geislum
sólar, geyma CO2 í berglögum eða
hefja stórfellda ræktun til framleiðslu
á lífeldsneyti. Engar þessara hug-
mynda taka á hækkandi sjávarborði
en það mun líklega valda meiri hörm-
ungum fyrir mannkynið en nokkur
önnur áhrif loftslagshlýnunarinnar.
Tugir eyríkja gætu farið meira eða
minna í kaf og einnig þéttbyggðar
óseyrar, einkum í Asíu og Afríku.
Verkfræðilegar lausnir
Wolovick segir að heimsbyggðin
þurfi að huga vandlega að verk-
fræðilegum lausnum varðandi jökl-
ana. Hundruð milljóna manna búi á
svæðum sem séu fáeina metra ofan
við sjávarborð. Þar til nýlega hækk-
aði sjávarborð aðallega vegna auk-
innar þenslu vatns af völdum hlýn-
unar. Nú stafar helsta ógnin af
bráðnun Grænlandsjökuls og íssins á
Suðurskautinu. Bráðni Grænlands-
jökull og jökullinn á Vestur-
Suðurskautslandinu, sem er hættara
við bráðnun en jöklinum á Austur-
Suðurskautslandinu, myndi yfirborð
sjávar hækka um nálægt 12 metra.
Vilja sporna við bráðnun
1 2
Rannsókn ætlað að fá fram umræðu um mögulegar leiðir til að hægja á hækkun sjávaryfirborðs
Hugsanlegar framkvæmdir til að koma í veg fyrir íshrun
Heimild: European Union for Geosciences
Ís-
breiðan
Landgrunn
Hlýr
sjór
Kaldur
sjór
Straumur:
Hlýr sjór
þynnir ísinn
Jökull
Í eðlilegu árferði er jafnvægi á milli ísmyndunar og
bráðnunar svo jökullinn hopar ekki
Ójafnvægi vegna hlýnunar andrúmslofts:
Íshellan þynnist og hopar.
Hlýrri hafstraumar hraða þróuninni.
Jarðvegshólar
30% líkur á að
jökullinn verði stöðugur
Veggur, 80-120 km langur
gæfi 70% líkur á stöðugleika
Mannvirki reist neðansjávar til
að stöðva hlýja hafstrauma
og styðja við jökulinn
Mögulegar lausnir
Ef Thwaites-jökull brotnar frá Suðurskautslandinu og bráðnar hækkar
yfirborð sjávar Hugmyndir um verkfræðilegar lausnir til að afstýra brotinu
Ljósmynd/NASA
Thwaites-jökull Hætta er á að gríðarlegt jökulflæmi brotni frá Suður-
skautslandinu og fljóti á haf út. Leitað er leiða til að hindra það.
Mikið óveður gekk í gær yfir Nor-
eg. Gaf norska veðurstofan út
rauða viðvörun í hluta landsins,
þar á meðal í Ósló, vegna storms-
ins, sem hlotið hefur heitið Knút-
ur.
Vindhraði mældist í mestu vind-
hviðunum 37 metrar á sekúndu og
var spáð að hann gæti farið í 40
metra á sekúndu á Óslóarfirði.
Fólk var beðið að ganga frá öllu
lauslegu og varað við því að vera
utandyra, sérstaklega við strönd-
ina. Miklar tafir gætu orðið á um-
ferð. Þá var fólk beðið að hringja
ekki í neyðarlínuna nema mannslíf
væri í húfi. Var búist við að veðrið
myndi ganga yfir þegar liði á dag-
inn í dag. Fór rafmagn af hjá 47
þúsund manns í Ögðum, sagði
norska útvarpið, NRK.
Stormurinn Knútur skall líka á
Danmörku og Svíþjóð í gær og
voru þar sömuleiðis gefnar út við-
varanir til almennings um að fara
með gát og halda sig innan dyra.
NOREGUR
Óveðrið Knútur
veldur usla
Minnst 136 manns fórust þegar ferju
sem flutti yfir 400 manns hvolfdi í
fyrradag á Viktoríuvatni í Tansaníu,
samkvæmt frétt BBC. Margra er enn
saknað og er óttast að yfir 200 manns
hafi drukknað.
Ferjan Nyerere var á leið frá
Bugorora þegar henni hvolfdi við
eyna Ukara. Talið er að allt of margir
hafi verið um borð og hvolfdi ferjunni
þegar farþegarnir flykktust yfir á
annað borðið þegar ferjan lagði að
landi. Björgunaraðgerðir hófust þeg-
ar og var þeim haldið áfram í gær.
Íbúar á Mwanza svæðinu voru ótta-
slegnir og biðu frétta af ættingjum
sem voru um borð í ferjunni. Kona
sem fréttamaður ræddi við kvaðst
hafa misst frænku sína, föður og yngri
bróður í slysinu. Fjölmiðlar á svæðinu
sögðu að ferjan hefði borið 100 manns
en embættismenn töldu að um borð
hefðu verið fjórfalt fleiri, eða yfir 400
manns, þegar ferjunni hvolfdi.
Viktoríuvatn Eitt af stærstu stöðu-
vötnum Afríku.
DODOMA Dar Es
Salaam
Mwanza
Tangan-
yikavatn
200 kmSAMBÍA
ÚGANDA
Viktor-
íuvatn
RV.
BÚ.
LÝ
Ð
V
EL
D
IÐ
K
O
N
G
Ó
LÝ
Ð
V
EL
D
IÐ
K
O
N
G
Ó
KENÍA
TANSANÍA
Mannskætt
ferjuslys í
Tansaníu
Þrjár milljónir manna látast af völd-
um áfengisneyslu á ári hverju, að því
er fram kemur í skýrslu, sem Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin birti í
gær. Látast fleiri af völdum áfengis
á ári en af völdum alnæmis, ofbeldis
og umferðarslysa.
Í skýrslunni segir að eitt af hverj-
um tuttugu dauðsföllum megi rekja
til áfengis eða 5,3%. Þar á meðal er
akstur undir áhrifum, ofbeldi og
misneyting í áfengisvímu og fjöldi
sjúkdóma og raskana. Rúmlega
tveir af hverjum þremur, sem láta
lífið af völdum áfengis, eru karlar.
Neysla áfengis hefur dregist sam-
an um 10% í Evrópu síðan 2010.
Neysla á mann í álfunni er 10 lítrar
af hreinum vínanda á ári. Annars
staðar í heiminum fer neysla vax-
andi, einkum í Asíu, einkum Ind-
landi og Kína, segir í frétt AFP.
5% dauðsfalla
út af áfengi