Morgunblaðið - 22.09.2018, Side 32

Morgunblaðið - 22.09.2018, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 ✝ Bragi Þor-steinsson fædd- ist á Vatnsleysu í Biskupstungum 3. júlí 1935. Hann lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 12. septem- ber 2018. Foreldrar Braga voru hjónin Þor- steinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu, f. 2. desember 1893, d. 11. október 1974, og Ágústa Jónsdóttir húsfreyja frá Gröf í Bitrufirði, f. 28. ágúst 1900, d. 25. september 1986. Bragi var sjöundi í röð níu systkina en hin eru: Ingigerður, f. 1923, d. 1994, Sigurður, f. 1924, Steingerður, f. 1926, Ein- ar Geir, f. 1930, Kolbeinn, f. 1932, d. 2013, Þorsteinn Þór, f. 1933, d. 1941, Sigríður, f. 1938, d. 2017, og Viðar, f. 1945. Eftirlifandi eiginkona Braga er Halla Bjarnadóttir, f. 11. jan- úar 1938 í Reykjavík, en þau f. 1998, og Þorsteinn, f. 2002, d. 2011. Bragi ólst upp á Vatnsleysu í Biskupstungum. Hann stundaði nám við við Íþróttaskóla Sig- urðar Greipssonar í Haukadal og við Héraðsskólann á Laugar- vatni. Um tíma starfaði Bragi hjá Osta- og smjörsölunni í Reyjavík. Vorið 1960 hófu þau Halla búskap á Vatnsleysu, fyrst í félagi með foreldrum Braga en tóku síðar alfarið við búinu. Um árabil starfaði Bragi sem héraðslögreglumaður í Ár- nessýslu. Hann var um skeið í stjórn Búnaðarfélags Biskups- tungna og tók að öðru leyti virkan þátt ýmsum félags- störfum í sveitinni svo sem leik- listarstarfi. Hann söng með Skálholtskórnum í hálfa öld, allt frá stofnun kórsins 1963, og var lengst af forsöngvari hans. Síð- ast söng hann með kórnum á Skálholtshátíð 2013 þegar liðin voru 50 ár frá vígslu kirkj- unnar. Hann var mikill unnandi tónlistar alla tíð og mætti á vel- flesta tónleika sem haldnir voru í nágrenni hans. Útför Braga fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 22. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 14. gengu í hjúskap 28. nóvember 1959. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Ragnar Jónsson, f. 7. sept- ember 1905, frá Dýrafirði, forstjóri í Reykjavík, d. 5. nóvember 1996, og Kristrún Haralds- dóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1904 í Reykjavík, d. 3. maí 1986. Börn Braga og Höllu eru: 1) Ingunn Birna búfræðingur, f. 1959. 2) Ragnheiður lögfræð- ingur, f. 1963, gift Eymundi Sigurðssyni verkfræðingi, f. 1962. Þeirra börn eru Bragi Steinn, f. 1994, Sigurður, f. 1996, og Halla, f. 2001. 3) Þor- steinn Ágúst búfræðingur, f. 1967, d. 1996. 4) Kristrún grunnskólakennari, f. 1976, í sambúð með Birni Davíð Þor- steinssyni verkfræðingi, f. 1971. Þeirra börn eru: Katrín Ingunn, Við fráfall bróður verða æsku- minningar ljóslifandi þótt langt sé um liðið. Á Vatnsleysu var samkomuhús sveitarinnar fram yfir 1960. Ég var oft að sniglast í kringum Vatnsleysuböllin af ein- skærri forvitni. Allt í einu var Bragi kominn í dansinn með stúlku sem ég hafði ekki áður séð. Þarna var eitthvað að ger- ast. Þessi stúlka var Halla sem vann sumarlangt við barnaheim- ili í Laugarási. Bragi var tíu ár- um eldri en ég og myndin af því þegar hann kom í hlaðið vorið 1960 með það sem þau Halla höfðu önglað saman er eins og ljósmynd í huga mér. Hér voru vegamót hjá þeim báðum, unga forstjóradóttirin úr Reykjavík var hér að stíga fyrstu skrefin á 60 ára búsetu á Vatnsleysu. Ráð- ist var í að lyfta þakinu á aust- urbænum og ungu hjónin fluttu í nýja íbúð á efri hæðinni. Nýja dráttarvél lögðu þau til og nú voru tvær Ferguson-vélar sem léttu bústörfin. Á innan við tíu árum hafði vélvæðingin tekið við af tækjum sem hestum var beitt fyrir. Þetta voru skemmtileg sumur hjá mér unglingnum sem reyndi að fylgja Braga eftir. Hann var alla tíð mjög ósérhlíf- inn og gerði meiri kröfur til sín en annarra. Ég stend í þakkar- skuld við Braga fyrir að hafa kennt mér að vinna og meta vinnu þau sumur sem ég var heima. Á þessum árum mótaðist samband okkar sem aldrei bar skugga á. Dráttarvélar voru opn- ar og ekki búið að finna upp heyrnarhlífar. Til að vinna á móti vélarniðnum tók Bragi upp á því að syngja sönglög við vinnuna. Ég er ekki frá því að þarna hafi hann náð að þroska hljómfagra söngrödd sína en söngur var áhugamál hans eins og margra í fjölskyldunni. Ég komst fljótt að því að Bragi var mér fremri í söngnum. Hann fékk í vöggugjöf einstaka náttúrurödd og þá hljómbestu okkar systkina. Rödd sem varð síðar burðarrödd í kór Skálholtskirkju þar sem hann hafði oft forsöng. Börnin fjögur uxu úr grasi og búið stækkaði. Stefna var tekin á kynslóðaskipti og að systkinin Inga Birna og Þorsteinn tækju við búskapnum. Það var því mikið áfall fyrir fjöl- skylduna þegar Þorsteinn lést af slysförum 1996. Gestkvæmt hefur alla tíð verið á Vatnsleysu og gott þangað að koma. Réttardagurinn er mikill hátíðardagur í sveitinni og rétt- arsúpan hjá Höllu sveik engan. Fjölmargir hafa komið á réttar- daginn og tekið þátt í margradda söng á öllum bæjum á Vatns- leysutorfunni. Þótt Bragi væri þrotinn að kröftum lagði hann mikla áherslu á að réttarsúpan væri á sínum stað í haust og gestir kæmu saman og tækju lagið. Í samtali okkar stuttu fyrir réttir sagði hann við mig: „Þú verður að tryggja að góðir söng- menn komi.“ Þótt hann hefði ekki þrek til að taka þátt í söngn- um ætlaði hann að vera nálægur. Svo fór þó að sjúkdómurinn gaf enga vægð og nokkrum dögum fyrir réttir varð innlögn á sjúkrahúsið á Selfossi ekki umflúin. Enn hefur fækkað í hópi okk- ar systkina en við vorum níu. Mikill samhugur og eindrægni hefur alltaf einkennt sambýlið á Vatnsleysu. Bragi gerði sér fulla grein fyrir að hann væri að ljúka jarðlífinu og var ókvíðinn að mæta dauða sínum. Við eftirlif- andi systkini og mágkonur vott- um fjölskyldunni innilega samúð. Viðar Þorsteinsson. Þegar góður frændi og vinur fellur frá hrannast upp minning- ar. Samskipti við hann standa manni ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum. Það er svo margt að minnast á frá morgni æsku ljósum, er vorið hló við barnsins brá og bjó sig skarti’af rósum. (Einar E. Sæmundsen) Við hjónin og börn okkar varðveitum dýrmætar minningar um Braga. Öll börn mín voru til lengri eða skemmri tíma um sumur hjá Braga og Höllu og fjölskyldu á Vatnsleysu. Þau, eins og ég, lærðu margt af Braga, þó að Inga Birna hafði að einhverju leyti verið tekin við hlutverki leiðbeinandans. Fjölskylda mín er þakklát fyrir dýrmætan tíma með Braga og fjölskyldu. Það var alltaf bjart yfir Braga, hann var oftast kátur, kíminn og stutt í hláturinn. Bragi hló smit- andi hlátri með öllum skrokkn- um, ekki síst augunum. Hann gat gantast og tók sjálfan sig ekki of alvarlega. Sumir gætu talið hann hafa verið stríðinn, það risti þó aldrei djúpt. Það þurfti oftast ekki mikið tilefni til að hlæja dátt og hlátur var goldinn með hlátri. Bragi fór ekki hljótt, það var aldrei lognmolla í kringum hann. Það er ekki ofsögum sagt að Bragi var yfirleitt hrókur alls fagnaðar. Bragi var með hljómfagra tenór/barítónrödd. Tónlist og söngur hafa verið í hávegi á báð- um bæjum Vatnsleysu í gegnum tíðina. Það gilti einu hvar fólk kom saman, hvort sem var í af- mælum, fermingum, réttunum, oftast var sunginn raddaður söngur. Þá var gott að standa ná- lægt frændum sínum og læra sína rödd, ekki síst Braga, sem amma taldi hafa hljómfallegustu rödd Vatnsleysufrænda. Ef Bragi hefði gefið sig meira að söngnum hefði hann sjálfsagt getað náð langt. Á réttardaginn hafa Bragi og Halla, eiginkona Braga, og dæt- ur þeirra, tekið á móti ættingjum og vinum, hátt í og yfir hundrað manns, í áratugi og boðið í kjöt- súpu. Þau tóku við þeim sið af Þorsteini og Ágústu, foreldrum Braga, en hafa bætt um betur með auknum fjölda gesta. Eftir kjötsúpu er sungið í stofunni við orgelundirleik. Þar var viðtekin venja að Bragi söng þar einsöng. Ég er þakklátur fyrir að eiga þessar og ótal aðrar góðar minn- ingar um Braga. Hver endurminning er svo hlý að yljar köldu hjarta. Hver saga forn er saga ný, um sólskinsdaga bjarta. (Einar E. Sæmundsen) Bragi var æðrulaus við dauð- ans dyr. Hann mætti örlögum sínum keikur, það dró af honum síðustu mánuði og vikur, en hann kvartaði aldrei og gerði ekki mikið úr veikindum sínum. Það gerir þeim sem sakna hans auð- veldar fyrir. Bragi átti gott líf, hann var elskaður og dáður og naut virð- ingar. Gott hjónaband þeirra Höllu varði í um 60 ár, öll börn þeirra, tengdabörn og barnabörn eru til fyrirmyndar, hvert á sinn hátt. Ég veit að Bragi var þakk- látur fyrir allt þetta. Bragi trúði á æðri tilvist eftir þetta líf og kveið ekki örlögum sínum. Nú lýsir faðir ljóssins Braga „á vís- dóms vegi sönnum“, það er huggun. Hvíl í friði, kæri frændi, bless- uð sé þín minning. Við fjölskyld- an vottum Höllu, frænkum okkar og fjölskyldum þeirra samúð. Þorsteinn Guðnason. Á réttardaginn í Tungunum er mikill söngur og gleði, en síðasti réttardagur á Vatnsleysu var einhvern veginn öðru vísi, Bragi bóndi í austurbænum var á Sjúkrahúsi Suðurlands og lést þar miðvikudaginn eftir réttir og voru allir með hugann hjá Braga og fjölskyldu hans. Bragi var hvers manns hugljúfi, glaður með fallegt blik í auga, söngmað- ur mikill og höfðingi heim að sækja, við minnumst margra gleðistunda með þeim hjónum. Maggi minn var úr vesturbæn- um og voru þeir systkinasynir. Mikill samgangur var á milli bæjanna og þegar frændsystk- inin hittust á góðri stund var mikið sungið og glatt á hjalla, enda söngfólk mikið. Ég átti góða stund með þeim hjónum og Ingu Birnu í ágúst í sumar, þá var Bragi nokkuð hress og var mikið spjallað um lífið og til- veruna. Við rifjuðum upp hvað alltaf var gaman í gamla daga og hvað allt hafði breyst, við værum síung en börnin okkar væru farin að eldast! Elsku Bragi, takk fyr- ir að vera þú og við biðjum þér blessunar á þeirri leið sem þú hefur lagt í. Ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég þótt látinn sé tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. ók.) Elsku Halla, Inga Birna, Ragnheiður og fjölskyldur, inni- legar samúðarkveðjur frá okkur Sigurði, Jónu og Maríu. Þóra Katrín. Bragi Þorsteinsson á Vatns- leysu er látinn og er mér ljúft að minnast hans með nokkrum orð- um. Kynni okkar hófust fyrir nokkrum áratugum þegar ég fór að venja komur mínar í Tungna- réttir og vinur minn Þorsteinn Guðnason kynnti mig fyrir Braga, móðurbróður sínum. Síð- an þá hef ég verið gestur þeirra Höllu á réttardaginn og á ýms- um öðrum tímum þess á milli. Það er óvíða jafn reisulegt heim að líta og heim að Vatnsleysu og þegar komið er í hlað blasir snyrtimennskan og fallegir garð- ar við öllum sem þangað koma. Þar bjuggu frændur rausnarbúi um árabil. Réttardagur með þeim Vatnsleysubræðrum og þeirra fólki er mikil hátíðarstund og öllum ógleymanlegur sem verður þátttakandi í slíkum við- burði. Byrjað er snemma á morgunverði hjá Ingu og Einari Geir, með viðeigandi hestaskál. Þá er farið í réttirnar og allir taka þátt í söng með viðstöddum, sem Einar Geir hefur stjórnað um árabil. Að lokinni kjötsúpu heima á bæ tekur fólkið sér stöðu við gamla orgelið í stofunni og er þá sungið í gegnum öll fjár- lögin, gjarnan tvisvar. Um kaffi- leytið er farið yfir í vesturbæinn og sungið með heimafólki þar og gestum þeirra. Þegar þarna er komið sögu er heldur farið að draga af mönnum, enda dagskrá- in þá búin að vera nokkuð ströng. Tónlist og söngur voru Braga mjög hugleikin, líkt og mörgum í hans fjölskyldu. Hann var góður söngmaður og söng með ýmsum kórum um dagana. Hann hafði þróttmikla barítónrödd og söng stundum einsöng fyrir gesti sína. Bragi lagði áherslu á að meðal gesta á Vatnsleysu á réttardag- inn væru góðir söngmenn, svo sómi væri að söngnum. Nú í haust hafði Bragi ákveðið að halda réttardaginn á Vatnsleysu með sínu fólki, þótt hann væri þjakaður af veikindum. „Ég mun ekki syngja með ykkur, en heyra óminn af honum inn til mín,“ sagði hann við mig fyrir skömmu. Af því varð því miður ekki. Með Braga á Vatnsleysu er genginn ljúfur maður, sem gott var að vera með. Fjölskyldu hans sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Braga Þorsteinssonar. Jón Þorsteinn Gunnarsson. Það eina sem er öruggt í okk- ar lífi er að við hverfum héðan öll og deyjum. Nú er vinur okkar Bragi Þorsteinsson frá Vatns- leysu farinn. Við höfum fengið að njóta vináttu hans og Höllu og fjölskyldunnar alveg síðan við fluttum í Tungurnar 1983. Það var dásamlegt að vera tekið vel af slíkum höfðingjum. Við með rekstur, Meðferðar- heimilið Torfastöðum, allt fullt af börnum sem áttu erfitt og voru á hættulegri braut. Mikilvægt að snúa lífi þeirra á betri veg, leyfa þeim að njóta lífsins. Íbúar sveitarinnar þekktu ekkert til okkar en fljótlega var okkur treyst og við virt, ekki síst af Höllu og Braga. Það var okkur mikils virði. Vináttan var sönn og trygg og hefur haldist, jafnvel styrkst við erfiðleika og verkefni sem féllu þeim og okkur í fang og nauðsynlegt var að mæta. Bragi söng lengst allra með Skálholtskórnum og það var mjög ánægjulegt að njóta sam- vista við hann þar. Halla varð samherji í sveitarstjórnarmálum um tíma. Það voru tímar breytinga og hún flott í sínu hlut- verki. Guð blessi Höllu og fjölskyldu hennar og veiti þeim styrk nú þegar Bragi er horfinn úr okkar röðum. F.h. Torfastaðafjölskyld- unnar, Drífa Kristjánsdóttir. Tengdafaðir minn og góður vinur, Bragi á Vatnsleysu, er fallinn frá. Þótt vissulega hafi verið nokkur aðdragandi að frá- falli hans finnur maður fyrir tómarúmi nú þegar hann hefur kvatt enda samfylgdin orðin löng, eða 36 ár. Daginn sem hann kvaddi áttum við ágæta sam- verustund og vorum sammála um að þótt ýmis áföll hefðu dunið yfir á þessum tíma hefðum við og fjölskyldan öll átt mörg góð ár saman. Bragi var ekki þeirrar gerðar að hann vildi láta mikið á sér bera en oft beindist þó athyglin að honum á mannamótum, sér- staklega þegar lagið var tekið, en hann hafði hljómmikla og fallega söngrödd. Gaman var að fylgjast með þeim frændsystkinum frá Vatnsleysu bresta í margradd- aðan og vandaðan söng svo unun var á að hlýða. Við slíkar að- stæður, sérstaklega á réttardag- inn, söng Bragi oft einsöng, og tók þá oftar en ekki lagið Kirkju- hvol. Bragi var góður bóndi og mik- ill dugnaðarforkur. Hann var vakinn og sofinn yfir búrekstr- inum, hélt húsum sínum vel við og gekk í öll verk sem til falla á einu búi, hvort sem um var að ræða smíðavinnu, rafsuðu eða bókhald, en hann annaðist til dæmis alla tíð sjálfur skatt- skýrslugerð fyrir búið og hafði tileinkað sér tölvutæknina á því sviði hin síðari ár. Vatnsleysubæ- irnir hafa alltaf þótt snyrtilegir en einstaklega góð samvinna og vinskapur hefur ávallt ríkt á milli heimilanna á Vatnsleysutorfunni. Bragi var mikill ákafamaður í heyskap og þoldi ekkert sleifar- lag hjá samverkafólki sínu eftir að sláttur var hafinn. Lagði hann talsvert upp úr því að hefja slátt sem fyrst og ljúka honum á skikkanlegum tíma. Jafnvel nú í sumar gaf hann lítið eftir í þess- um efnum þótt kraftarnir hefðu farið þverrandi með degi hverjum. Bragi var ungur í anda og gat verið stríðinn en alltaf á gam- ansömum nótum. Barnabörnin áttu góðan vin í honum og hann náði vel til þeirra á sinn hispurs- lausa hátt. Hann kunni til dæmis alveg að gera „high five“ og „klesst’ann“ og hvað þessar kveðjur heita nú allar saman! Margs er að minnast og flest- ar minningar kærar og góðar. Ég mun sakna míns góða vinar, Braga á Vatnsleysu, en minning- in um góðan og heilsteyptan og ekki síst glaðværan mann lifir í huga okkar sem kynntumst honum. Eymundur Sigurðsson. Bragi Þorsteinsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGÞÓRA ÁSGEIRSDÓTTIR, Boðaþingi 5, Kópavogi, lést á Hrafnistu, Boðaþingi, mánudaginn 3. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Börn og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS MAGNÚSDÓTTIR, lést á Ullerntunet Sykehjem í Osló föstudaginn 31. ágúst. Bálför hennar fór fram miðvikudaginn 12. september í Osló. Minningarathöfn og kveðjustund fer fram í Fossvogskapellu þriðjudaginn 25. september klukkan 13. Aska hennar verður jarðsett í Sóllandi, Fossvogskirkjugarði, að lokinni minningarathöfn. Eva Vilhelmína Markúsdóttir Jóhann Þórir Jóhannsson Helga Rakel Guðrúnardóttir Magnús Torfi Jóhannsson Eiginmaður minn, ástvinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, LÚÐVÍG A. HALLDÓRSSON, fv. skólastjóri í Stykkishólmi, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 19. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 28. september klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Alzheimersamtökin. Guðrún R. Kristjánsdóttir Guðrún I. Árnadóttir Grétar F. Jakobsson Guðrún H. Hjálmarsdóttir Lára Lúðvígsdóttir Sigurður G. Guðjónsson Halldór Lúðvígsson Margrét Sigurðardóttir María R. Lúðvígsdóttir Björgvin G. Sigurðsson afa- og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.