Morgunblaðið - 24.09.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018
Veður víða um heim 23.9., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 7 léttskýjað
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 14 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 12 léttskýjað
Lúxemborg 11 rigning
Brussel 10 rigning
Dublin 11 léttskýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 13 heiðskírt
París 14 rigning
Amsterdam 11 skúrir
Hamborg 10 skýjað
Berlín 10 rigning
Vín 16 skýjað
Moskva 11 heiðskírt
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 29 heiðskírt
Mallorca 28 heiðskírt
Róm 25 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 4 skúrir
Montreal 12 skýjað
New York 17 rigning
Chicago 17 heiðskírt
Orlando 30 þrumuveður
24. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:17 19:23
ÍSAFJÖRÐUR 7:22 19:28
SIGLUFJÖRÐUR 7:05 19:11
DJÚPIVOGUR 6:47 18:53
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Suðvestan 13-18 m/s með úrhellisrign-
ingu, en hægara og úrkomuminna norðantil á land-
inu. Hiti 6 til 11 stig. Lægir með kvöldinu og dregur
úr vætu vestanlands.
Suðvestanátt, 10-18 m/s, hvassast við ströndina, og víða rigning en lengst af hægari og þurrt
norðaustantil. Dregur úr rigningu seinni partinn og lægir heldur suðvestantil í kvöld. Hiti 1-8 stig.
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segist hafa trú á því að með
myndun „ofurbandalags“ í komandi
kjaraviðræðum geti félög verslun-
armanna og starfsgreinasamböndin
náð miklum árangri.
Ragnar Þór segist hafa boðað til
fundar síðastliðinn miðvikudag
með þeim formönnum starfs-
greinafélaganna sem hafi komist á
hann í höfuðstöðvum VR, þar sem
ræddur hafi verið möguleikinn á
samstarfi. Hann segir að mikill
samhljómur hafi verið á þeim
fundi, og að áherslur félaganna í
kröfugerðum, sem nú eru í vinnslu,
séu svipaðar. „Fundurinn var mjög
jákvæður svo ekki sé meira sagt.
Við höfum verið í samstarfi við Efl-
ingu, en ef landssamböndin, bæði
Starfsgreinasambandið og Lands-
samband íslenskra verslunar-
manna, ákveða að fara saman, þá
er þetta gríðarlega stór hópur og
öflugur til þess að fara saman í
næstu kjarasamninga.“
Ragnar segir að samhljómurinn
hafi ef til vill verið vegna þess að
spjótin beinist nú mikið að stjórn-
völdum vegna ákvarðana kjararáðs,
sem hafi hækkað laun embættis-
manna langt umfram það sem eðli-
legt gæti talist. „Það er grunnurinn
að þessum samstarfsvilja; að krefja
stjórnvöld um að þau sýni í verki að
þau vilji stöðugleika, ekki bara á
vinnumarkaði heldur í landinu, og
þá verði þau að koma með meira að
borðinu.
Ég er mjög
bjartsýnn á fram-
haldið þótt það sé
ekkert í hendi,“
segir Ragnar en
næsta skref verð-
ur fyrir félögin
að skila inn um-
boði sínu og klára
kröfugerðir, sem
verður nú á
næstu vikum.
„Við munum hittast í framhaldi af
því og þá verður tekin ákvörðun um
hvort farið verður í formlegt sam-
starf eða viðræður um formlegt
samstarf,“ segir Ragnar.
Kröfurnar skipta meira máli
Signý Jóhannesdóttir, formaður
Stéttarfélags Vesturlands, segir fé-
lagið ekki hafa tekið afstöðu til
þessara samstarfshugmynda, en fé-
lagið gekk til liðs við Flóabandalag-
ið í síðustu kjaraviðræðum. „Það má
segja að boltinn hafi svolítið legið
hjá nýjum formanni Eflingar, hvort
hún vilji viðhalda Flóabandalaginu,
og hún þarf eiginlega að svara því.“
Signý segir að hin félögin í
bandalaginu, VSFK, Hlíf og Stétt-
arfélag Vesturlands, séu í samstarfi
þessa dagana og að meðal annars sé
nú í gangi Gallup-könnun sem lögð
er fyrir félagsmenn þessara félaga,
bæði um kjör og viðhorf til komandi
kjarasamninga. „Það skiptir meira
máli, þegar menn koma að borðinu
með kröfurnar, að þær séu sam-
stilltar, en það skiptir ekki öllu máli
hverjir fara saman, það hefur verið
með ýmsu móti.“
Ótímabært að ræða samstarf
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, segir
ótímabært að ræða hverjir muni
starfa saman í kjarasamningunum.
Starfsgreinasambandið hafi sett sér
ákveðna verkáætlun í vor, þar sem
félögin hefðu frest til 25. september
til þess að skila inn umboðum til
Starfsgreinasambandsins og þá
ættu þau líka að setja fram hug-
myndir að kröfugerð. „Þegar það er
búið ætlum við að hittast 4. og 5.
október, þeir sem hafa veitt Starfs-
greinasambandinu umboð, og búa
til kröfugerð sambandsins. Eftir
það er spurning hvað gerist, en við
erum í þessum farvegi þannig að við
tökum ekki ákvarðanir fyrr en hann
er búinn.“ Björn segir málin ein-
faldlega í ákveðnu ferli og þegar því
sé lokið muni samninganefnd sam-
bandsins taka ákvörðun um fram-
haldið.
Undirbúningur félaganna fyrir
komandi kjaraviðræður hafi gengið
mjög vel og búið sé að vinna heil-
mikið í kröfugerðunum. „Þá hafa
menn verið mjög duglegir að ræða
við sína félagsmenn, bæði á fundum
og með skoðanakönnunum og allt
mögulegt, þannig að ég held að fé-
lögin innan Starfsgreinasambands-
ins séu betur undirbúin en oft áð-
ur,“ segir Björn og bætir við að
hann telji menn mjög spennta fyrir
þeim viðræðum sem fram undan
eru.
Mikill samhljómur um áherslur
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist bjartsýnn á myndun „ofurbandalags“ fyrir komandi
kjaraviðræður Engar ákvarðanir verða teknar fyrr en kröfugerðir liggja fyrir segir formaður SGS
Ragnar Þór
Ingólfsson
Björn
Snæbjörnsson
Signý
Jóhannesdóttir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Notast verður við nýja tækni sem
byggist á númerplötugreiningu þeg-
ar gjaldtaka í Vaðlaheiðargöngum
hefst síðar á þessu ári. Ráðgert er að
göngin verði opnuð 1. desember nk.
en vonir standa til að hægt verði að
hefja gjaldtöku samtímis. Valgeir
Bergmann, framkvæmdastjóri
Vaðlaheiðarganga, segir að fyrr-
greind gjaldtaka byggist á sambæri-
legri tækni og notast er við í Hval-
fjarðargöngum. „Það verða
myndavélar við göngin sem taka
mynd af bílnum og lesa um leið núm-
eraplötuna líkt og gert er þegar fólk
er með áskrift í Hvalfjarðargöngum.
Hjá okkur verður þetta hins vegar
þannig að eftir að myndin er tekin les
hugbúnaður númerplötuna og kann-
ar hvort viðkomandi bílnúmer sé í
áskrift. Ef ekki er eigandi bílsins
fundinn í eigendaskrá og rukkunin
send í heimabanka hans,“ segir Val-
geir og bætir við að hægt verði að
kaupa áskrift í snjallforriti eða á net-
inu. Þar verður boðið upp á magnaf-
slátt fyrir þá sem kaupa margar ferð-
ir fyrirfram en einnig stendur fólki til
boða að borga fyrir hvert skipti sem
ekið er um göngin.
Dregur úr líkum á slysi
Bifreiðum sem ekið verður um
göngin verður skipt í tvo þyngd-
arflokka og rukkað verður í samræmi
við það. „Verðskráin er farin að taka
á sig einhverja mynd en hún getur
auðvitað breyst eitthvað. Það má
gera ráð fyrir því að bílar sem vega
yfir þrjú og hálft tonn verði rukkaðir
um allt að sex þúsund krónur en bílar
sem vega minna verði rukkaðir um
tæplega tvö þúsund krónur. Þetta er
því um tvöfalt dýrara en þegar ekið
er um Hvalfjarðargöngin enda var
þetta tvöfalt lengri og dýrari fram-
kvæmd,“ segir Valgeir.
Að sögn Valgeirs mun nýja tæknin
ekki einungis einfalda ökumönnum
lífið heldur mun slysahætta einnig
dragast talsvert saman. „Það hefur
hingað til verið þannig að við skýlin
og hliðin þar sem fólk greiðir fyrir að
fá aka um viðkomandi göng eykst
slysahætta. Það er sökum þess að
fólk er að hægja á sér og taka beygj-
ur nálægt stöðunum þar sem rukkað
er. Í þessu nýja „sýstemi“ sér fólk
myndavélarnar ekki og hagar sér í
samræmi við það. Flæðið verður því
talsvert betra og minnkar um leið lík-
ur á slysi, segir Valgeir.
Skilar um milljarði króna á ári
Spurður hversu miklum tekjum
hann búist við að gjaldtakan muni
skila árlega segir Valgeir það geta
verið breytilegt. Miðað við núverandi
áætlanir megi þó gera ráð fyrir að
heildartekjur verði frá um 800 millj-
ónum til eins milljarðs króna. „Þetta
getur auðvitað breyst enda er um-
ferðarflæðið mjög mismunandi eftir
árstíðum auk þess sem mismunandi
gjald er greitt fyrir misþunga bíla.
Þetta eru hins vegar þær tölur sem
við erum að sjá miðað við núverandi
forsendur,“ segir Valgeir.
Nýta sér nýja tækni við gjaldtöku
Ráðgert að tekjur vegna gjaldtöku í Vaðlaheiðargöngum verði í kringum milljarður króna árlega
Notast við tækni sem byggist á greiningu númeraplatna Áskrift keypt á netinu eða í snjallforriti
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vaðlaheiðargöng Ráðgert er að gjaldtaka hefjist á sama tíma og framkvæmdum lýkur 1. desember nk.