Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar að gera eitthvað alveg spes
í dag sem þú gerir aldrei! Þú vilt ævintýri og
spennu. Hentu fjörefnunum og einbeittu þér
að því að laða að þér rausnarlegri manngerðir.
20. apríl - 20. maí
Naut Allt virðist ætla að ganga upp hjá þér svo
það er ærin ástæða til að fagna með góðum
vinum. Vandaðu samt valið og taktu ákvörðun
um með hverjum þú vilt eyða tíma þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú vilt ná árangri í því sem þú ert að
gera og dagurinn í dag ætti að skila þér góðum
árangri. Þú hefur komið þér vel fyrir og mátt
njóta ávaxtanna af erfiði þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þig langar til þess að deila gleði þinni
með öðrum en það er vandi að gera það svo
vel fari. Talaðu hreint út við vinnufélaga þína
og hugaðu betur að sjálfum þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Skipuleggðu vinnutímann betur og leit-
aðu aðstoðar með það sem þarf. Vandamál
sem hefur íþyngt þér um hríð virðist skyndi-
lega ofur einfalt. Loksins eru fjármálin á réttri
leið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Passaðu þig á einhverjum sem reynir
að slá ryki í augun á þér með vanmætti sínum.
Maður verður hamingjusamur og heill ef mað-
ur ákveður að láta sér líða þannig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhverjir vilja pranga inn á þig hlutum
sem þú hefur í raun og veru enga þörf fyrir.
Mundu að það eru takmörk fyrir öllu, líka því
sem hægt er að semja um.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu því að sýna öllum hlutum
lotningu og njóta þess, sem þeir hafa upp á að
bjóða með virðingu og þakklæti. Framlag þitt
fer ekki framhjá yfirmönnum þínum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinum og fjölskyldu gæti fundist
þú vera að yfirgefa þau þegar þú ferð einn að
sinna alls konar iðju. Láttu þetta ekki ganga
þér of nærri og fylgdu hjarta þínu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ágreiningur milli þín og annarrar
manneskju gæti breyst í alvarlegar deilur í dag.
Láttu það ekki stjórna þér því það sem þeir
halda um þig kemur því ekki við hver þú ert.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Bjóddu fólki heim til þín og njóttu
góðra stunda í félagi við fjölskylduna. Fólk sem
er ólíkt þér verður skyndilega aðlaðandi og
eitthvað gæti slegið þig út af laginu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gamansögur þínar létta bæði líf og
lund en rétt er að hafa í huga að öllu gamni
fylgir nokkur alvara.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir áLeir um „Plastlausan sept-
ember“:
Hún Tóta í tiltektarkasti
tæmdi alla skápa í hasti
var búin að moka
Brynleifi’ í poka
og fargaði í flýti öllu plasti.
Helgi R. Einarsson skrifar mér
að hann finni til með Þengli lækni
eftir að hafa lesið Vísnahornið á
miðvikdaginn og bæti þessu því við:
Um læknisins orð og æði
ég örlítið meira nú ræði.
Kosturinn er
að hann úr sig ei sker
á sínu vinnusvæði.
Dr. Sturla Friðriksson orti í Jó-
hannesarborg í Suður-Afríku 1974
um hjartaflutning:
Menn skipta í skyndi á hjörtum
og skeyta í líkamann pörtum.
En skratti er skítt
þegar skinnið er hvítt
að fá hjörtun og sviðin úr svörtum.
Jóhann S. Hannesson orti:
Að uppruna erum við norsk,
að innræti meinleg og sposk,
en langt fram í ættir
minna útlit og hættir
á ýsu og steinbít og þorsk.
Og síðan eftir Kristján Karlsson:
Eitt haustkvöld við hrafnatóttir
fór harður gustur um dróttir.
„Þessi útsynningur
er einn langur fingur,“
mælti uppstaðin bóndadóttir.
Þessa limru eftir Guðmund Arn-
finnsson fann ég í sarpi mínum og
er komin til áranna:
Ófrýnn var Lágafells-Ljótur,
sá langi og horaði þrjótur,
með lafandi vör
sem lýtti ör,
en ljótari var samt hans fótur.
Þessi limra Eysteins frá Skál-
eyjum, „Áreitni á vinnustað“, rifj-
ast upp eins og eðlilegt er:
Strákurinn stelpuna greip í,
strauk hana, þuklaði, kleip í.
Viðþolið missti,
meyjuna kyssti
umlandi „I love you baby“.
Hjörtur Pálsson yrkir um
„Trúarhita“:
„Nú sé hann með yður,“ sagði
sérann og kollhúfur lagði
- við altarið kraup
og á honum saup
og varð augafullur að bragði.
Inghildur austan kvað:
Frú Halldóra Hauksmýrarlóa
í hreiðrið sitt vildi fá kjóa,
því Lói kunni ekki lagið
honum lét ekki fagið
að koma og kveða burt snjóa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mikið um limrur nú og þá
HÚN VAR NÁLÆGT. HANN HEFÐI ÞEKKT
ÞETTA ILMVATN HVAR SEM VAR.
„TEKUR ÞETTA NOKKUÐ LANGAN TÍMA?
FYRSTA VEÐHLAUPIÐ BYRJAR EFTIR
TUTTUGU MÍNÚTUR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann spyr
hvort þú sért upptekin
það sem eftir er
ævinnar!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SJÁUM TIL... VIÐ GERUM
EITTHVAÐ MENNINGARLEGT...
EN LÍKA SKEMMTILEGT.
HÉRNA ER GÓÐUR STAÐUR... RJÓMAÍS-
SAFNIÐ!
ÉG HEF ALDREI
ÁÐUR KLIFIÐ
TÓLF METRA
FROSTPINNA!
MIG LANGAR Í MALTAÐ ÖL, EKKI OF
BITURT, MEÐ KEIM AF KIRSUBERJUM,
SÍTRUS OG TÓBAKI!
Í útvarpsþætti á Rás 1 á dögunumvar brugðið upp svipmyndum af
lífinu í Reykjavík í kringum 1960.
Húsnæðisskortur á þeim tíma var
mikill sagði í þættinum; í Vísi aug-
lýstu 40 eftir íbúð eða herbergi til
leigu. Auglýsingar um húsnæði í boði
voru á hinn bóginn ekki nema tíu
talsins. Af þessu mætti ætla að hve
marga á höfuðborgarsvæðinu vantar
alltaf þak yfir höfuðið sé fremur lög-
mál en tímabundinn vandi. Að
minnsta kosti smellpassaði þessi lýs-
ing inn í aðstæður dagsins í dag.
x x x
Í síðastliðinni viku var frá því greintað VÍS hefði ákveðið að loka
nokkrum af umboðsskrifstofum sín-
um úti á landi. Er viðskiptavinum
bent á nota sér stafræna þjónustu í
stað þess að sækja afgreiðslu yfir
borðið. Vissulega eru þessar ráðstaf-
anir í samræmi við tækniþróun og
tímans þunga nið. Hitt ber að hafa í
huga að mat margra sem standa í
fyrirtækjarekstri er að betra sé, við
vissar aðstæður, að vera með starf-
semina úti á landi en borginni.
Launa- og húsnæðiskostnaður sé
lægri, starfsmannavelta minni, takt-
urinn í samfélaginu rólegri svo fólk
afkastar meira og svo framvegis.
Með fjarskiptatækni nútímans sé
flest mögulegt og mörgum störfum
sé jafnvel hægt að sinna úti á landi
en í borginni. Þetta má gjarnan hafa
í huga þegar ýmis fyrirtæki, fleiri en
tryggingafélagið, eru að grisja í
starfsemi sinni utan borgarinnar.
x x x
Á þessu ári hefur verið bryddaðupp á mörgu athyglisverðu í
sambandi við aldarafmæli fullveldis
Íslands. Víkverji ætlar viljandi að
sleppa því að ræða Þingvallafundinn,
en almennt má segja að lítill hljóm-
grunnur hafi verið fyrir dagskránni.
Skiljanlega; fullveldið fékkst fyrir
100 árum síðan og þótt það hafi verið
mikilsverður áfangi í sögu þjóðar er
bara svo margt annað nær í tíma
sem má minnast. Atburðir sem
mörkuðu skil á vegferð fullvalda
þjóðar. Og svo verður að segjast eins
og er að margt í dagskránni virðist
fremur vera fyrir aðalinn en alþjóð.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Kenn mér að gera vilja þinn því að þú
ert Guð minn, þinn góði andi leiði
mig um slétta braut.
(Sálm: 143.10)