Morgunblaðið - 24.09.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.09.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Þorskhnakkar Fiskréttir í ofninn Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný ýsa Gómsætir réttir í fiskborði til að taka með heim Saltfiskur Kinnar og gellur Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Á miðhálendi Íslands er að finna alls tæp- lega 600 byggingar tengdar ferðaþjónustu, sem dreifast á tæplega 200 staði. Yfirgnæf- andi meirihluti ferðaþjónustubygginga á miðhálendinu eru litlir fjallaskálar, 50 fer- metrar eða minni. Þetta kemur fram í nýút- kominni skýrslu Skipulagsstofnunar um mannvirki á miðhálendi Íslands. Í úttektinni er að finna skrásetningu mannvirkja á hálendinu sem unnin var í samvinnu við Þjóðskrá og sveitarfélög. „Sér- staka athygli vekur að aðeins um 60% þeirra bygginga sem skráðar hafa verið í verkefn- inu eru skráð í fasteignaskrá Þjóðskrár Ís- lands,“ segir í skýrslunni og að þörf sé á sér- stöku átaki þjóðskrár og sveitarfélaga sem fara með stjórnsýslu á miðhálendinu að bæta úr þessu. Almennt er ástand þessara bygginga met- ið gott eða sæmilegt, en þó eru sögð dæmi um að úrbóta sé þörf eða að mannvirki séu talin ónothæf. Fram kemur að í öllum meg- inatriðum hafi stefna svæðisskipulags miðhá- lendisins gengið eftir hvað varðar umfang, staðsetningu og eðli uppbyggingar ferða- þjónustu. Skipulagsstofnun bendir á að fjöldi ferða- þjónustubygginga og gistirúma hefur staðið nokkuð í stað á miðhálendinu síðastliðin 20 ár, eða frá því gert var svæðisskipulag fyrir miðhálendið. Á miðhálendinu eru ferðaþjón- ustubyggingar á 197 stöðum. Þar af eru fjór- ir staðir skilgreindir sem jaðarmiðstöð, sjö hálendismiðstöðvar og 28 skálasvæði sam- kvæmt landsskipulagsstefnu. Einnig eru 145 ferðaþjónustustaðir sem falla í flokk fjalla- selja að því er segir í skýrslunni. Heildarflatarmál ferðaþjónustubygginga á miðhálendinu er samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um 27.000 fermetrar. Veitingar í boði á 16 stöðum „Við gagnaöflun fyrir kortlagningu ferða- þjónustubygginga var óskað eftir lauslegu mati á ástandi ferðaþjónustubygginga, frá sveitarfélögum, þjónustuaðilum og öðrum staðkunnugum. Niðurstöður þeirrar athugunar eru að um 70% af þeim byggingum, þar sem upplýs- ingar voru fyrir hendi, eru metnar í góðu ástandi, um 20% voru taldar í sæmilegu ástandi og um 10% í slæmu ástandi. Sam- kvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er ein- hvers konar salernisaðstaða og vatnsveita á nær öllum ferðaþjónustustöðum á hálend- inu,“ segir í úttektinni. Alls eru 4.675 gistirúm á miðhálendinu samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum og veitingar eru í boði á 16 stöðum á hálendinu. Ennfremur má sjá í skýrslunni að skv. fyrirliggjandi upplýsingum eru hesthús eða önnur gripahús á rúmlega 50 ferðaþjónustu- stöðum á miðhálendinu eða alls rúmlega 70 byggingar. Stórar virkjanir og orkuflutningsmann- virki er sem kunnugt er að finna á hálend- inu. Alls eru þar fimm vatnsaflsvirkjanir með aflstöðvum og mannvirkjum tengdum þeim, svo sem lónum og stíflum á miðhálend- inu og um það liggja átta 220 kV háspennu- línur, það er Búðarhálslína 1, Hrauneyjafoss- lína 1, Sigöldulínur 2 og 3, Sultartangalínur 1, 2 og 3 og Vatnsfellslína 1. Einnig liggur hluti af Byggðalínu (132 kV) inn á miðhá- lendið. 54 þjóðvegir en margir slóðar óskráðir Þegar litið er á vegakerfi hálendisins kem- ur í ljós að sá hluti þjóðvegakerfisins sem liggur innan miðhálendisins telur alls 54 vegi. Þar liggja fjórir stofnvegir, Kaldadals- vegur, Kjalvegur, Sprengisandsleið og Fjallabaksleið nyrðri. Þá liggja víða vegir og vegslóðar um miðhálendið sem ekki tilheyra þjóðvegakerfinu og hafa ekki verið skráðir en bent er á að á næstu árum sé þess að vænta að sveitarfélög sem land eiga inn á miðhálendið gangi frá skrám yfir þessa vegi og þá muni fást formleg vegaskrá yfir allt vegakerfi hálendisins. „Á miðhálendinu eru fjarskiptamannvirki á 22 stöðum. Í flestum tilfellum er um að ræða mastur og lítið hús sem hýsir tækni- búnað. Hæð mastra er mismunandi en flest eru þau 8-20 m, en hæst er 42 m stálgrind- armastur við Snjóöldu í Rangárþingi ytra,“ segir í skýrslunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjallaskáli Skagfjörðsskáli í Þórsmörk. Fjöldi ferðaþjónustubygginga og gistirúma hefur staðið nokkuð í stað á miðhálendinu síðastliðin 20 ár. 600 byggingar eru á miðhálendinu  Aðeins um 60% bygginga eru skráð í fasteignaskrá Þjóðskrár  4.675 gistirúm eru á miðhálendinu Ferðaþjónustustaðir á miðhálendinu Mörk miðhálendis Kort: Mannvirki á miðhálendinu – Skipulagsstofnun, september 2018 Hálendismiðstöð Jaðarmiðstöð Skálasvæði Fjallasel Annað Kaupfélagi Norðurfjarðar verður lokað á næstu dögum og þá verður engin verslun eftir í Árneshreppi. Ólafur Valsson dýralæknir rak verslunina síðastliðið ár og segir mikla fólksfækkun hafa gert rekst- urinn erfiðan. „Í fyrravetur voru 16 til 20 manns þarna að staðaldri en í sumar og haust fluttu sex eða átta og það segir sig sjálft að það er ekki hægt að reka verslun fyrir 10 manns.“ Ólafur segir áform um Hvalár- virkjun hafa haft neikvæð áhrif á samfélagið í Árneshreppi. „Ég er ekki í nokkrum vafa um það og held að Hvalárvirkjun sé banabiti Árneshrepps. Ég held að margir hafi flutt einmitt vegna þessarar niðurstöðu.“ Hann kveðst þó ánægður með að hafa tekið rekstur verslunarinnar að sér á sínum tíma. „Í sannleika sagt var þetta mjög skemmtilegt verkefni og ofsalega lærdómsríkt. Ég á tryggum kúnnum margt að þakka og mér finnst mikil synd að geta ekki skaffað þeim sem enn búa í Árneshreppi nauðþurftir.“ ragnhildur@mbl.is Morgunblaðið/Golli Virkjunarsvæði Ólafur segir að fólksfækkun stafi af fyrirhugaðri virkjun. Segir Hvalárvirkjun banabita hreppsins  Síðustu verslun Árneshrepps lokað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.