Morgunblaðið - 24.09.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018
RAFVÖRUR ehf
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Sorpkvarnir
í vaska
rafvorur.is
vikum til þess að þrýsta á May um að
láta ekki undan kröfum Evrópusam-
bandsins í viðræðunum. Tímasetn-
ing mótmælafundanna er ekki síst
tilkomin þar sem flokksþing Íhalds-
flokksins verður haldið í Birming-
ham í byrjun næstu viku en líklegt er
að þar verði tekist nokkuð á um
stefnu May í Brexit-málum. Hefur
því jafnvel verið fleygt að staða May
sem leiðtoga flokksins gæti verið í
hættu fari flokksþingið illa.
Brexit-mál munu einnig verða í
fyrirrúmi á flokksþingi Verka-
mannaflokksins, sem hófst í Liver-
pool í gær, en ein tillagan sem þar
verður útkljáð er hvort flokkurinn
muni styðja aðra þjóðaratkvæða-
greiðslu um Brexit.
Corbyn hefur hingað til ekki viljað
ljá slíku stuðning sinn en sagðist
myndu styðja aðra atkvæðagreiðslu
ef flokksmenn greiddu tillögunni at-
kvæði. Myndi það marka nokkur
þáttaskil í stefnu Verkamanna-
flokksins, en stór hluti þingmanna
hans hefur ekki farið leynt með and-
úð sína á Brexit á sama tíma og mik-
ið af kjarnafylgi flokksins hefur stutt
útgönguna.
Hávær kosningaorðrómur
Þá hafa á síðustu vikum heyrst há-
værar slúðursögur um að May vilji
boða til kosninga í haust í þeirri von
að þær myndu bjarga stöðu hennar,
bæði á þingi og í viðræðunum gagn-
vart ESB. Breska dagblaðið Sunday
Times greindi frá því í gær að ráð-
gjafar May hefðu farið að skoða
þann möguleika að boða til kosninga
í nóvember af fullri alvöru eftir að
Salzborgarfundurinn á fimmtudag-
inn fór út um þúfur. Talsmaður May
hafnaði því hins vegar algjörlega að
verið væri að íhuga kosningar.
Þá greindi blaðið frá því að vissum
ráðherrum Íhaldsflokksins hefði
verið sagt að May hygðist láta af
embætti næsta sumar til þess að
koma í veg fyrir að þeir segðu af sér í
haust og yllu May enn frekari póli-
tískum skaða á viðkvæmum tíma.
Viðræðurnar í hnút
Theresa May þykir standa höllum fæti eftir leiðtogafund ESB á fimmtudag
Verður boðað til kosninga? Corbyn gæti stutt aðra atkvæðagreiðslu
AFP
Brexit Theresa May flytur ávarp sitt til bresku þjóðarinnar um stöðu við-
ræðnanna á föstudaginn, en þar krafði hún ESB um að sýna virðingu.
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, þykir standa höllum fæti
eftir að leiðtogar hinna ríkja Evr-
ópusambandsins höfnuðu hugmynd-
um hennar um útgöngu Breta úr
sambandinu á leiðtogafundi í Salz-
burg á fimmtudaginn. Voru breskir
fjölmiðlar á einu máli um að May
hefði verið „niðurlægð“ á fundinum,
þar sem helstu tillögur hennar, sem
kenndar eru við breska sveitasetrið
Chequers, hefðu verið skotnar niður.
May flutti ávarp til landa sinna á
föstudaginn þar sem hún varaði við
því að hún væri tilbúin til þess að
ganga frá samningaborðinu og að
framganga Evrópusambandsríkj-
anna í samningaviðræðunum væri
óviðunandi, þar sem allar tillögur
Breta væru slegnar af borðinu, þrátt
fyrir að naumur tími væri til stefnu.
„Í gegnum allt þetta ferli hef ég
komið fram við ESB af fullri virð-
ingu. Bretland krefst þess sama,“
sagði May í ávarpi sínu frá Down-
ingstræti 10.
Flokksþing standa fyrir dyrum
Harðlínumenn í útgöngumálum,
með David Davis, fyrrverandi ráð-
herra Brexit-mála, í fararbroddi,
hófu á laugardaginn mótmælaher-
ferð og hyggjast þeir halda útifundi
vítt og breitt um Bretland á næstu
Þessi kona var ein af mörg þúsund mótmælendum sem
þyrptust út á götur Managva, höfuðborgar Níkaragva,
í gær. Mótmæli hafa staðið gegn ríkisstjórn Daniels Or-
tega síðustu mánuði, en þau byrjuðu þegar mótmæli
gegn breytingum á velferðarkerfinu voru leyst upp
með ofbeldi í apríl síðastliðnum. Hefur krafa mótmæl-
enda síðan þá verið sú að Ortega láti af völdum, en um
þrjú hundruð manns hafa látist í óeirðunum.
AFP
Enn mótmælt gegn ríkisstjórn Ortega
Dr. Christine
Blasey Ford,
konan sem sakað
hefur Brett Kav-
anaugh, sem út-
nefndur hefur
verið til setu í
hæstarétti, um
að hafa beitt sig
kynferðislegu of-
beldi, mun bera
vitni fyrir dóms-
málanefnd öldungadeildar Banda-
ríkjaþings á fimmtudaginn. Lög-
menn hennar sögðu að mikilvægt
væri að þingmenn heyrðu sögu
hennar áður en þeir greiddu at-
kvæði um Kavanaugh. Hann hefur
hins vegar neitað öllum ásökunum
Ford og segist líka vilja fá að bera
vitni til þess að geta „hreinsað nafn
sitt“.
Ber vitni fyrir þingi
á fimmtudaginn
Brett
Kavanaugh
BANDARÍKIN
Talsmenn rússneska hersins sögðu
í gær að „misvísandi“ upplýsingar
frá ísraelska flughernum hefðu
valdið því að sýrlenski stjórnarher-
inn grandaði rússneskri herflutn-
ingavél í síðustu viku. Fordæmdu
þeir um leið „ævintýramennsku“
ísraelsku flugmannanna, sem hefðu
skýlt sér á bak við rússnesku vélina
þegar skotið var á þá. Ísraelsk
stjórnvöld mótmæltu ásökunum
Rússa og hétu því að þau myndu
áfram gera allt sem í sínu valdi
stæði til að koma í veg fyrir aukin
ítök Írana í Sýrlandi.
Kenna Ísraelum um
árásina á þotuna
RÚSSLAND
Fimm af þeim fimmtán þingmönn-
um danska Sósíaldemókrataflokks-
ins sem danska ríkisútvarpið, DR,
ræddi við um helgina sögðust opnir
fyrir því að flokkur sinn myndaði
ríkisstjórn með Danska þjóðar-
flokknum. Hinir tíu vísuðu á forystu
flokksins, en enginn útilokaði að til
lengri tíma mætti skoða mögu-
leikann á slíku samstarfi.
Í fréttaskýringu DR er tíundað að
flokkarnir hafi komist að því að þeir
eigi samleið í fleiri málum en talið
var fyrir, en flokkarnir hafa jafnvel
myndað meirihluta saman á sveit-
arstjórnarstiginu. Mette Freder-
iksen, formaður
flokksins, hafi
hins vegar ann-
aðhvort þvertek-
ið fyrir mögu-
leikann eða veitt
loðin svör þegar
spurninguna hef-
ur borið á góma.
Bjarne Laust-
sen, varafor-
maður atvinnu-
nefndar danska þingsins, líkti
mögulegu samstarfi flokkanna við
tilhugalíf fólks, þar sem það ætti í
sambandi fyrst áður en það tæki
ákvörðun um að gifta sig. Þá sagði
Laustsen einnig að ef málið snerist
um að halda Lars Løkke Rasmussen
og bandalagi hægriflokkanna frá því
að gera skyssur við stjórn ríkisins
kæmi vel til greina að senda boð til
Danska þjóðarflokksins.
Nicolai Wammen, fyrrverandi
varnarmálaráðherra, sagði hins veg-
ar spurninguna ótímabæra, þar sem
flokkurinn stefndi að því að mynda
„hreina stjórn jafnaðarmanna“ eftir
næstu þingkosningar, en þær fara
fram í síðasta lagi 17. júní 2019, á
meðan Þjóðarflokkurinn hefði lýst
yfir stuðningi við hægriflokkana.
Opna á samstarf með Þjóðarflokknum
Mette
Frederiksen