Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 19

Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 ✝ SveinbjörnMagnússon fæddist í Reykjavík 23. júní 1945. Hann lést á HSN-Húsavík 13. september 2018. Eftirlifandi eig- inkona hans er Anna Sigrún Mika- elsdóttir, fædd á Húsavík 3. nóv- ember 1948. Faðir Sveinbjörns var Magn- ús Sveinbjörnsson, f. í Reykja- vík 17. maí 1911, d. 4. júlí 1989 í Reykjavík. Móðir Sveinbjörns var Ingveldur Guðmundsdóttir, f. í Reykjavík 19. mars 1911, d. 14. ágúst 1991 á Húsavík. Systkini Sveinbjörns: Eiríkur Rafn Thorarensen, fæddur í Reykjavík 24. nóvember 1929, dáinn 27. júlí 2015. Guðlaug Magnúsdóttir, fædd í Reykjavík 30. júlí 1935, dáin 29. október 1997. Helga Magnúsdóttir, fædd í Reykjavík 6. maí 1940, dáin 2. febrúar 2016. Birna Magn- Hans dætur eru: Aðalheiður Rut Einvarðsdóttir, f. 17. janúar 1997 og Eva Marín Einvarð- sdóttir, f. 23. október 1999. 2) Helga Sveinbjörnsdóttir, fædd á Húsavík 1. mars 1970. Börn hennar eru: Sveinbjörn Ingi Grímsson, f. 19. mars 1990 og Hólmfríður Agnes Grímsdóttir, f. 8. október 1991. Maki Helgu er Heiðar Smári Þorvaldsson, f. 24. mars 1974. Sonur hans er Arnór Ingi Heiðarsson, f. 2. maí 1998. 3) Guðný Sveinbjörns- dóttir, fædd á Húsavík 27. maí 1973. Hennar börn eru Erja Leandersdóttir, f. 30. desember 1999, Erik Leandersson, f. 28. nóvember 2003 og Aron Leand- ersson, f. 15. ágúst 2006. 4) Inga Maren Sveinbjörnsdóttir, fædd á Húsavík 24. október 1974. Maki Ingu Marenar er Valgeir Baldursson, f. 18. mars 1967. Börn þeirra eru: Anna Jónína Valgeirsdóttir, f. 14. september 1994, Sylvía Rún Valgeirsdóttir, f. 24. desember 1996 og Ingvar Örn Valgeirsson, f. 24. ágúst 2003. Sveinbjörn starfaði við Fisk- eldið Haukamýrargili frá árinu 1983 til 2017. Útför Sveinbjörns fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 24. september 2018, klukkan 14. úsdóttir, fædd í Reykjavík 21. des- ember 1941, dáin 23. febrúar 1981. Guðmundur Magnússon, fæddur í Reykjavík 5. ágúst 1943. Ingi- björg Magn- úsdóttir, fædd í Reykjavík 14. maí 1947, dáin 18. jan- úar 2016. Margrét Rósa Magnúsdóttir, fædd í Reykjavík 1. maí 1949, dáin 15. desember 2005. Magnús Magn- ússon, fæddur í Reykjavík 5. janúar 1953. Dætur Sveinbjörns og Önnu Sigrúnar: 1) Sólveig Hallfríður Sveinbjörnsdóttir, fædd á Húsa- vík 25. október 1968. Synir hennar eru; Rúnar Björn Reyn- isson, f. 9. október 1990, Bjarki Reynisson, f. 7. maí 1993 og Björgvin Helgi Hannesson, f. 11. september 1999. Sambýlis- maður Sólveigar er Einvarður Hallvarðsson, f. 27. apríl 1962. Brói, eins og hann var alltaf kallaður, kom inn í fjölskylduna eftir að við Gunnar fluttum frá Húsavík. Það var frá fyrstu tíð svo gaman að koma til Önnu Rúnu og Bróa. Fjölskyldan stækkaði fljótt því dæturnar fjórar fæddust allar áður en þau náðu þrítugsaldri. Brói lærði múrverk og þegar við byggðum okkur hús í Reykjavík kom Brói suður og vann allt sumarfríið sitt við að múra húsið að utan. Ég sá múr- verk í öðru ljósi eftir að hafa fylgst með Bróa vinna, öll smá- atriðin sem hann lagði svo mik- ið upp úr að væru fullkomin, til dæmis tröppurnar. Það var eins sentimetra sneiðingur á hverju þrepi og ég hef hvergi tekið eft- ir jafn fallegum tröppum. Ég hafði haldið að skarpasta brún- in væri rúnnuð af án nákvæmni. Brói var listamaður þó að hann legði litla rækt við það en Leik- félag Húsavíkur naut góðs af hæfileikum hans við leikmynda- gerð. Tíminn sem Brói bjó hjá okkur var okkur dýrmætur. Við kynntust duglegum, ósérhlífn- um og traustum manni. Öllum leið vel í návist hans en hlýju hans og glettni ber þó hæst í minningunni. Við biðjum góðan guð að vernda og blessa Önnu Rúnu og alla aðra sem þótti vænt um Bróa og gefa þeim styrk til að ylja sér við fagrar minningar. Blessuð sé minning Bróa. Þar sem góðir menn fara eru guðs vegir. Helga Karlsdóttir. Á árunum upp úr 1960 fluttu nokkur systkini úr stórri fjöl- skyldu í Reykjavík til Húsavík- ur. Fjögur þeirra settust hér að og þau sem ekki höfðu þegar fest ráð sitt gerðu það næstu árin. Þetta þótti, sem það raun- ar var, allsérstakt landnám og gekk gegn þeim tíðaranda sem íslenskt dreifbýli hafði búið við um áratuga skeið og gerir enn. Það var í upphafi sjöunda áratugarins að sá er hér stýrir penna festi kaup á húsi við Uppsalaveg. Um það leyti voru bræður tveir með vaxandi fjöl- skyldum fluttir í nýbyggð hús sín við næstu götu austar og nær Skógargerði. Urðum við því andbýlingar. Annar þeirra var Sveinbjörn Magnússon, verkhagur geðprýðismaður, rammur að afli, þéttur á velli og þéttur í lund. Þau Anna Rúna og hann höfðu þá fyrir nokkru ruglað reytum og hellt sér í brauðstritið. Þessu landnámi ungra fjölskyldna hér á hæðinni vestan Skógargerðis fylgdi að sjálfsögðu ánægjulegt lífsmark sem tilheyrir leikjum ungra barna og stálpaðra. Hratt flýg- ur stund því nú, þegar ég festi þessar minningar á blað, finnst mér þegar litið er um öxl hún örskoti líkust þessi tæpa hálfa öld í nábýli sem engan skugga bar á. Snar þáttur í auðnu manna og kvenna er mótparturinn og þótt þau Anna Rúna væru um margt ólík eru heimilishagir þeirra og smekkvísi ásamt virð- ingu hvort fyrir öðru þeirrar gerðar að þar hallaðist ekki á. Eitt áhugamála Sveinbjörns á fullorðinsárum var starf hans í Leikfélagi Húsavíkur þar sem listfengi hans og lagni bar hróð- ur félagsskaparins langt út fyr- ir bæjarmörk Húsavíkur. Þar á ég við þátt hans varðandi leik- svið og leiktjöld, en slíkt vill stundum mæta afgangi í um- fjöllun um leikhúsmál. Það var á vordögum í fyrra þegar forboði sumars afklæddi byggðarlagið vetrarhjúpnum að hann greindist með illvígt krabbamein. Sú glíma sem síð- an hefur staðið varð hans helj- arslóð. Það er stutt síðan ég ræddi við hann í stofunni þeirra í Holtagerði. Það fór ekki fram hjá mér að þá hafði degi veru- lega hallað, sól gengin lágt í vestur og vinur vor var ferðbú- inn. Margs er að minnast frá því morgunninn við oss hló á fyrri- hluta sjöunda áratugarins. Svo eitthvað sé nefnt æfðum við unga fólkið handbolta í íþrótta- salnum í Borgarhólsskóla. Í við- ureignum okkar við Akureyr- inga höfðum við jafnan betur þegar á heildina var litið, enda karlinn ekki loppinn á þessum árum. Mannfagnaði í héraði og utan þess sóttum við af miklum móð, svo vel nestaðir að veislu- glaumi þessara ára var við- brugðið. Árstíðirnar taka við ein af annarri og mér koma í hug ljóð- línur nafna míns Fjallaskálds. Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða. Nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða. Gifturíkt lífshlaup er á enda runnið, lífið leiksvið og þessum þætti lokið. Slíkra er gott að minnast. Anna Rúna, börn og fjöl- skyldur eiga samúð okkar Rannveigar. Kristján Pálsson. Sveinbjörn Magnússon Ég minnist þess svo ljóslifandi að hafa staðið við hlið þér, lítil stelpa, fyrir framan spegilinn og dáðst að þér meðan þú varst að mála þig fyrir vinn- una. Ekki það að þú þyrftir að setja nokkuð framan í þig, aldr- ei, en líklega var þetta bara vani hjá þér og þér leið eins og þú værir nakin alveg fram á það síðasta ef rauði varaliturinn var ekki á sínum stað. Síðan þegar ég var orðin unglingur og átti að skammast mín fyrir hallærislegu foreldra mína þá var það ekki al- veg þannig með þig, ég var bara stolt af að eiga svona flotta mömmu en lítið vissi ég þá að þú kunnir aldrei að meta þessa feg- urð, þokka og útgeislun sem þér var gefin og sást seint þá innri fegurð sem þú barst. Það er þó kannski huggun í því að þú sást hana í okkur börnunum þínum. Svo einhvers staðar undir niðri barstu kennsl á fallegt hjartalag þitt. Þú barst af í fegurð en áttir að baki stór áföll í æsku sem þér Edda Sigurðardóttir ✝ Edda Sigurð-ardóttir fædd- ist í Reykjavík 6. júní árið 1951. Hún lést 10. september 2018. Útför Eddu fór fram 21. september 2018. reyndist erfitt að komast yfir og þess vegna áttirðu kannski svona erfitt með að fóta þig, jafn erfiðlega og raun bar vitni. Þú spurðir hvort ég hefði hugsað mér millinafn þegar litla ljósið mitt fæddist. Þér hefði þótt vænt um að hún fengi millinafnið Edda en ég hugsaði og sagði við þig, mamma hvað er í nafni? En núna eftir að þú ert farin þá finnst mér einhvern veginn allt falið í nafni. Þú vissir kannski hversu stutt var eftir hjá þér en ég var í afneitun. Þú áttir þér þann draum heit- astan með okkur börnin þín að líf okkar yrði hamingjuríkt, ég er svo ánægð að þú sást mitt blómstra áður en þú fórst því ég veit hvað það skipti þig miklu máli. Þú varst ekki hin sígilda mamma en þú varst mamma engu að síður og mamma mín og mér þótti alveg óskaplega vænt um þig og meir en það því ég elskaði þig bara alveg út af líf- inu. En ef það er eitthvað sem mig langar til að læra af þér og bera til ástvina minna, þá eru það knúsin, kossarnir og öll þessi tilfinningatjáning sem tíðkaðist auðvitað ekki á þeim tíma sem þú elst upp á. Að því leyti og á svo mörgum öðrum sviðum varstu einstök og langt á undan þínum tíma. Þú sagðir mér frá því þegar þú lást einu sinni fyrir dauð- anum að þú sást ljósið og varst ekki hrædd og þú talaðir ósjald- an um að þetta væri bara ákveð- ið þroskaferli sem við tækjum út hérna á þessari jörð og síðan héldum við áfram annars staðar. Mamma, ég vona að nýi stað- urinn sem þú ert komin á sé eins fallegur og þú hafðir lýst honum fyrir mér, ég vona að þú sért sönglandi meðal ástvina þar. Ég mun sakna þín alltaf og ég hlakka endalaust mikið til að hitta þig aftur og knúsa. Mig langar í lokin að skilja eitt ljóð hér eftir sem þú ortir til mín með kveðjunni „Þín alltaf elsk- andi mamma“: Mín kærust allra dætra. Komdu í fang mitt, leyf mér að vefja þig ást minni og kærleik. Farðu aldrei frá mér, þú líkist stjörnum alheimsins, sem alltaf skína skærast allra ljósa í mannheimum. Aldrei hef ég fundið framtíð þína svo bjarta, þroska þinn og styrk, hugrekki þitt og vilja, afsprengi þitt, sem allsstaðar skýtur niður rótum afmarkar sig og verður að himneskum rósum. Takk fyrir alla ástina og kær- leikann, elsku mamma, takk fyr- ir lærdóminn, takk fyrir allar djúpu samræðurnar, takk fyrir að vera til, takk fyrir að vera mamma mín. Þín alltaf elskandi dóttir, Guðrún Bjarnadóttir. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA FRIÐRIKSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 17. september. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 27. september klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Parkinsonsamtökin. Ingi Sigurðsson Davíð Ingason Matilda Gregersdotter Sigurður Ingason Hafdís Ingadóttir Björgvin Friðriksson og ömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ELÍAS SIGURÐSSON frá Skagaströnd, lést sunnudaginn 16. september. Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 26. september klukkan 13. Hrafnhildur Gunnarsdóttir Helgi Már Magnússon Birgitta Gunnarsdóttir Elva Dögg Magnúsdóttir Sigurður Magnússon Friðgerður R. Auðunsdóttir Bjarney Magnúsdóttir Jóhannes Helgi Benonýsson og barnabörn Ástkær frænka okkar, LILJA HALLDÓRSDÓTTIR, Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 13. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu Systkinabörn og makar Útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar og bróður, SIGURÐAR BERGÞÓRSSONAR, fer fram miðvikudaginn 26. september frá Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan 13. Herdís Stephensen Ingvar Sigurðsson Unnur Sigurðardóttir Steindór Ögmundsson Bergþór Atlason Friðrik Þór Steindórsson Hafdís Snorradóttir Yngvi Steindórsson Hafrún Sigurðardóttir Kveðja frá Kaupmanna- samtökum Íslands Sveinn Snorrason, hrl., lög- maður Kaupmannasamtaka Ís- lands, lést 3. sept. sl. Það er margs að minnast við andlát heiðursmannsins Sveins Snorrasonar. Sveinn var fram- kvæmdastjóri KÍ í fimm ár, eða frá ársbyrjun 1960 til 1. desember 1965. KÍ voru með starfsstöð í tveimur herbergjum á Laugavegi 22 Klapparstígsmegin í næsta ná- grenni við skrifstofu Sveins sem var á Klapparstíg 26, þangað sem svo starfsemi KÍ var flutt. Í fyrstu var þetta hlutastarf hjá Sveini en hann hafði samið um það að hann gæti í fyrstu sinnt lögmannsstörfum sínum sam- hliða. Um þetta leyti höfðu KÍ fengið boð um að senda fulltrúa til Bandaríkjanna til þátttöku í átta vikna kynningarferð um Banda- ríkin, ásamt fulltrúum samtaka verslunar í sjö Evrópulöndum. Þessi ferð var með því fyrsta sem hann annaðist fyrir samtökin. Hér heima var eitt það fyrsta sem á borð Sveins kom, „kartöflumál- ið“ svonefnda, en matvörukaup- menn stóðu í stríði við Grænmet- isverslun landbúnaðarins og höfðu stöðvað sölu á kartöflum vegna afgreiðsluhátta hjá þeim. Á tíma Sveins hjá KÍ og áður og lengi síðar, ríkti hér á landi mikil haftastefna og ríkisforsjá í flestu gagnvart versluninni almennt. Eitt málið var svo kortamálið, en Sveinn Snorrason ✝ Sveinn Snorra-son fæddist 21. maí 1925. Hann lést 3. september 2018. Sveinn var jarð- sunginn 12. sept- ember 2018. kortafyrirtækin eða þóknun til þeirra var mjög há í fyrstu. Sveinn var mjög fastur fyrir í mál- flutningi fyrir sam- tökin, vildi þeim allt það besta í öllum samningum sem hann stóð að. Hann var fulltrúi KÍ í mál- um Lífeyrissjóðs verslunarmanna. KÍ áttu og eiga enn fulltrúa í stjórn sjóðsins. Ennfremur við stofnun Verslunarbanka Íslands hf. á grunni Verslunarsparisjóðsins, svo og stofnun stofnlánadeildar Verslunarbankans. Mikil vinna var oft við gerð kjarasamninga, verkföll voru nokkuð tíð á þessum árum. Tími Sveins hjá KÍ var mikill umbrotatími hér á landi, ekki síst í málefnum tengdum verslun. Það reyndi því oft á Svein í hinum ýmsu málum sem upp komu hverju sinni. Nokkru áður en Sveinn hætti hjá KÍ hafði hann forgöngu um að samtökin eignuðust eigið húsnæði fyrir starfsemina og sá hann um kaup- in á Marargötu 2 þar sem KÍ voru til húsa þar til Hús verslunarinn- ar var byggt, en þar eignuðust KÍ sjöttu hæðina. Sveinn var sæmd- ur gullmerki KÍ fyrir það mikla starf sem hann innti af hendi fyrir samtökin og kaupmenn almennt. Í áratugi var Sveinn lögmaður KÍ og eins lögmaður fjölmargra kaupmanna og er undirritaður einn þeirra. Sveini þótti vænt um þessi samtök og ætíð sat hann alla aðalfundina, þann síðasta á sl. ári. Sveinn var vinmargur maður og skemmtilegur í hvívetna og hvers manns hugljúfi og alltaf var stutt í brosið. Ég vil fyrir hönd stjórnar KÍ senda aðstandendum Sveins innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Steinar Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.