Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 21
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16. Félagsvist
með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir úti- og
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Þriðjudagur: Boccia kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30.
Bridge/Kanasta/Tafl kl. 13.
Boðinn Mánudagur: Myndlist kl. 12.30. Bingó kl. 13. Vatnsleikfimi kl.
14.30. Spjallhópur kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Qigong 10.30-11.
Morgunkaffi 10-10.30. Leikfimi 12.50-13.30. Söngstund 13.45-14.30.
Bútasaumshópur 13-16. Opið kaffihús 14.30-15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30.
Leikfimi 12.50-13.30. Söngstund 13.45-14.30. Opið kaffihús 14.30-
15.15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudögum kl 13-16. spilað,
spjallað og kaffið góða frá Sigurbjörgu í eldhúsinu. Sóknarprestur
verður með hugleiðingu og bæn. Á miðvikudaginn verður Halldóra
Brynjarsdóttir með kynningu á Avon snyrtivörum. Allir hjartanlega
velkomnir.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi 9-10. Núvitund 10.30-11.30.
Bókabíllinn á svæðinu 13.10-13.30. Handaband - skapandi vinnustofa
með leiðbeinendum 13-15.30. Söngstund við píanóið 13.30-14.15.
Frjáls spilamennska 13-16.30. Línudans 15-16 - verð 500 krónur,
Söguhópur 15.30-16.15. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, sími
411-9450.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30 /8.15 /15.15. Kvennaleikf. Sjál. kl.
9.30. Liðstyrkur . Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11.15.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Sau-
manámskeið í Jónshúsi kl: 14.10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13 – 16.
allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl: 16.15
Gerðuberg Mánudagur Opin Handavinnustofan kl 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Leikfimi Maríu kl. 10-
10.45. Leikfimi Helgu Ben 11-11.30. Qigong 10.30-11.30. Kóræfing kl.
14.30-16.30 Allir velkomnir.
Gerðuberg Mánudagur Opin Handavinnustofan kl 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl.
14.30-16.30 Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben 11-11.30.
Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9 Handavinna, kl. 9. Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Mánudagur :Postulínshópur kl 9. Jóga kl 9.30 Handavinna
/ Bridge kl 13. Jóga kl 17.00 Félagsvist kl 20.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30.
Jóga kl. 14.15 – 15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16.
blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30. jóga með
Carynu kl. 9. útvarpsleikfimi kl. 9.45 og jóga með Carynu kl. 10.
Hádegismatur er kl. 11.30. tálgun og listasmiðja kl. 13. frjáls spila-
mennska kl. 13 liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15 og eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnar 8.50. Við hringborðið 8.50, Hjá afa 9.30.
boðið upp á kaffi. Byrjendanámskeið línudans 10. Myndlis-
tarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd. 12.30-15.30. Handavinnuhor-
nið 13-15. Félagsvist 13. Kaffi 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri.
Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga í Borgum kl. 9. gönguhópar frá
Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10. prjónað til góðs í Borgum kl. 13.
og félagsvist kl. 13. í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum í
umsjón Gylfa kl. 13. Minnum á skráningu á námskeið s.s. tiffanis/Ke-
ramik, Reykjanesferð í módelstörf og fleira.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30. morgunleikfimi kl.9.45. upplestur
kl.11. trésmiðja kl.13-16. ganga m.starfsmanni kl.14. bíó á 2.hæð
kl.15.30.Uppl í s.4112760.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsh. við Suðurströnd kl. 9. og 13.
Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu salnum Skólabraut kl. 11. Handav-
inna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Munið
haustfagnaðinn nk. fimmtudag 27. sept. kl. 16. - 19. Syngjum og
dönsum. Léttar veitingar. Skráning og uppl. hjá Kristínu í s: 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 –16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 –11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30 –12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4 ZUMBA Gold kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.
11.30. Tanya leiðir báða hópanna.
Smáauglýsingar
Húsnæði óskast
Dansíþróttafélag leitar að
æfingaaðstöðu
Dansíþróttafélag óskar eftir
æfingaaðstöðu fyrir iðkendur sína.
Veislusalir og sambærilegt koma til
greina ef gólfefnið er parket.
Lágmarksstærð á dansgólfi 150 fm.
Allt frá einum degi í viku til 7 daga
vikunnnar. Vinsamlegast hafið sam-
band við Ragnar danskennara á
netfang raggidans@hotmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Tómstundir
Dartvörur í úrvali frá UNICORN.
pingpong.is
Síðumúla 35 (að aftanverðu)
Sími 568 3920.
Málarar
Málarar.
Faglærðir málar geta bætt við
sig verkefnum. Öll almenn
málningarþjónusta í boði.
uppl. í síma 696-2748, netfang:
loggildurmalari@gmail.com
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
✝ Sigrún Jens-dóttir Larson
fæddist í Reykja-
vík 20. september
1948. Hún lést í
Flórída í Banda-
ríkjunum 21. júlí
2018.
Foreldrar henn-
ar eru Sigurbjörg
Schram Kristjáns-
dóttir, f. 1. ágúst
1925, d. 9. desem-
ber 2016, og Pétur Jens Viborg
Ragnarsson, f. 5. október 1925,
d. 17. apríl 1988. Systkini Sig-
rúnar eru Sigurður Ágúst, f.
1946, Ásdís, f. 1949, Þóranna
Rósa, f. 1952, d. 2003, Krist-
jana Ragna, f. 1955, Hafsteinn
Viðar, f. 1961, og Guðbjörg, f.
1966.
Fjölskyldan bjó á Hverf-
isgötu 121 þegar Sigrún fædd-
Gordon og voru heimsóknir
tíðar á milli landa.
Eiginmaður Sigrúnar er
Gordon Larson, f. 18. júlí 1945.
Þau giftu sig í Dómkirkjunni 4.
september 1971. Synir þeirra
eru Ralph Albert, f. 4. mars
1972, og Erik Michel, f. 10.
apríl 1977. Kona Ralphs er
Shannen. Kona Eriks er Jenni-
fer og börn þeirra eru Kevin
Jens, f. 2001, Ari Thomas, f.
2004, og Anna Margret f. 2010.
Sigrún vann við ýmislegt í
Bandaríkjunum, t.d. sem versl-
unarstjóri. Um tíma rak hún
eigin verslun en lauk starfs-
ævinni sem fasteignasali.
Á árunum 1971 til 1976 áttu
Sigrún og Gordon heima í
Jacksonville í Flórída og þar
fæddist eldri sonurinn, Ralph.
Á árunum 1976-1979 bjuggu
þau í Key West, Flórída og þar
fæddist yngri sonurinn, Erik.
1979 til 2013 bjuggu Sigrún og
Gordon í Lake Stevens, Wash-
ington, en árið 2013 fluttu þau
til Flórída þar sem Sigrún lést.
Útför Sigrúnar hefur farið
fram.
ist, síðan stutt á
Hólsvegi 11, en
fluttist svo á
Hjallaveg 42 þar
sem Sigrún ólst
upp. Á sínum
yngri árum dvaldi
Sigrún oft hjá föð-
urfólki sínu á Ísa-
firði þar sem hún
undi hag sínum vel
og eignaðist þar
góða vini. Sigrún
var í Langholtsskóla og lauk
þar skyldunámi. Sem ungling-
ur var hún mikið heima við að
sjá um heimilið og yngstu
systkinin. Þrátt fyrir að hafa
búið í Bandaríkjunum frá 23
ára aldri var Sigrún alltaf í
góðu sambandi og náin sínu
fólki heima á Íslandi. Fjöl-
skyldan hér heima voru au-
fúsugestir hjá Sigrúnu og
Elsku fallega systir mín er
farin frá okkur.
Eftir sit ég og skil ekki hvað
hefur gerst. Við ætluðum að
fara að undirbúa stórafmælið
hennar, en Sigrún hefði orðið 70
ára þann 20. september í ár og
ætlaði að halda upp á tímamótin
hér heima.
Ég missti svolítið af Sigrúnu
systur minni þegar ég var
krakki. Ég er yngst af systk-
inahópnum en hún næstelst og
fluttist þar að auki til Banda-
ríkjanna 23 ára gömul. Það var
dýrt að hringja á þeim tíma og
enn þá dýrara að ferðast. Sem
betur fór fékk ég að fara tvíveg-
is í heimsókn til Sigrúnar á mín-
um unglingsárum. Gordon var á
sjó, Sigrún útivinnandi og ég
hjálpaði til með strákana þeirra.
Þar kynnist ég Sigrúnu systur
minni fyrst. Eftir það og með
breyttum tímum fór símtölum
fjölgandi og ferðir jukust.
Þegar ég svo flyt með allan
hópinn minn út til Seattle og bý
í næstu götu í tvö ár tengdumst
við sterkum böndum og þá
kynntist ég henni betur, bæði
sem stóru systur og sem góðri
vinkonu.
Ég kynntist því hvað hún var
óeigingjörn, hjartahlý og hjálp-
söm, hvað hún var klár, vinnu-
söm og útsjónarsöm. Hvað hún
var mikill fagurkeri, bæði í
klæðaburði og hvernig hún setti
upp heimilið sitt. Hún var mjög
hæfileikarík á svo margan hátt.
Þessi tvö ár sem við bjuggum
saman úti voru mjög gefandi
fyrir okkur öll. Við áttum ótelj-
andi margar góðar og ógleym-
anlegar stundir. Við gerðum svo
margt saman og hvað við gátum
hlegið. Sigrún var svo skemmti-
leg, kát og hláturmild og hlátur
hennar var mjög sérstakur,
hlátur sem var engum líkur.
En umfram allt var Sigrún
mikil fjölskyldumanneskja. Líf
hennar var fjölskyldan, bæði
hennar eigin og svo stórfjöl-
skyldan öll. Henni sinnti hún
vel, hún ræktaði hvern og einn
einasta fjölskyldumeðlim, alltaf
og öllum! Til dæmis átti Sigrún
20 systkinabörn, þekkti þau öll
vel og var náin þeim, þrátt fyrir
að búa erlendis í hátt í 50 ár.
Ég er þakklát fyrir allar þær
góðar minningar sem ég á, bæði
um og með Sigrúnu.
Guð geymi þig, elsku systir
mín,
Elska þig meira.
Guðbjörg.
„Hi sweetie,“ elsku Sigrún
mín. „Hi sweetie“ voru máski
einkunnarorðin þín? Þau eru í
það minnsta orðin sem ég hugsa
um er ég hugsa til þín. Þau eru
orðin sem fönguðu mitt barns-
hjarta, síðar vandræðaungling
með barta og miklu seinna alla
mína bestu parta.
Jósef, Valdimar og Matthías
fengu svo mikla sól frá ykkur
hjónum. Sömu hlýju og ham-
ingju er mér var sýnd í æsku.
Nánast á degi hverjum ber ykk-
ur hjón á góma og spurt er: hvað
ætli Sigrún og Gordon séu að
gera? Eða öllu fremur: getum
við farið í heimsókn til þeirra í
dag! Þið voruð alltaf höfðingjar
heim að sækja, í bestu merkingu
þess orðs. Heimili ykkar umvaf-
ið hlýju og hamingju, smitandi
og seiðandi. Heimsókn til ykkar
var alltaf tilhlökkunarefni. Ekki
skipti máli hversu margir dagar,
mánuðir eða ár liðu. Heimili
ykkar var alltaf heim.
Jóna og þú tengdust líka al-
veg sérstökum böndum, voruð
sem sálufélagar, með sama kald-
hæðna, frábæra húmorinn,
skellibjöllur sem slóguð í takt. Á
heimili okkar var alltaf í háveg-
um haft skiltið sem þú gafst
Jónu þarna um árið: „Always
speak the truth but leave imme-
diately after.“ Daglega var horft
á skiltið, flissað saman í kór og
hugsað til þín, elsku Sigrún mín.
„Hi sweetie“ og takk fyrir
ykkur tvö, þig og Gordon. Þið
voruð fyrirmynd okkar Jónu um
hjónaband og hvernig tvö hjörtu
geta slegið svo fullkomlega í
takt, elskast áratugum saman
og hispurslaust. Takk fyrir að
vera þú og kenna mér svo margt
um listina að lifa, fyrirgefa og
vera besta útgáfan af sjálfum
sér.
Jens Sigurðsson
og fjölskylda.
Farin í Sumarlandið, elsku
dásamlega vinkona mín.
Hvað ég á eftir að sakna þín
mikið. Allar stundirnar okkar í
Flórída, Seattle og hér heima.
Þið Gordon hafið alla tíð verið
mér svo kær og heimili ykkar
alltaf opið fyrir mig og mitt fólk.
Veit hve heitt þú elskaðir Gord-
on þinn, Ralph, Erik, tengda-
dætur, að ég tali ekki um barna-
börnin, það kom alltaf ljómi í
augu þín er þú talaðir um þau.
Það er mikill missir hjá þeim öll-
um. Þú elskaðir að vera til og
varst elskuð af svo mörgum.
Allar fallegu gjafirnar frá þér
glöddu svo marga. Við sem höf-
um notið gestrisni þinnar vitum
hversu mikill snilldarkokkur þú
varst og hversu falleg öll þín
heimili voru.
Ég á aðeins góðar minningar
um þig, elsku vinkona, og er
þess fullviss að þú bíður mín
með hvítvínsglas þegar ég mæti
í Sumarlandið.
Líði þér sem best á nýjum
slóðum.
Þín
Helga.
Sigrún Jensdóttir
Larson
Ég sá Gísla
Magnússon fyrst
haustið 1977. Þá
var ég að hefja
nám við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti og
vakti Gísli athygli mína. Meðal
viðfangsefna var Laxdæla og
lifði Gísli sig vel inn í söguna
og talaði mikið en mörg orðin
hurfu í skeggið meðan nem-
Gísli
Magnússon
✝ Gísli Magn-ússon fæddist
17. maí 1946. Hann
andaðist 11. sept-
ember 2018. Útför
Gísla fór fram 21.
september 2018.
endur veltu fyrir
sér hvaða forn-
kappi væri þarna á
ferðinni.
Seinna kynntist
ég Gísla á nýjan
hátt þegar ég gerð-
ist kennari við FB
í janúar 1991. Mér
fannst hann líta
nákvæmlega eins
út og áður, í raun
allt til starfsloka.
Gísli var mjög alþýðlegur, var
sjálfum sér samkvæmur í
klæðaburði og gaf lítið fyrir
tískustrauma.
Það var alltaf ákaflega gott
að leita til Gísla, hann var
hjálpsamur, nákvæmur og hafði
næma máltilfinningu sem kom
sér vel þegar hann var beðinn
um að lesa yfir og lagfæra.
Gísli var fordómalaus maður,
dæmdi ekki fólk, talaði ekki illa
um aðra. Hann var líka fróður
og mikill sagnamaður, kátur og
glaðlyndur. Það var gaman að
vera með Gísla í starfsmanna-
ferðum þar sem hann sagði
sögur og söng.
Nú kveðjum við góðan
dreng, blessuð sé minning Gísla
Magnússonar.
F.h. íslenskukennara í FB,
Ragnar Sveinn Magnússon.
HINSTA KVEÐJA
Gísli bar höfuð og herðar
yfir okkur Frostastaða-
krakkana. Gegnheill og
tryggur.
Bjarni Stefán.