Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 22

Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Rock Star umgjarðir kr. 11.900,- Kristinn Ingason, verkfræðingur og sviðsstjóri jarðvarmavirkj-ana hjá Mannviti, á 60 ára afmæli í dag. Á vegum Mannvitshefur hann sinnt ráðgjafarstörfum hvað varðar jarðvarma- virkjanir úti um allan heim og á stöðum sem hinn venjulegi ferða- maður fer sjaldnast til. „Ég var síðast í Addis Ababa en sú borg er nú í alfaraleið. Meðal eft- irminnilegra staða sem ég hef komið til eru Íran, Filippseyjar og Alaska. Ég var þar á eyjunni Akútan sem er í Aleut-eyjaklasanum og fór um á krabbabát milli eyjanna og segja má að sjólagið hafi verið mjög slæmt.“ Auk verkefna á Íslandi vinnur Kristinn nú að verk- efnum í Ungverjalandi, Indónesíu, Eþíópíu og á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi. Kristinn er mikill KR-ingur, spilaði handbolta og varð bikarmeist- ari á sínum tíma, síðar sat hann í stjórnum félagsins og var m.a. vara- formaður aðalstjórnar KR. „Ég endaði síðan í pílukastinu. Ég fylgist núna aðallega með fótboltanum og er með ársmiða á völlinn. Auk þess að hirða um hús, garð og fjölskyldu tekur golfið mestan tíma utan vinnu. Svo hef ég gaman af því að fara á skíði og veiða og er tenór í Selkórnum.“ Selkórinn á 50 ára afmæli í ár og hélt afmælistónleika í vor og í nóvember mun kórinn flytja Pákumessuna eftir Jósef Haydn ásamt Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Eiginkona Kristins er Bergdís Jónsdóttir ferðamálafræðingur, dæt- ur þeirra eru Sigríður Þóra lyfjafræðingur og Þórdís læknir en fyrir átti Kristinn Addý sem er talmeinafræðingur í Óðinsvéum í Dan- mörku. Barnabörnin eru orðin fimm. Í tilefni stórafmælisins er Kristinn staddur ásamt eiginkonu, dætr- um og barnabörnum á Tenerife, öllu hefðbundnari stað en hann er vanur að sækja heim. „Varla er við hæfi að dröslast með fjölskylduna til staða eins og Írans.“ Verkfræðingurinn Kristinn staddur uppi á Marmolada-jöklinum í Dólómíta-fjallgarðinum á Ítalíu fyrir nokkrum árum. Sinnir ráðgjöf úti um allan heim Kristinn Ingason er sextugur í dag Ó lafur Kjartan Sigurðar- son, fæddist á Akranesi en ólst upp í Vestmannaeyjum til tíu ára aldurs en þar voru foreldrar hans kennarar á árunum 1972-78. Hann var í Barnaskóla Vest- mannaeyja, í Æfingadeild KHÍ og í Hagaskóla í einn vetur og stundaði nám við MH 1984-88. Ólafur Kjartan vann við tölvur hjá SKÝRR um skeið og við KHÍ, seldi Apple-tölvur og starfaði við þróun á Íslenska menntanetinu. Ólafur Kjartan hóf söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Guð- mundi Jónssyni og lauk þar 8. stigi í söng, stundaði framhaldsnám við Royal Academy of Music í London en þaðan lauk hann kennaraprófi og burtfararprófi 1996, og stundaði MA- nám við Royal Scottish Academy of Ólafur Kjartan Sigurðarson óperusöngvari – 50 ára Fjölskyldan Bjarmi, Ásgerður, Brynja, Sigríður Salka, Vala Bjarney, Bragi, Fjölnir, Ólafur Kjartan og Sigurbjörg. Óvenjuskemmtilegur og afburða söngvari Á óperusviðinu Dramatíski barítóninn Ólafur Kjartan Sigurðarson. Reykjavík Haukur Darri Krist- insson fæddist 17. maí 2018 kl. 13.30. Hann vó 3.390 g og var 49 cm að lengd. Foreldrar Hauks Darra eru Kristinn Alex Sigurðsson og Margrét Helga Skúladóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.