Morgunblaðið - 25.09.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Veður víða um heim 24.9., kl. 18.00
Reykjavík 7 léttskýjað
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 7 rigning
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 9 skýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 8 léttskýjað
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 14 heiðskírt
Dublin 13 skýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 14 heiðskírt
París 16 heiðskírt
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 10 skúrir
Berlín 11 léttskýjað
Vín 12 léttskýjað
Moskva 8 skúrir
Algarve 33 heiðskírt
Madríd 24 heiðskírt
Barcelona 25 skýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 6 alskýjað
Montreal 9 léttskýjað
New York 16 skýjað
Chicago 19 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
25. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:20 19:20
ÍSAFJÖRÐUR 7:25 19:24
SIGLUFJÖRÐUR 7:08 19:07
DJÚPIVOGUR 6:50 18:49
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag og fimmtudag Vestlæg eða breyti-
leg átt 5-10 m/s með dálitlum skúrum eða slyddu-
éljum, einkum norðvestan til, en þurrt og bjart aust-
an til á landinu. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.
Austanátt og rigning eða slydda nyrðra, en talsverð snjókoma um tíma til fjalla. Fremur hæg
breytileg átt og rigning með köflum vestanlands. Dregur úr úrkomu og vindi í kvöld. Hiti 1-8 stig.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, atti í gær ásamt öðrum úr bæjarstjórninni kappi við golfáhugamenn meðal íbúa og starfsfólks Hrafnistu í
árlegu púttmóti, þar sem keppt er um Hrafnistubikarinn svonefnda. Engum sögum fór af því hvort bæjarstjórn eða Hrafnistumenn unnu mótið að þessu
sinni, en ljóst er af myndinni að keppendur hafa eflaust flestir skemmt sér vel í baráttunni um bikarinn góða.
Púttað um Hrafnistubikarinn
Morgunblaðið/Hari
Háskóli Íslands
mun standa fyrir
ráðstefnunni
„Hrunið, þið mun-
ið“ dagana 5.-6.
október. Í tilkynn-
ingu á vef skólans
segir að tilgangur
ráðstefnunnar sé
„að miðla til al-
mennings nið-
urstöðum nýlegra rannsókna á að-
draganda og afleiðingum af hruni
íslenska bankakerfisins haustið
2008“.
Á dagskrá verða um 100 fyr-
irlestrar í um 20 málstofum um hrun-
ið, en auk þess munu þau Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands, Eva
Joly, rannsóknardómari og þingkona
á Evrópuþinginu, og Ralph Catalano,
prófessor í lýðheilsu við Berkeley-
háskóla í Bandaríkjunum, flytja sér-
stök ávörp í tengslum við ráðstefn-
una. Ráðstefnan verður öllum opin og
er aðgangur ókeypis.
Sérstök
ráðstefna
um hrunið
Eva Joly einn
heiðursgesta HÍ
Eva Joly
Enn er ekkert lát á áhuga erlendra
ferðamanna á því að kynna sér norð-
urljós á Íslandi. Þetta segir Þórir
Garðarsson, stjórnarformaður
ferðaþjónustufyrirtækisins Gray
Line. Mikið var um norður-
ljósamyndir á netinu nú um helgina,
ekki síst á samfélagsmiðlum, og
vakti það spurningar um hvort norð-
urljósaferðir hingað til landsins
væru jafn vinsælar og undanfarin ár.
Þórir segir að nóg sé að gera nú í
upphafi norðurljósatíðar sem stend-
ur frá því í september og fram í apr-
íl. Margir erlendir ferðamenn komi
sérstaklega til landsins til að skoða
norðurljós. Þetta sé eitt mikilvæg-
asta aðdráttarafl íslenskrar vetr-
arferðaþjónustu. Sú breyting hafi
hins vegar orðið að erlendu ferða-
mennirnir stoppi skemur á landinu
en áður.
Yfir 40% skoða norðurljós
Samkvæmt athugun Ferða-
málastofu greiddu rúmlega 14% er-
lendra ferðamanna fyrir norður-
ljósaferðir hér á landi veturinn 2004
til 2005. Áratug síðar var þetta hlut-
fall orðið 42%. Líklegt er að það sé
ekki minna nú.
Misjafnt er með hvaða hætti farið
er í norðurljósaferðir. Ferðafólk sem
hefur stutta viðdvöl á landinu kýs yf-
irleitt að fara í rútuferðir og er þá
sótt á hótelin. Aðrir kjósa að sigla
með bát og eru slíkar ferðir m.a. frá
Reykjavíkurhöfn. Þá er ennfremur
hægt að leigja hesta og fara í reiðtúr
til að skoða norðurljós.
Fram hefur komið að búist er við
því að virkni norðurljósa fari minnk-
andi næstu árin og verði í lágmarki á
árunum 2020 til 2021. Þetta þýðir þó
ekki að norðurljósin hverfi af himn-
inum en þau verða mun daufari en
nú er fram til 2025 að því er fram
kom í samtali við Sævar Helga
Bjarnason, ritstjóra Stjörnu-
fræðivefsins, hér í blaðinu fyrir
nokkru síðan.
Á vef Veðurstofunnar eru daglega
birtar spár um virkni norðurljósa.
Talsverð virkni var í gær og gert er
ráð fyrir dálítilli virkni í kvöld en
minni á morgun. gudmundur@mbl.is
Norðurljósin heilla enn ferðafólk
Skipulagðar ferðir til að skoða norðurljós eru hafnar að nýju og standa fram í apríl Margir
koma sérstaklega til landsins til að kynna sér norðurljósin Verða daufari á árunum 2020 til 2025
Morgunblaðið/Eggert
Norðurljós Einstök litbrigði og dulúð við Skorradalsvatn þar sem norðurljósin stíga dans í myrkrinu.
Norðurljósaferðir
» Mikil aukning hefur orðið á
ferðum útlendinga til að skoða
norðurljós á Íslandi.
» Talið er að yfir 40% er-
lendra ferðamanna fari í skipu-
lagðar norðurljósaferðir yfir
vetrartímann.
» Algengast að farið sé með
rútu, en bátsferðir og hesta-
ferðir eru líka í boði.
» Virkni norðurljósa verður
líklega minni frá hausti 2020
og fram til 2025.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum
jarðhitakísil og mangan í
hreinu íslensku vatni.
fyrir uppbyggingu
beina og styrkingu
bandvefjar þ.m.t.
liðbönd, liðþófar
og krossbönd.
Liðir og bein
Repair
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is