Morgunblaðið - 25.09.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Það voru ekki einvörðungu kylf-ingar sem tóku eftir því þegar
Tiger Woods vann gólfmót um
helgina. Og það er engin væmni
eða velgja að gefa sér að flestir
þeirra hafi verið snortnir.
Nú er ekkióheyrilega
langt síðan að það
var meiri frétt ef
Tiger vann ekki öll
þau mót sem hann
tók þátt í.
En svo dró skyndilega ský fyrirsólu þessa snillings með kylf-
una. En það var ekki bara það að
hann væri hættur að hitta holur
sem er afleitt í golfi.
Og það var ekki bara að hannværi að sögn útsettur af verkj-
um víða um skrokk, svo afleitt sem
það þó var. Það birtist nefnilega
hver fréttin af annarri sem benti til
að Tiger Wood væri að missa sig og
útlitið var fjarri því að vera gott.
Stuðningsfyrirtæki og auglýsendur
hrundu af honum í hrönnum.
Það hafa fleiri íþróttahetjur lentí slíkum spíral og svo horfið
hratt úr heimi glans og frægðar.
En þegar nokkur ár voru liðin
fréttist að Tiger væri að spila aft-
ur. Eða reyna það. Nú var hann
ekki lengur á upplagðasta aldri
spilara. Og hann varð fyrir hverri
niðurlægingunni af annarri, aft-
arlega í röð amatöra þegar verst
lét.
En áfram hélt hann samt. Ogloks tók hann að komast á ný í
gegnum niðurskurð og svo að
mjakast upp stigatöfluna á ný. Og
vann svo sitt fyrsta stórmót eftir
1.876 daga eyðimerkurgöngu. Þá
braust út fögnuður. Tiger hafði
sýnt einstaka einurð og staðfestu
og átti sigur skilinn.
Tiger Woods
Tiger Woods
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa lagt fram frumvarp á Alþingi
sem kveður á um að ríkið, í gegnum
Isavia ohf. og dótturfélag þess Frí-
höfnina ehf., hætti að reka verslanir
með tollfrjálsar vörur í smásölu í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þess í stað verði verslunarrými
boðið út til fyrirtækja á almennum
smásölumarkaði sem annist alla
verslunarþjónustu við farþega flug-
stöðvarinnar, þ.m.t. Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins til að selja
áfengi og tóbak.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er Teitur Björn Einarsson. Í
greinargerð með frumvarpinu segir
að í núverandi lagaumhverfi sé sér-
staklega mælt fyrir um skyldu Isavia
til að hafa með höndum rekstur frí-
hafnarverslunar. Markmið frum-
varpsins sé að breyta þessu fyrir-
komulagi og mæla fyrir um að ríkið
hætti samkeppnisrekstri á ýmsum
smásöluvörum en hlutverk Isavia
verði áfram að meginstefnu til að ann-
ast rekstur og uppbyggingu flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar.
Segir í greinargerðinni að Fríhöfn-
in ehf. reki nú fimm verslanir, fjórar
fyrir brottfararfarþega og eina fyrir
komufarþega, sem njóta opinberrar
íhlutunar í formi skattleysis og bjóði
upp á vörur á verulega lægra verði en
viðgengst á almennum markaði.
Stærsti sælgætissalinn
Meðal vara sem Fríhöfnin bjóði
upp á í flugstöðinni séu auk áfengis og
tóbaks mikið úrval af sælgæti, snyrti-
vörum, leikföngum, ferðavörum og
nærfötum frá Victorias’s Secret, en
Fríhöfnin ehf. fékk nýlega umboð frá
alþjóðlegu nærfatakeðjunni til sölu á
þeim vörum.
„Er ekki óvarlegt, út frá umfangi
verslunar Fríhafnarinnar ehf., að líta
svo á að ríkið sé einn stærsti söluaðili
sælgætis og snyrtivara á innanlands-
markaði,“ segir í greinargerðinni.
Ríkið hætti að
reka fríhöfn
Morgunblaðið/Eggert
Flugstöð Úr flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli.
Frumvarp fjögurra þingmanna
„Gríðarlega vel hefur gengið að grafa
Dýrafjarðargöng. Nú eru verktak-
arnir Metrostav a.s. og Suðurverk hf.
búnir að sprengja Arnarfjarðarmegin
og munu gangamenn nú færa sig yfir
í Dýrafjörð og klára verkið þaðan.
Búið er að sprengja 69 prósent gang-
anna eða nánast alveg upp á há-
bunguna, alls 3.658 metra,“ segir í
frétt um framgang verksins á vef
Vegagerðarinnar.
Um kl 17 sl. laugardag sprengdi
verktakinn síðustu færuna í göng-
unum Arnarfjarðarmegin og var
slegið til mikillar matarveislu um
kvöldið. Fram kemur að starfsmenn
verktaka voru að vonum glaðir og
ánægðir með áfangann.
Í seinustu viku lengdust göngin um
77,7 metra og er lengd ganganna þá
orðin 3.657,6 metrar sem er um 69,0%
af heildarlengd. Eru 27,5 metrar eftir
að hábungu. ,,Alls voru 740 færur
sprengdar í göngunum Arnarfjarðar-
megin auk sprengivinnu í hliðar-
rýmum útskota.“
Fram kemur að á næstu vikum taki
við flutningar yfir í Dýrafjörðinn en
auk þess muni verktaki vinna að loka-
styrkingum í göngunum Arnarfjarð-
armegin. ,,Mun hann einbeita sér að
hægri vegg ganga til að unnt sé að
byrja á lagnavinnu í göngum nú í
haust. Áætlað er að fyrsta sprenging í
Dýrafirði verði í annarri viku októ-
ber,“ segir í fréttinni.
Lengd ganganna orðin 3.658 metrar
Gangagreftri er lokið Arnarfjarðarmegin í Dýrafjarðargöngum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dýrafjarðargöng Áfanga náð.
SKECHERS HARPER HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM
INNLEGGI. STÆRÐIR 41-47,5. FÁST EINNIG BRÚNIR.
HERRASKÓR
KRINGLU OG SMÁRALIND
13.995