Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Meiri en helmingur allra ríkja
heimsins mun líklega ekki ná mark-
miðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
um að draga úr þriðjungi ótíma-
bærra dauðsfalla vegna fjögurra
krónískra sjúkdóma, fyrir árið 2030.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn
frá Imperial School of Public Health
í London. Um er að ræða krabba-
mein, hjarta- og æðasjúkdóma,
sykursýki og langvinna lungna-
sjúkdóma, sem samanlagt voru dán-
arorsök 12,5 milljóna manns á aldr-
inum 30 til 70 ára, árið 2016.
„Aðalatriðið er þetta: Markmiðin
voru sett og flest lönd munu ekki ná
að mæta þeim,“ segir Majid Ezzati,
prófessor og aðalhöfundur rann-
sóknarskýrslunnar, í samtali við
AFP. Sameinuðu þjóðirnar settu
markmiðið um að draga úr dauðs-
föllum vegna þessarra sjúkdóma ár-
ið 2015 en samkvæmt rannsókninni
eru einungis 35 lönd á réttri leið til
að ná þeim. „Alþjóðlegir styrktarað-
ilar og ríkisstjórnir eru að gera of
lítið til að draga úr dauðsföllum
vegna smitlausra sjúkdóma,“ segir
Ezzati en bætir við að það sé þó já-
kvætt að sjá mörg ríki vera færast í
rétt átt að markmiðinu.
Bandaríkin ein á báti
Af efnuðustu ríkjum heims eru
Bandaríkin eina ríkið sem er ekki að
fara mæta þessum markmiðum. Í
fyrra birtist rannsókn í American
Journal of Public Health sem sýndi
að ótímabær dauðsföll væru að
aukast í Bandaríkjunum, sér-
staklega meðal hvítra Bandaríkja-
manna á dreifbýlissvæðum. Ezzati
segir slæma lýðheilsu, veikt opin-
bert heilbrigðiskerfi og mikinn
ójöfnuð valda þessu.
Ef allir aldurshópar eru skoðaðir
drepa smitlausir sjúkdómar yfir 40
milljónir manns á ári og eru ástæða
sjö af hverjum tíu dauðsföllum á
heimsvísu. Af þessum dauðsföllum
eru 17 milljónir skráðar sem ótíma-
bær, eða fyrir sjötugt. Bandaríkin
eru í 53. sæti þegar kemur að ótíma-
bærum dauðsföllum karla og 44.
sæti hjá konum. Kína er í 80. sæti
þegar kemur að körlum og 76. sæti
þegar kemur að konum. Reykingar í
Kína hafa sérstaklega mikil áhrif en
rúmlega ein milljón manna læst af
völdum reykinga í Kína á hverju ári.
„Kína hefur marga möguleika til að
draga úr reykingum og neyslu
áfengis þar sem hvor iðnaður um sig
er að mestu ríkisrekinn,“ segir
Ezzati.
Markmiðið ekki sett of hátt
Hann neitar því að markmið SÞ
hafi verið sett of hátt og segir að sú
staðreynd að yfir 30 lönd séu á réttri
leið og önnur 40 til 50 nálægt því
bendi til þess að þetta sé framkvæm-
anlegt. Þær þjóðir sem eru með litla
neyslu tóbaks og áfengis, lágan blóð-
þrýsting, gott opinbert heilbrigðis-
kerfi og mikinn jöfnuð eru líklegust
til að ná þessum markmiðum.
Spánn, Singapúr, Portúgal, Ítalía,
Finnland og Frakkland eru þau lönd
sem standa sig best í að draga úr
ótímabærum dauðsföllum kvenna
vegna ofangreindra sjúkdóma. Ís-
land, Svíþjóð, Noregur, Bahrain,
Kanada og Nýja-Sjáland standa sig
best meðal karla.
Flest ná ekki
markmiðum SÞ
Illa gengur að draga úr ótímabær-
um dauðsföllum 35 lönd á réttri leið
Morgunblaðið/Golli
Dauðsföll Að draga úr reykingum
hjálpar ríkjum að ná markmiði SÞ.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í minnisblaði sem skrifstofa Alþingis
hefur tekið saman um undirbúning
og kostnað við hátíðarþingfundinn á
Þingvöllum 18. júlí sl. kemur fram að
framan af undirbúningnum hafi ver-
ið á litlu öðru að byggja varðandi
kostnað við þingfundinn en upp-
reiknuðum kostnaði við fyrri hátíð-
arfundi Alþingis á Þingvöllum.
Fram kemur í upphafi minnis-
blaðsins að það sé tekið saman vegna
umræðu í fjölmiðlum síðustu daga
um undirbúning og kostnað við há-
tíðarþingfundinn.
Orðrétt segir m.a. í minnisblaðinu:
„Við gerð rekstraráætlunar Alþingis
fyrir árið 2018 var ákveðið að taka
frá 45 milljónir króna til verksins en
að öðru leyti reiknað með að greiða
kostnað með rekstrarfjárveitingum
og höfuðstól. Hér var því ekki um
eiginlega kostnaðaráætlun að ræða,
enda ekki forsendur til þess, en
nokkurs misskilnings hefur gætt um
þetta í umræðunni. Á þeim tíma-
punkti var ljóst að talsverð óvissa
væri um ýmsa kostnaðarliði enda var
jafnan tekið fram við umfjöllun um
málið innan Alþingis, m.a. á fundi
forsætisnefndar 19. janúar 2018, að
kostnaður við verkefnið gæti orðið
meiri en sú fjárhæð sem ráðstafað
hafði verið til þess í rekstraráætlun
Alþingis …“
Fram kemur í minnisblaðinu að
vorið 2017 hafi verið skipaður vinnu-
hópur innan skrifstofu Alþingis sem
hafði á hendi undirbúning að Þing-
vallafundinum. Að mörgu hafi verið
að hyggja hvað varðaði nauðsynleg-
an tæknibúnað, en mikill metnaður
hafi verið lagður í beina sjónvarps-
útsendingu frá fundinum.
Ákveðið var að taka tilboði frá Ex-
ton í tæknimálin í heild sinni. Þegar
verðtilboðin í tæknimálin (hljóð- og
ljósabúnað ásamt burðarkerfi og
upphengibúnaði auk vinnu tækni-
manna við uppsetningu búnaðarins
og stýringu hans) og mat á þeim hafi
legið fyrir, sem hafi reynst vera um
25 milljónir króna, hafi fyrst verið
hægt að gera sér raunhæfa grein
fyrir heildarkostnaði við verkefnið í
heild sinni, ríflega 80 milljónir króna.
Um öll tæknimál tengd þingfundin-
um hafi Framkvæmdasýsla ríkisins
og Alþingi haft samráð við fjölmarga
aðila, samkvæmt því sem segir í
minnisblaði skrifstofu Alþingis.
Ekki eiginleg kostn-
aðaráætlun Alþingis
Morgunblaðið/Hari
Hátíðarfundur Færri komu til Þingvalla til að fylgjast með hátíðarfundi Alþingis en gert hafði verið ráð fyrir.
Minnisblað skrifstofu Alþingis um hátíðarfundinn
Embætti héraðssaksóknara hefur
ákært karlmann fyrir að hafa á al-
varlegan hátt ógnað lífi, heilsu og
velferð sonar síns með því að hafa
tekið um háls og/eða brjóstkassa
drengsins og hrist hann. Hlaut son-
urinn meðal annars blæðingu á heila
og blóðsöfnun þar auk punktblæð-
ingar í augnbotni.
Fram kemur í ákærunni, að
drengurinn hafi hlotið mar miðlægt
yfir hægra viðbein vinstra megin á
hálsi og rétt ofan viðbeins. Þá hafi
hann fengið eymsli aftan á brjóst-
kassa, klórsár á hálsi, innanbast-
blæðingu á um fimm sentimetra
svæði í framhluta heilans og væga
blóðsöfnun yfir hnykiltjaldi. Einnig
hafi drengurinn fengið innanbast-
blæðingu á hvirfilblaði og punkt-
blæðingar í augnbotni og verulega
blæðingu inn á nethimnu.
Eru brot mannsins sögð varða 1.
og 2. málsgrein 218. greinar al-
mennra hegningarlaga, en þar er
meðal annars kveðið á um brot gegn
fjölskyldumeðlimum. Samkvæmt
fyrri málsgreininni getur brot varð-
að allt að sex ára fangelsi, en sam-
kvæmt þeirri seinni, þar sem tekið
er fram að um stórfellt brot sé að
ræða, getur það varðað allt að 16 ára
fangelsi.
Þá fer forsjáraðili drengsins fram
á 2,5 milljónir í skaðabætur fyrir
hönd drengsins í einkaréttarkröfu.
Maður ákærð-
ur fyrir að
hrista son sinn
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Blússa
Kr. 6.900
Str. S-XXL
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað