Morgunblaðið - 25.09.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.09.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við getum fengið aukinnstyrk á þessu æviskeiði,af því þetta er þroska-skeið. Mér finnst breyt- ingaskeið ekki rétta orðið, því þetta er í raun eins og að verða aftur unglingur, það verða bæði andlegar og líkamlegar breytingar. Málið er að læra að takast á við þetta. Þetta snýst um að hlusta á líkama sinn og sál og fara eftir því. Þetta getur verið frábært tímabil, börnin farin að heiman og fólk hef- ur meiri tíma til að sinna sínum hugðarefnum. Margar konur blómstra á þessu æviskeiði, en allt- of mikið hefur verið talað um þetta sem neikvætt tímabil. Þetta er í raun nýtt tækifæri og margar kon- ur öðlast hugrekki á þessu skeiði, verða miklu sterkari. Sumar fara að mála, skrifa eða gera eitthvað annað sem þær hafa ekki þorað að gera. Guðrún frá Lundi byrjaði að skrifa eftir fertugt, og náði að skrifa margar bækur. En auðvitað eru líka dæmi um konur sem fest- ast í vanlíðan og pirringi, en það þarf ekki að verða þannig,“ segir Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir en hún ætlar ásamt Jóhönnu Björk Briem jóga-nidra-leiðbeinanda að halda námskeið í næsta mánuði fyrir konur um tímabilið sem tekur við eftir tíðahvörf. „Ég hef verið með námskeið fyrir bæði konur og karla um breytingaskeiðið og það er sann- arlega þörf á því. Karlarnir fara ekki síður en konur í gegnum breytingaskeið, en þegar ég var með námskeið um breytingaskeið karla fyrir rúmum tuttugu árum hafði enginn fjallað um það. Þetta er því miður enn tabú hjá körlum.“ Skortur á slökun dregur fram neikvæð einkenni Kolbrún hefur undanfarna rúma tvo áratugi fengið konur til sín sem eru staddar á þessu þroskaskeiði. „Konur leita til mín vegna þess að líkamskerfið verður við- kvæmara eftir ákveðinn aldur, svefninn verður viðkvæmari og konur þola minni streitu. Allt sem þær gera hefur á vissan hátt sterk- ari áhrif á þær. Þegar ég var að byrja sem grasalæknir var mest talað um líkamlegu einkennin, hita- kófin, en ég sé þetta þannig að það er ekki hormónakerfið sem stjórn- ar því hvernig þetta er, heldur stjórnar taugakerfið hormónakerf- inu. Ástæðan fyrir því að við ætl- um á námskeiðinu að blanda jóga- nidra inn í þetta er sú að slökun hefur mjög góð áhrif. Ef kona nær að róa hug og líkama nær hún í leiðinni að laga heilmikið af því sem plagar hana. Vissulega er gott að gera ýmislegt til að hjálpa, eins og að breyta mataræði og taka inn ákveðnar jurtir, en ef ekki er slak- að á koma frekar fram þessi nei- kvæðu einkenni.“ Að vera í takt við æviskeiðið Kolbrún segist líka ætla að nálgast viðfangsefnið út frá ind- verskum lækningum, ayurveda- fræðum. „Þar er æviskeiðum mann- eskju skipt upp í frumefni. Þegar við erum 0 til 20 ára erum við jörð og vatn og þá finnst okkur við þola að borða óhollt og sofa lítið. Þegar við erum 20 til 50 ára erum við eldur enda erum við þá að stofna fjölskyldu, eignast börn og byggja upp starfsferil. En frá 50 ára og út ævina erum við meira loft, þá þurf- um við að hægja á. Ef fólk hægir ekki á sér eftir fimmtugt, jafnvel þótt því finnist það geta verið á fullu, verður hrörnunin miklu hrað- ari. Okkur Íslendingum hættir svo til að vera á fullu, gera alltof mik- ið, bæði í vinnu og frístundum. Ég held því fram að þetta sé að hluta til vegna þess að við búum á eld- eyju, en eldurinn er ekki eilífur. Við þurfum að stoppa og vera í takt við okkar æviskeið. Auðvitað getum við gert helling, fólk á ekki að leggjast í kör, en það þarf að leggja áherslu á slökun, ganga hægar til dæmis. Ég er sjálf mjög „hröð“ manneskja, geri allt hratt, en ég er að æfa mig í að hægja á mér núna, og að fara fyrr að sofa, það skiptir máli á þessu skeiði. Allt er þetta til að leggja meira inn í heilsubankann.“ Hvað viltu fá út úr lífinu? Kolbrún segir ástæðu þess að jóga-nidra sé hluti af námskeiðinu þá að þar er áherslan á djúp- slökun. „Þetta er stundum kallað jóg- ískur svefn, og með því að kynna þetta fyrir konum viljum við leyfa þeim að finna hvað það getur gert fyrir þær að tileinka sér djúp- slökun. Það er mikil þörf á þessu því hraði samfélagsins er mikill. Útgangspunkturinn í því að kom- ast í gegnum breytingaskeiðið er að láta fólk finna sér ásetning og spyrja: hvert ertu að fara og hvað viltu fá út úr lífinu,“ segir Kolbrún sem ætlar einnig að koma inn á hvaða jurtir geti hjálpað við að að- stoða líkamann, svo konum líði bet- ur. „Það eru til jurtir við hita- og svitakófum og jurtir hjálpa líka til við að draga úr andlegum pirringi, þunglyndi og svefnleysi. Ég ætla líka að tala um mataræðið og olíur, en þær skipta miklu máli á þessu aldursskeiði.“ Eins og að verða aftur unglingur Bæði karlar og konur ganga í gegnum breyt- ingaskeið eftir ákveðinn aldur, þegar hormóna- búskapur líkamans breyt- ist. Sumir festast í pirr- ingi en þannig þarf það alls ekki að vera. Gaman saman Kolbrún (til hægri) og Jóhanna ætla að vera saman með námskeið fyrir konur um breytingaskeiðið. Þetta getur verið frá- bært tímabil, börnin far- in að heiman og fólk hefur meiri tíma til að sinna sínum hugðar- efnum. Margar konur blómstra á þessu ævi- skeiði. Ert þú kona á seinna þroskaskeiði ævinnar? Langar þig til þess að nýta þetta æviskeið til umbreyt- inga, til að öðlast meira jafnvægi, gefa lífinu nýja merkingu, setja þér markmið fyrir framtíðina, fræðast um styrkjandi jurtir og mataræði og fara í djúpa slökun og umbreyt- ingu í gegnum jóga nidra? Kolbrún og Jóhanna bjóða upp á fjögurra vikna námskeið, Lifandi – lausnir og ráð fyrir breytingaskeið kvenna, sem hefst 8. október. Þar verður fræðsla um hormónakerfið, farið yfir mataræði og jurtir, farið yfir orkustöðvar og gerðar æfingar til að opna þær og farið yfir heild- rænt heilsulíkan þar sem skoðaðir eru þættir sem stuðla að jafnvægi og góðri heilsu. Fjallað er um streitu, áhrif hennar og leiðir til að vinna með og draga úr henni. Í gegnum sjálfsskoðun kennum við þátttakendum að setja sér ásetning fyrir lífið út frá eigin for- sendum og vilja. Ætlunin er að hafa gagn og gaman saman, styrkja kvenorkuna og kraftinn sem vaknar til lífsins á þessu blómaskeiði. Skráning og upplýsingar á net- fanginu: johanna.briem@gmail.com Lifandi – lausnir og ráð fyrir breytingaskeið kvenna Kvenorka og kraftur vaknar til lífsins á þessu blómaskeiði Getty Images/iStockphoto Nýtt tímabil Konur geta nýtt seinna þroskaskeiðið til umbreytinga. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Japanskt meistaraverk Landsins mesta úrval af píanóum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.