Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fjórir alþingismenn munu sækja
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna í New York á þessu hausti.
Þingmennirnir eru Brynjar
Níelsson, Sjálfstæðisflokki, Bjark-
ey Olsen Gunnarsdóttir, Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði,
Logi Einarsson, Samfylkingu, og
Líneik Anna Sævarsdóttir, Fram-
sóknarflokki. Þau munu dvelja ytra
dagana 14.-26. október.
Þingflokkarnir hafa um langt
árabil sent fulltrúa á allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin
ár hafa fjórir alþingismenn farið ár
hvert og dvalið tæpar tvær vikur í
New York í októbermánuði. Þjóð-
þing annarra Norðurlanda hafa
svipaðan hátt á, ásamt því að heim-
sótt er höfuðborg Bandaríkjanna.
Til þessa hefur verið litið og verið í
undirbúningi að fylgja þessu for-
dæmi, samkvæmt upplýsingum
Jörundar Kristjánssonar, forstöðu-
manns hjá Alþingi. Þetta haustið,
við upphaf nýs kjörtímabils, verður
því sú breyting á að vinnuheimsókn
til Washington D.C. verður hluti af
ferð þingmanna á allsherjarþingið
– en heildardvalartími óbreyttur,
segir Jörundur.
Íslenska sendiráðið í Wash-
ington hefur undirbúið dagskrá
þingmannanna. Þar er gert ráð
fyrir heimsókn í þingið og í hug-
veitur og stofnanir með áherslu á
norðurslóðamál og tvíhliða sam-
skipti.
Venjan hefur verið sú að þátt-
töku þingflokka í allsherjarþinginu
yfir kjörtímabilið er skipt eftir svo-
kallaðri D’Hondt-aðferð. Því er
mismunandi hvaða þingflokkar
senda fulltrúa hvert haust.
Í fyrrahaust var sú óvenjulega
staða uppi að þingkosningar voru í
október. Því sendi Alþingi bara tvo
fulltrúa á allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna. Þetta var fámenn-
asta nefndin sem þjóðþingið hafði
sent á allsherjarþingið til þessa. Í
sendinefnd Alþingis þá voru þær
Ásta Guðrún Helgadóttir, þing-
maður Pírata, og Elsa Lára Arn-
ardóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins. Þær hættu báðar þing-
mennsku í fyrrahaust.
Fjórir þingmenn munu
sitja allsherjarþing SÞ
Vinnuheimsókn til Washington
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
Líneik Anna
Sævarsdóttir
Brynjar
Níelsson
Logi Már
Einarsson
AFP
SÞ Frá fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Fjórir íslenskir þingmenn sækja þingið í október.
Íslensku skáklandsliðin unnu bæði
stórsigra í fyrstu umferð á Ólympíu-
skákmótinu í Batumi í Georgíu. Lið
Íslands í opnum flokki vann 4-0 sig-
ur á sveit Palestínu.
Fram kemur í tilkynningu til fjöl-
miðla að íslensku keppendurnir
voru allir töluvert stigahærri og
lenti enginn þeirra í teljandi vand-
ræðum með sinn andstæðing.
,,Kvennaliðið mætti sveit Baham-
as og þar vannst einnig 4-0 sigur.
Nansý Davíðsdóttir tefldi sína fyrstu
skák fyrir íslenska kvennalandsliðið
og landaði síðasta vinningnum þrátt
fyrir harða mótspyrnu frá Bahama-
stelpunni,“ segir í tilkynningunni.
Töluverður fjöldi liða vann sína
andstæðinga 4-0 en bæði lið eru talin
fá mun erfiðari andstæðinga í um-
ferðinni sem fram fer í dag, þriðju-
dag.
Hægt er að fylgjast með gangi
mála í mótinu á vefsíðunni skak.is.
Á Ólympíuskákmóti Nansý Davíðsdóttir tefldi og vann sína fyrstu skák á
Ólympíumóti. Helgi Áss Grétarsson var einbeittur á fyrsta degi mótsins.
Stórsigrar í fyrstu
umferð í Batumi
Ljósmynd/Aðsent
Mögnuð rafmagnsverkfæri og frábært verð
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Fyrirvari er settur vegna hugsanlegra ritvillna.
Bútsög - LS1019L
Kr. 150.000,-
með VSK
Bútsög - LS1216FLB
Kr. 160.000,-
með VSK
Mótor 1510 W
Sagarblað Ø 260 mm / 30 mm
90° Sagdýpt/Breidd 91 mm / 310 mm
45° Sagdýpt/Breidd 58 mm / 218 mm
Gráðufærsla vinstri/hægri 60°
Gráðuhalli vinstri/hægri 45°
Þyngd 26,1 kg
Borð fyrir sögina fylgir með
Mótor 1650 W
Sagarblað Ø 305 mm / 30 mm
90° Sagdýpt/Breidd 102 mm / 382 mm
45° Sagdýpt/Breidd 69 mm / 268 mm
Gráðufærsla vinstri/hægri 45°
Gráðuhalli vinstri/hægri 52° / 60°
Þyngd 26,6 kg
Borð fyrir sögina fylgir með