Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 16

Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 25. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.69 110.21 109.95 Sterlingspund 144.7 145.4 145.05 Kanadadalur 84.92 85.42 85.17 Dönsk króna 17.297 17.399 17.348 Norsk króna 13.463 13.543 13.503 Sænsk króna 12.476 12.55 12.513 Svissn. franki 114.67 115.31 114.99 Japanskt jen 0.9723 0.9779 0.9751 SDR 154.04 154.96 154.5 Evra 129.04 129.76 129.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.4185 Hrávöruverð Gull 1207.6 ($/únsa) Ál 2032.0 ($/tonn) LME Hráolía 78.67 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Greiningardeild Arion banka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,25% þegar ný ákvörðun hennar verður kynnt á miðvikudag í næstu viku. Bankinn segir að þetta verði niðurstaðan þótt gera megi ráð fyrir því að skiptar skoðanir verði milli nefndarmanna um hvort halda eigi vöxtunum óbreyttum eða hefja hækk- un þeirra. Því ráði ekki síst sú stað- reynd að septembermánuður hafi reynst tíðindamikill í efnahagslegu til- liti. Þannig segir bankinn að þau rök sem mögulega verði tínd til fyrir vaxta- hækkun að þessu sinni séu ný mæling sem sýni mun kröftugri hagvöxt á öðrum ársfjórðungi en gert var ráð fyr- ir, hækkandi verðbólguálag á markaði, stígandi verðbólguvæntingar, veikari króna og lakari verðbólguhorfur en spá Seðlabankans hafi gert ráð fyrir og þá sé erlendur verðbólguþrýstingur einnig að aukast. Spá óbreyttum stýri- vöxtum í komandi viku STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Einkafyrirtæki í beinni samkeppni við fjarskiptafyrirtækið Gagnaveitu Reykjavíkur, GR, dótturfélag Orku- veitu Reykjavíkur, hafa mun minna svigrúm til að auka skuldir sínar og fjárfestingarhraða en GR virðist hafa. Þetta kemur fram í samtali Morgunblaðsins við Orra Hauksson, forstjóra Símans, en Míla, dóttur- fyrirtæki Símans, leggur ljósleiðara í samkeppni við GR. Orri segir að lánaheimildir Síma- samstæðunnar hafi hæst farið í 4,5 x ebitda-hagnað á ári, en þær séu lægri núna, og nú skuldar samstæðan 2 x ebitda. Lánveitendur fyrirtækisins í gegnum tíðina, bankar og lífeyris- sjóðir, hafa sett ströng skilyrði um skuldsetningu, að hans sögn. Þá segir hann að leyfilegt fjárfest- ingarhlutfall Símans hafi hæst farið í 20% af heildartekjum, en hið raun- verulega hlutfall sé núna 18%. Heimildir Morgunblaðsins herma að eftir sameininguna við 365 sé ann- að stórt fyrirtæki á fjarskiptamark- aði, Sýn, með skuldahlutfallið 3,4 x ebitda. „Íslensk fyrirtæki með skuld- setningu sem er 5 x ebitda eða hærra eru ekki sjálfbær til lengri tíma. Pen- ingarnir klárast allir í afborganir lána og skatta og lítið verður eftir til fjárfestinga, hvað þá arðgreiðslna,“ útskýrir Orri. Eignir jukust samhliða Til samanburðar má lesa úr ný- birtum ársreikningi Gagnaveitunnar að fyrirtækið hafi fjárfest á síðasta ári fyrir 150% af heildartekjum og var í árslok 2017 með vaxtaberandi skuldir að fjárhæð sem jafngilti 7,8 x ebitda. Heildarskuldsetning félags- ins jókst um tæpa fjóra milljarða króna á síðasta ári, fór úr tæpum sjö milljörðum í tæpa 11 milljarða. Erling Freyr Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri GR, segir aðspurður um ástæðu aukningarinnar og hvort lánardrottnar setji þeim ekkert há- mark hvað skuldasöfnun varðar að auknar fjárfestingar hafi verið fjármagnaðar með lánsfé. „Verðmæti eigna Gagnaveitu Reykjavíkur jókst því samhliða um 3,8 milljarða á síð- asta ári. GR heldur fjármögnunar- aðilum vel upplýstum um fjárfesting- aráform fyrirtækisins og rekstur þess og fjármögnun uppbyggingar- innar hefur gengið vel,“ segir Erling. Tekjur GR námu 2.140 milljónum á árinu og jukust um 323 milljónir króna milli ára. Ebitda Gagnaveit- unnar var 1.221 milljón króna árið 2017. Hagnaður félagsins fyrir tekju- skatt nam 43 milljónum króna en tap eftir skatt var 100 m.kr. Orri bætir við að ef Síminn og önn- ur fyrirtæki á sama markaði höguðu sér með sama hætti og Gagnaveitan yrðu viðkomandi fyrirtæki ógjaldfær mjög fljótlega. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu fyrr á þessu ári hefur Gagna- veitan fjárfest í fjarskiptum fyrir ná- lægt 30 milljarða króna að núvirði á síðustu 20 árum, þrátt fyrir að aldrei hafi verið jákvætt fjárflæði af starf- seminni. Lánaheimildir GR marg- faldar á við einkafyrirtæki Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Internet Gagnaveita Reykjavíkur, sem er í eigu OR, leggur ljósleiðara í samkeppni við Mílu, dótturfélag Símans. Tengingar » Öll heimili á höfuðborgar- svæðinu verða tengd ljósleiðara GR um næstu áramót. » Skuldir GR námu 11,5 millj- örðum króna í lok árs 2017. » Tekjur félagsins voru rúmir tveir milljarðar. » 91 þúsund heimili tengjast nú þegar ljósleiðara Gagnaveitu Reykjavíkur. » Einkafyrirtæki sæta ströngum skilyrðum um skuldsetningu.  Skuldir Gagnaveitu Reykjavíkur jukust um fjóra milljarða á árinu 2017 365, sem gefur út Fréttablaðið og tískutímaritið Glamour, skilaði 146 milljóna króna rekstrartapi á síð- asta rekstrarári, samanborið við 312 milljóna rekstrartap árið á undan. Taka þessar tölur til þeirrar starf- semi sem enn er rekin undir hatti fé- lagsins og dótturfélaga þess í kjölfar þess að Vodafone, síðar Sýn, keypti stóran hluta starfseminnar í lok árs í fyrra. Tekjur félagsins af starfseminni drógust lítillega saman milli ára og námu 2,5 milljörðum króna en voru 2,6 milljarðar árið á undan. Það gerði kostnaðurinn einnig, stóð í tæpum 2,7 milljörðum og lækkaði um 251 milljón milli ára. Fjármunatekjur í 522 milljónir Fjármunatekjur jukust hins vegar til muna og fóru úr 13 milljónum í 522 milljónir króna. Skv. reikningn- um munar þar mestu um gangvirð- isbreytingar veltufjárhlutabréfa en þær voru jákvæðar sem nam 495 milljónum. Það heldur hins vegar á talsverðum eignum í kjölfar sölunn- ar til Sýnar. Þannig fékk félagið um 1,5 milljarða í formi reiðufjár fyrir söluna, 10,9% hlut í Sýn og þá losaði félagið um skuldir sem námu 4,6 milljörðum króna. Vegna sölunnar bókfærði 365 sömuleiðis 283 milljóna króna söluhagnað í bækur sínar fyrir liðið ár. Þrátt fyrir söluhagnaðinn og hinar miklu fjármunatekjur reyndist tap af starfsemi félagsins 348 milljónir króna. Ræður þar mestu sú stað- reynd að félagið bókfærir tekju- skattsgreiðslu af aflagðri starfsemi og nemur hún ríflega 1,1 milljarði króna. Eignir 365 námu um nýliðin áramót 5,3 milljörðum króna. Þar af var handbært fé 1,2 milljarðar, veltufjárhlutabréf stóðu í 2,2 mill- ljörðum og óefnislegar eignir voru metnar á 857 milljónir. Skuldir félagsins námu á sama tíma 2,9 milljörðum króna. Þar af námu langtímaskuldir tæpum 1,1 milljarði króna. Eigið fé félagsins var bókfært 2,4 milljarðar króna. Félagið hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykja- víkur í skattamáli sem félagið rak vegna úrskurðar ríkisskattstjóra og yfirskattanefndar. Félagið tapaði málinu í héraði. Verði niðurstaða dómsins staðfest fyrir æðra dómstigi mun það hafa áhrif til lækkunar eig- infjár félagsins sem nemur 584 millj- ónum króna. ses@mbl.is Rekstrartap 365 146 milljónir í fyrra  Gefur út Fréttablaðið og Glamour 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.