Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 20

Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 Bolli Héðinsson ritar pistil í Fréttablaðið þann 18.9. 2018 um kjaramál þar sem hann sakar Samtök atvinnu- lífsins um að bera ábyrgð á úlfúð í sam- félaginu. Það byggir hann á því að fulltrúar SA skipi helming stjórnarsæta almennu lífeyrissjóðanna og gætu því stöðvað „höfrungahlaup gegndarlausra yf- irborgana í fyrirtækjum sem lífeyr- issjóðirnir eiga, sem eru flest stærri fyrirtækja á Íslandi“. Þá sakar hann SA um að hafa „ekki nýtt samtakamátt sinn til að standa gegn ofurlaunum“. Ásakanir Bolla Héðinssonar eru tilefnislausar og málflutningur hans byggist á van- þekkingu á skyldum og ábyrgð stjórnarmanna í lífeyrissjóðum og hlutafélögum. Laun og launaþróun stjórnenda sem annarra starfsstétta er mæld reglulega af Hagstofu Íslands. Nið- urstaða launarannsókna Hagstof- unnar er sú að laun stjórnenda hafi hækkað minna en annarra starfs- stétta og svo hefur verið um langt árabil. Frá árslokum 2014 hefur launavísitala stjórnenda hækkað um 26% en annarra starfsstétta um 31- 38%, mest hjá þeim lægst launuðu. Starfsstéttin stjórnendur er allstór hópur og hefur 16% vægi í vísitöl- unni. Fyrir nokkrum dögum birti Hag- stofan tölur um árslaun eftir störf- um. Þar kemur fram að regluleg heildarlaun forstjóra og aðal- framkvæmdastjóra fyrirtækja hækkuðu um 23% milli áranna 2014 og 2017. Til samanburðar hækkuðu regluleg heildarlaun almennt um 25% en mest hækkuðu laun þjón- ustu-, sölu og afgreiðslufólks og iðn- aðarmanna, um 29%. Óreglulegar greiðslur, sem endurspegla að mestu afkomutengd kaupaukakerfi forstjóra og aðalframkvæmdastjóra fyrirtækja á almennum markaði hækkuðu heildarlaun þeirra um 4,5% til viðbótar á þessu tímabili. Þessar tölur sýna svart á hvítu að engin innistæða er fyrir staðhæfingum Bolla um að laun æðstu stjórnenda fyr- irtækja á almennum markaði hafi hækkað meira en annarra og valdi „höfrungahlaupi yfirborgana“. Megingagnrýni Bolla felst í því að SA hafi ekki sagt stjórn- armönnum sem þau tilnefna í stjórnir líf- eyrissjóða fyrir verk- um og skipað þeim að hafa ákveðna afstöðu til kaup- aukakerfa stjórnenda fyrirtækja sem að hluta eru í eigu lífeyrissjóða. Bolli er ekki sá fyrsti sem fellur í þessa gryfju. Um stjórnarmenn lífeyrissjóða og annarra fjármálafyrirtækja, gilda mörg lög (lög um lífeyrissjóði, lög um fjármálafyrirtæki, hluta- félagalög) og fyrirmæli frá Fjár- málaeftirlitinu. Aðalatriðið í þessu samhengi er að stjórnarmenn líf- eyrissjóða skulu vera sjálfstæðir í störfum sínum og leggja hlutlægt mat á málefni lífeyrissjóðsins. Í samþykktum sjóðanna er skýrt tek- ið fram að stjórnarmenn skuli haga störfum sínum í einu og öllu með hagsmuni sjóðsins að leiðarljósi. Í þessu felst að þeim er ekki heimilt að taka við tilskipunum frá tilnefn- ingaraðilum þótt þeir starfi í um- boði þeirra. Í tilnefningarbréfi SA til fulltrúa sem samtökin skipa í stjórnir lífeyrissjóða kemur m.a. fram að þeim beri að gæta hags- muna lífeyrissjóðsins í hvívetna og í reglum SA um tilnefningar í stjórn- ir lífeyrissjóða segir m.a. að stjórn- armenn skuli í störfum sínum byggja á almennum sjónarmiðum og markaðri stefnu SA í lífeyr- ismálum. SA hafa því ekki afskipti af því hvernig einstakir stjórnarmenn líf- eyrissjóða beita sér í umræðum á stjórnarfundum sjóðanna um kaup- aukakerfi fyrirtækja sem skráð eru á markaði. Á hinn bóginn ber þeim að byggja á almennum sjónar- miðum SA í lífeyrismálum og þar undir flokkast afstaða til starfs- kjarastefnu skráðra fyrirtækja. Afstaða SA til kaupaukakerfa og afkomutengdra bónusa til æðstu stjórnenda er skýr. Þau skulu vera hófleg og í samræmi við íslenskan launaveruleika. Formaður SA tjáði þessa stefnu með afar skýrum hætti á ársfundi SA þann 16. apríl sl. Þar sagði hann: „En við í atvinnulífinu þurfum einnig að horfa í eigin barm. Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að fyrirtæki ... starfi í góðri sátt við umhverfi sitt og sam- félag. Launakjör æðstu stjórnenda séu hófleg, innan skynsamlegra marka og ofbjóði ekki réttlæt- iskennd almennings. Sérstaklega er mikilvægt að fyrirtæki sem eru skráð á almennan hlutabréfamark- að móti starfskjarastefnu fyrir stjórnendur sína og setji launum og aukagreiðslum skynsamleg mörk sem samræmast íslenskum veru- leika. Við vitum öll að umræða um mjög há laun stjórnenda hefur áhrif.“ Stjórnir lífeyrissjóðanna tilnefna fulltrúa í stjórnir hlutafélaga hafi þau til þess nægilegan atkvæða- styrk. Þeir skulu vera sjálfstæðir í störfum sínum og ekki taka við fyr- irmælum þeirra sem tilnefna þá, ekki frekar en þeir stjórnarmenn sem SA og verkalýðshreyfingin skipa í stjórnir lífeyrissjóða. Skylda þeirra er fyrst og fremst að standa vörð um hagsmuni fyrirtækisins sem þeim er falið að stjórna. Á árum áður höfðu lífeyrissjóð- irnir lítil afskipti af stjórnum hluta- félaga þar sem þeir áttu eign- arhluti. Með vaxandi eignarhlut hafa sjóðirnir skilgreint sig sem virka fjárfesta og mótað hlut- hafastefnu gagnvart fyrirtækjum þar sem þeir eiga hlut, þ.m.t. stefnu um kaupaukakerfi æðstu stjórn- enda, og beitt sér á hluthafa- fundum. Má þar t.d. nefna hlut- hafastefnur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og Gildis- lífeyrissjóðs sem birtar eru á heimasíðum sjóðanna. Í stefnu Líf- eyrissjóðs verzlunarmanna er lögð áhersla á að ef starfskjör stjórn- enda eru árangurstengd í formi kaupauka skuli byggt á viðmiðum til lengri tíma, svo skammtímasjón- armið hafi ekki áhrif. Í hlut- hafastefnu Gildis-lífeyrissjóðs segir m.a. að við ákvörðun launa forstjóra telji sjóðurinn rétt að líta til innri þátta félags og launadreifingar inn- an þess. Sjóðurinn leggi áherslu á að ávallt liggi fyrir greinargóðar upplýsingar og rök fyrir starfs- kjörum stjórnenda og starfsmanna, m.a. árangurstengdum launa- greiðslum s.s. kaupaukum, sem og kaupréttum og öðrum réttindum sem tengjast hlutabréfum félaga. Á heimasíðu Gildis er einnig að finna yfirlit yfir atkvæðagreiðslur og til- lögur sjóðsins á aðalfundum skráðra hlutafélaga þar sem fram kemur að hann hafi í tveimur til- vikum greitt atkvæði gegn tillögum um starfskjarastefnu og lagt fram bókanir máli sínu til stuðnings. Þetta eru einmitt tilvikin sem mest hafa verið gagnrýnd á opinberum vettvangi. Lengi vel höfðu lífeyrissjóðir al- mennt lítil afskipti af stjórnun þeirra fyrirtækja þar sem þeir áttu hlut og létu öðrum eigendum eftir að annast stefnumótun félaganna. Fyrir liðlega fimm árum hófu sjóð- irnir hins vegar virka þátttöku í stjórnum fyrirtækjanna, stefnumót- un þeirra og launastefnu. Sjóðirnir telja mikilvægt að fyrirtækin sýni ábyrgð í rekstri og að þau starfi í sátt við umhverfi sitt og samfélagið. Í því felst meðal annars að kaup og kjör séu í takti við það sem gengur og gerist á vinnumarkaðnum og í samræmi við íslenskan veruleika. Lífeyrissjóðir og launastefna Eftir Halldór Benja- mín Þorbergsson » Afstaða SA til kaupaukakerfa og afkomutengdra bónusa til æðstu stjórnenda er skýr. Þau skulu vera hófleg og í samræmi við íslenskan launa- veruleika. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Tilefni þessara skrifa er margra ára barátta forsvarsmanna kirkjugarða til að fá leiðréttingu á skerð- ingu framlaga vegna greftrunar og umhirðu garðanna eftir efna- hagshrunið fyrir um tíu árum. Flest erum við sam- mála um að sýna þeim framliðnu og minningu þeirra virð- ingu á ýmsan hátt. Ef vel er að því staðið kostar það einhver útgjöld, ekki eingöngu fyrir aðstandendur heldur sömuleiðis samfélagið og um það gilda lög og reglugerðir. Í sam- ræmi við lögin voru gerðir samn- ingar sem kveða á um rekstur og skyldur kirkjugarðanna annars vegar og greiðslur ríkisins hins vegar. Rétt er að undirstrika að lögum samkvæmt eru kirkjugarðar sjálfs- eignarstofnanir og fjárhagur þeirra er aðskilinn rekstri þjóðkirkjunnar og sóknarnefnda. Ég teldi eðlilegra að nota orðið grafreitur í stað kirkjugarðs því það eiga allir rétt á, án trúarskoðana, að hvíla í afmörk- uðum grafreitum, vígðum eða óvígðum. Sanngjörn leiðrétting Forsvarsmenn kirkjugarðanna gerðu ekki athugasemdir við skerð- ingu á greiðslum frá ríkinu í efna- hagshruninu þó að niðurskurðurinn væri meiri en almennt gerðist. Nú má ætla eftir öll þessi ár að kominn sé tími til að leiðrétta samningsbundin framlög sem í dag eru skert um rúmlega 40%. Ekki er um að ræða háar fjárhæðir í stóra samhenginu en skiptir sköpum fyr- ir flesta garðana sem ekki hafa raunhæfa möguleika á að sækja sér sértekjur. Tekið skal fram að ekki er farið fram á afturvirkar leiðrétt- ingar. Unnar hafa verið ítarlegar skýrslur af óháðum aðilum og fyrir ráðuneyti sem staðfesta að ríkið hefur ekki staðið við sinn hluta samningsins og að rekstr- argrundvöllur flestra kirkjugarða er nánast brostinn. Ekki er rétt að setja alla undir sama hatt enda kirkjugarðar landsins fjölbreyttir og aðstæður mismunandi. Samfélagsleg ábyrgð Ég er í forsvari fyrir kirkju- garðana á Höfn og Stafafelli í Lóni. Reksturinn er ekki umfangsmikill en gengur samt ekki upp ef sóma- samlega skal staðið að verki. Þó er umtalsverð sjálfboðavinna innt af hendi og verktakar sanngjarnir svo ekki sé meira sagt. Í ýmsum fé- lagsstörfum hef ég leyft mér að leita til fjölda aðila með stóra og smáa styrki. Hingað til hef ég ekki treyst mér að óska eftir stuðningi vegna kostnaðar við grafartöku og umhirðu garðanna en látið mig hafa það að leita eftir styrkjum til viðhalds- og stofnframkvæmda. En þannig getur þetta ekki gengið lengur og á ekki að vera svona. Ég verð að viðurkenna að það er óþægilegt að bera ábyrgð á skulda- söfnun kirkjugarðanna sem eru op- inberar stofnanir og reknar fyrir almannafé. Þó er ennþá ónotalegri tilhugsunin um að bera ábyrgð á vanhirðu þeirra. Ég hygg að flestir hafi fundið muninn á áhrifum þess að heimsækja grafreit þar sem um- gengni er góð og snyrtileg eða van- hirtan garð. Það er umhugs- unarvert hvort fólk verður tilbúið að taka á sig ábyrgð og sinna þess- ari samfélagsþjónustu áfram af áhuga og hugsjón ef ekki verður breyting á. Garðarnir eru ekki aðeins graf- reitir. Þeir eru hluti af umhverfinu og jafnvel í hugum fólks þáttur í ásýnd samfélagsins. Sömuleiðis hafa garðarnir mikið aðdráttarafl fyrir ferðafólk og sem dæmi þá heimsækir fjöldi fólks litla kirkju- garðinn okkar við Stafafellskirkju í Lóni. Væntingar um betri tíð Sú var tíðin að aðstandendur þurftu sjálfir að eiga rekur til að taka grafir ástvina sinna, vonandi koma þeir tímar ekki aftur. Ályktun fjárlaganefndar Alþing- is, eftir heimsókn fulltrúa Kirkju- garðasambandsins í vor, gefur til- efni til að vona að þessi málaflokkur fái eðlilega afgreiðslu en nefndin beinir því til dóms- málaráðuneytisins að leysa málið. Áttu reku? Eftir Albert Eymundsson » Það er óþægilegt að bera ábyrgð á skuldasöfnun kirkju- garðanna sem eru opin- berar stofnanir og rekn- ir fyrir almannafé. Þó er ennþá ónotalegri til- hugsunin um að bera ábyrgð á vanhirðu þeirra. Albert Eymundsson Höfundur er formaður stjórnar kirkjugarðanna á Höfn og Stafafelli í Lóni og á sæti í stjórn Kirkjugarða- sambands Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.