Morgunblaðið - 25.09.2018, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
✝ Haukur Guð-jónsson fædd-
ist á Selfossi 27.
desember 1947.
Hann lést 16.
september 2018 á
Hjúkrunarheimili
Eiri í Grafavogi.
Foreldrar hans
voru Guðjón Helgi
Sigurðsson, f. 26.
nóvember 1927, d.
24. ágúst 2014, frá
Seljatungu í Gaulverjabæjar-
hreppi, og Margrét Valdimars-
dóttir, f. 26. apríl 1921, d. 13.
október 1982, frá Teigi í
Vopnafirði.
Systkini Hauks eru Rann-
veig Ágústa Guðjónsdóttir, f.
6. desember 1952, d. 5. apríl
2009, maki Ólafur Árnason.
Erla Sigríður Guðjónsdóttir, f.
27. maí 1958, maki Oddur Óla-
son. Valdimar Guðjónsson, f.
21. janúar 1961, maki Kristín
Ólafsdóttir.
Haukur hóf skólagöngu sína í
barnaskóla Gaulverja og lauk
henni með því að útskrifast
sem búfræðingur frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri. Í
framhaldi af því fór hann til
Minneapolis í Minnesota í
Bandaríkjunum. Þar starfaði
hann hjá veitingaþjónustu
sem rekin var af föðursystur
hans. Eftir dvöl sína í Banda-
ríkjunum flutti hann aftur
heim í Gaulverjabæ til for-
eldra sinna þar sem hann
sinnti ýmsum störfum, meðal
annars sem steypubílstjóri og
síðar við lagningu vatnsveitu í
flóanum. Í framhaldi af því
hóf hann störf hjá Reykja-
lundi í Mosfellsbæ þar sem
hann starfaði við plastsuðu.
Hann flutti með starfi sínu til
Reykjavíkur og síðar í Mos-
fellsbæ þar sem hann bjó
lengst. Haukur ferðaðist víða
um land í tengslum við störf
sín sem plastsuðumeistari en
við það starfaði hann þangað
til hann lét af störfum sökum
heilsubrests.
Útför Hauks fer fram frá
Lágafellskirkju í dag, 25.
september 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Haukur giftist
Jóhönnu Baldurs-
dóttur, f. 29. maí
1948, árið 1980.
Þau slitu sam-
vistum árið 2001.
Synir þeirra eru:
1) Baldur Hauks-
son, f. 7. nóv-
ember 1979, sam-
býliskona Laufey
Bjarnadóttir, f.
15. mars 1988.
Börn þeirra eru Jóhann Helgi,
f. 25. október 2012, og Bríet
Sól, f. 22. september 2016. 2)
Grétar Hauksson f. 18. apríl
1981. Eiginkona Eva Ósk
Svendsen Engelhartsdóttir, f.
2. júlí 1982. Börn þeirra eru
Helga Katrín, f. 28. mars
2005, og Rúnar Óli, f. 29. jan-
úar 2008.
Haukur ólst upp í
Gaulverjabæ, þar sem for-
eldrar hans bjuggu ásamt
börnum og sinntu búskap.
Elsku pabbi, núna er biðinni
loksins lokið. Þetta var erfitt
símtal að fá en í hjartanu var
ákveðinn léttir að þú værir
núna loksins laus úr prísund-
inni, kominn á betri stað. Mikið
er ég þakklátur fyrir þann tíma
sem ég fékk með þér og allar
þær stundir sem við áttum
saman fjölskyldan og síðan við
tveir. Þessi síðustu ár hafa ver-
ið erfið og lánið ekki leikið við
þig frekar en mömmu. Í seinni
tíð hef ég átt erfitt með að
skilja hvernig þú þoldir óþekkt-
ina í okkur bræðrunum þegar
við vorum litlir og þrátt fyrir
hana varstu alltaf til í að hjálpa
manni þegar maður kom heim
búinn að skemma eitthvað,
hvort sem það var leikfang, hjól
eða bíll. Alltaf gat maður geng-
ið að þér vísum ef eitthvað bját-
aði á. Mér verður hugsað til
þess þegar við fórum saman á
Rolling Stones í Kaupmanna-
höfn, að þú skyldir loksins sjá
átrúnaðargoðin sem þú hafðir
haldið upp á frá því á unglings-
árunum. Þessa ferð ásamt öll-
um mínum minningum mun ég
geyma í hjarta mín til að geta
rifjað upp þegar söknuðurinn
sækir að. En núna í dag kveð
ég þig í hinsta sinn, elsku
pabbi, takk fyrir allt.
Þinn sonur
Baldur.
Það er tæpast hægt að segja
að fregnin af andláti Hauks
frænda míns hafi komið á óvart.
Hann var búinn að glíma við al-
varlegan heilsubrest í nærfellt
áratug og orðinn saddur líf-
daga. Það er hins vegar svo að
á kveðjustundu sem þessari
fylgir ávallt sorg og söknuður.
Þótt samvistir hafi strjálast
okkar á milli á seinni árum vor-
um við nánir hvor öðrum enda
vorum við bæði systra- og
bræðrasynir og einungis
tveggja ára munur í aldri. Ég
sótti mjög að komast í sveitina
til frændfólks míns og var mörg
ár sumrungur þar á bæ. Deildi
ég þá herbergi með frænda
mínum og brölluðum við ým-
islegt. Þar lærði ég að meta
Rollingana, sem voru í uppá-
haldi, og Bítlana. Lög unga
fólksins ómuðu úr herberginu í
hverri viku og toppurinn var að
ná í Kana-útvarpið þótt hlust-
unarskilyrði væru ekki alltaf
upp á það besta. Haukur átti
góðar myndavélar sem þá voru
ekki hvers manns eign eins og
nú og hafði hann gaman af því
að taka myndir. Í frístundum
var mikið við haft til að myrkva
herbergið og framkalla mynd-
irnar og stækka.
Ég leit alla tíð upp til frænda
míns. Hann var harðduglegur
og kunni á öllu verklegu skil í
sveitinni. Bústörfin léku í hönd-
um hans, hann gekk í öll verk
sem fullorðinn væri og var bæði
verklaginn og verkhygginn.
Öllu sem vék að vélum kunni
hann skil á, hann gat smíðað úr
járni og hann var óragur við að
prófa ýmsa hluti sem mér
kaupstaðardrengnum voru
framandi.
Haukur hafði ungur áhuga á
líkamsrækt og útbjó sér bæði
handlóð og slár sem hann
steypti úr blýi sem safnað var
úr rafgeymum. Hann vatt sér í
terru á slám og bitum í útihús-
unum, gerði armlyftur sem ég
horfði með aðdáun á en kaus að
taka ekki þátt til að sýna ekki
hversu miklu munaði á okkur
frændum. Þessi áhugi Hauks
leiddi til þess að hann fór í
íþróttaskóla Sigurðar Greips-
sonar í Haukadal. Af íþrótta-
skólanum lá svo leið hans í
Bændaskólann á Hvanneyri
þaðan sem hann lauk búnaðar-
námi. Það átti þó ekki fyrir
honum að liggja að stunda bú-
skap því hann starfaði lengst-
um hjá Reykjalundi.
Haustið 1969 fór Haukur
ásamt Sverri frænda okkar til
starfa hjá Laufeyju frænku Sig-
urðardóttur á matsölustað í
Minneapolis.
Vorið 1970 bauð hún mér að
koma til þeirra. Það var auðvit-
að mikið ævintýri fyrir mig að
fá að dveljast með frændum
mínum og taka þátt í ævintýr-
um þeirra og starfi. Þeir
þekktu orðið ýmsa refilstigu
borgarinnar sem þeir leiddu
mig um og töldu sig nokkuð
sjóaða á hálum ís hennar. Þeir
höfðu eignast ameríska drossíu,
Oldsmobile MLC-504, og á
henni lögðum við upp í 4.000
mílna ferðalag um sléttur
Bandaríkjanna með tjald og
annan viðlegubúnað.
Aðra ferð fórum við með
frænku á Íslendingahátíð við
Michigan-vatn.
Þetta var ógleymanlegt æv-
intýri sem ég stend frændum
mínum og frænku í þakkar-
skuld fyrir. En nú er komið að
leiðarlokum.
Eimpípan blístrar í síðasta sinn;
sé ég að komin er skilnaðarstund.
(Erla)
Við Anna Bára sendum Grét-
ari, Baldri, fjölskyldum þeirra
og ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur. Hvíl þú í friði, kæri
frændi.
Trausti.
Lífið tekur stundum snögg-
lega U-beygju, það gerði það
sannarlega hjá Hauki, mínum
kæra mági, er hann fékk ótíma-
bært heilablóðfall fyrir níu ár-
um sem skerti svo mjög lífs-
gæði hans.
Tíminn stöðvast um stund og
maður hugsar um liðinn tíma.
Hann tók mér einkar vel er ég
kom inn í fjölskylduna, feimin
og reynslulaus verðandi hús-
móðir á æskuheimili hans í
sveitinni sem hann hafði svo
sterkar taugar til. Í einni heim-
sókninni hingað gaf hann mér
forláta gaffal í hrossasaltkjöts-
tunnuna sem hann hafði smíðað
og hefur nýst mér vel.
Haukur var hlýr rólyndis-
maður sem gerði ekki manna-
mun, þeir sem minna mega sín
áttu í honum góðan vin. Síðustu
ár voru honum erfið þar sem
hann gat ekki tjáð sig og missti
mátt að hluta.
Hann var ótrúlega rólegur
og yfirvegaður yfir hlutskipti
sínu. Ég undraðist það oft og
dáðist að, þó hann gæti ekki
tjáð sig með orðum þá skildi
hann allt sem um var rætt, það
sást alveg í góðlegum augunum
hans og svipbrigðum.
Andlát er alltaf dapurlegt en
stundum líkn fyrir hinn liðna,
ég tel mig geta fullyrt það að
hann var vel tilbúinn til að fara
yfir í sumarlandið góða og losna
úr þessum fjötrum sem hann
var í.
Hafðu bestu þakkir fyrir allt,
Haukur minn. Innilegar sam-
úðarkveðjur til allra aðstand-
enda hans.
Kristín Ólafsdóttir.
Nú þegar félagi okkar og
vinur, Haukur frá Gaulverjabæ,
er burt kvaddur frá þessu jarð-
neska lífi eftir erfið veikindi í
alltof langan tíma, langar okkur
að minnast hans í nokkrum orð-
um. Við kynntumst honum þeg-
ar við vorum ungir að árum og
síðan lá leið okkar allra haustið
1965 í Bændaskólann á Hvann-
eyri þar sem við vorum við nám
og leik í tvo vetur. Haukur var
góður félagi, léttur í lund og
hugmyndaríkur og hafði hann
gaman af náminu og gekk vel
að nema fræðin. Mjög sótti
hann í að leika tónlist og heyrð-
ist því oft nokkur hávaði frá
herbergi hans þegar hann setti
plötu á fóninn. Oftast lék hann
Rolling Stones eða Bítlana og
voru þessir tónleikar hans oft
vel sóttir af skólafélögunum.
Haukur var mjög tæknilega
sinnaður, einn af þeim sem
voru oft með myndavélina á
lofti og náði því mörgum góðum
myndum mönnum að óvörum.
Haustið 1968 fórum við með
Hauki og fleirum með Bænda-
ferðum til London og höfðum
mjög gaman af og oft hefur sú
ferð verið rifjuð upp á góðum
stundum. Sem ungur maður
hafði Haukur mjög fastmótaðar
skoðanir á hinum ýmsu málum,
tókumst við oft á og varð að
mikill hávaði þegar farið var að
ræða stjórnmálin en aldrei man
ég eftir að menn yrðu sárir eft-
ir slíkar rimmur. Eftir að námi
lauk vann Haukur á búi for-
eldra sinna í Gaulverjabæ, fór
til sjós og vann ýmis önnur
störf. Hann var ákaflega góður
vélamaður, handlaginn og snjall
viðgerðarmaður. Þá erfði hann
smá bíladellu frá föður sínum.
Ekki fór það svo að hann gerð-
ist bóndi þrátt fyrir námið á
Hvanneyri en eflaust hefði það
farið honum vel úr hendi ef svo
hefði orðið. Hann valdi annan
starfsvettvang og þar nýttust
starfskraftar hans og lagni vel.
Við gamlir félagar kveðjum
Hauk með virðingu og þökk en
getum ekki verið við útför hans
þar sem aldrei þessu vant erum
við staddir erlendis. Sendum
sonum og ættingjum öllum
samúðarkveðjur.
Geir Ágústsson, Gerðum,
og Ólafur Einarsson,
Hurðarbaki.
Haukur
Guðjónsson
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL
Glæsibær. Sími 7730273
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Málarar
Málarar.
Faglærðir málar geta bætt við
sig verkefnum. Öll almenn
málningarþjónusta í boði.
uppl. í síma 696-2748, netfang:
loggildurmalari@gmail.com
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Folöld til sölu
Folöld undan Aðalsteini frá Íbíshóli til
sölu í Húsey í Skagafirði. Aðalsteinn
fór í aðaleinkunn upp á 8,47 í sumar,
8,66 fyrir hæfileika, þarf af 9 fyrir tölt
og skeið.
Folöldin sýna allar gangtegundir.
Áhugasamir geta haft samband í s.
898-9895 eða með því að senda póst
á felix@norfish.is
Dýrahald
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
HARALDAR GÍSLA SIGFÚSSONAR,
fv. leigubifreiðarstjóra
frá Stóru-Hvalsá, Hrútafirði,
Álfheimum 44, Reykjavík.
Hreinn Haraldsson Ólöf Erna Adamsdóttir
Hanna Dóra Haraldsdóttir Bjarni Jón Agnarsson
Sigfús Birgir Haraldsson Hanna Jóhannsdóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráð-
legt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina
vita.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar