Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Ég er búin að bíða eftirfertugsafmælinulengi,“ segir Erla
Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri
Pírata, en hún á einmitt 40 ára
afmæli í dag. „Á unglingsárun-
um taldi ég mig vita allt, eins
og gengur og gerist, en upp úr
tvítugu fór ég að átta mig á því
hvað ég vissi í raun lítið en
lærði mikið á hverju einasta
ári. Ég reiknaði þá fastlega
með því að vera orðin algjör
viskubrunnur um fertugt og
beið spennt eftir því. Núna sé
ég að maður er ennþá að læra
og verður líklega aldrei mettur
þegar kemur að þekkingu og
reynslu. Ég held því bara
áfram að læra.“
Erla stendur við þau orð því
hún er núna í meistaranámi,
stundar fjarnám við Bifröst í
forystu og stjórnun með
áherslu á mannauðsstjórnun. „Þetta nám talar mikið inn í starfið mitt
og ég hef því getað unnið verkefni í skólanum sem tengjast vinnunni
beint og næ þannig að samtvinna nám og vinnu.“
Framkvæmdastjórastaðan hjá Pírötum hefur verið erilsöm enda
hafa tvennar kosningar farið fram frá því að Erla byrjaði í starfinu
fyrir rúmu ári. „Núna er ég að undirbúa aðalfund Pírata sem verður
um næstu helgi á Selfossi. Þá verður kosið í laus sæti í ráðum og
nefndum, kynntar árskýrslur og ársreikningur. Ég hef því varla tíma
til að halda upp á afmælið mitt, ætli ég fari nú samt ekki út að borða í
hádeginu. Ég ætlaði alltaf halda svaka partí þegar ég yrði fertug og
mér finnst rosalega gaman að eiga afmæli. Kannski næ ég að halda
partí í október.“
Áður en Erla tók við starfinu hjá Pírötum hafði hún starfað lengi
sem blaðamaður og vakið mikla athygli fyrir störf sín þar. Hún vann
þrisvar sinnum mál hjá Mannréttindadómstól Evrópu þar sem ís-
lenska ríkið var dæmt fyrir að hafa brotið Mannréttindasáttmála Evr-
ópu gagnvart henni. Í þremur málum var hún dæmd fyrir meiðyrði á
Íslandi, í tveimur þeirra féll dómurinn í Hæstarétti en í þeim þriðja
fékk hún ekki áfrýjunarleyfi og gat því ekki áfrýjað til Hæstaréttar.
Hún fór þá með málið til Mannréttindadómstólsins í staðinn.
Dóttir Erlu er Lovísa sem er átta ára gömul. „Hún er mér allt og ég
er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið hana í líf mitt.“
Píratinn Erla Hlynsdóttir.
Gerði Íslenska ríkið
þrisvar afturreka
Erla Hlynsdóttir er fertug í dag
S
igurður fæddist í Reykja-
vík 25.9. 1948 og ólst þar
upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1968, kandí-
datsprófi í læknisfræði
frá HÍ 1975, stundaði framhaldsnám
í lyflækningum við Hurley Medical
Center í Flint í Michigan 1978-79 og
við University of Wisconsin í Madis-
on 1979-81, lauk þaðan sérfræðiprófi
í lyflækningum 1981, stundaði fram-
haldsnám í smitsjúkdómum þar
1981-83, öðlaðist bandarískt sér-
fræðileyfi í lyflækningum 1981 og í
smitsjúkdómum 1984, íslenskt sér-
fræðileyfi í lyflækningum og smit-
sjúkdómum 1984 og varði dokt-
orsritgerð við HÍ 1993 á sviði
sýklafræði og lyfjafræði.
Sigurður var aðstoðarlæknir við
Borgarspítalann og Landspítalann
1975-78, heilsugæslulæknir á Egils-
stöðum 1977, slysadeildarlæknir við
sjúkrahús í Elkhorn og Beaver Dam
í Wisconsin 1980-85, sérfræðingur og
klínískur kennari við University of
Wisconsin 1983-85, sérfræðingur í
lyflækningum og smitsjúkdómum
við Borgarspítalann 1985-93, sér-
fræðingur á sama sviði við Landspít-
alann 1993-99, yfirlæknir þar og
fræðslustjóri unglækna 1994-99,
sviðsstjóri fræðasviðs Landspítalans
1995-98, ásamt öðrum, settur aðstoð-
arlandlæknir 1997, var landlæknir
1998-2008, læknir og tæknilegur ráð-
gjafi á vegum Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands í Malaví (í
eins árs launalausu leyfi frá starfi
landlæknis) 2006-2007 og sérfræð-
Sigurður Guðmundsson, prófessor við HÍ og sérfr. við LSH – 70 ára
Við þorpsdæluna Sigurður var læknir og ráðgjafi á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví 2006-2007.
Sinnti læknisstörfum,
kennslu og stjórnsýslu
Göngugarpar Sigurður og Sigríður ganga úr Veiðileysufirði að Rangala.
Vinkonurnar Stein-
unn Böðvarsdóttir,
Ísold Brynja
Brjánsdóttir og
Júlíana Oddsdóttir
héldu tombólu til
styrktar Rauða
krossinum. Söfn-
unin var fyrir fram-
an Krónuna í Nóa-
túni og söfnuðust
alls 9.379 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift aðMorgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is