Morgunblaðið - 25.09.2018, Qupperneq 27
ingur í lyflækningum og smitsjúk-
dómum við LSH frá 2012.
Sigurður var stundakennari við
námsbraut í hjúkrunarfræði og við
læknadeild HÍ 1985-89, stundakenn-
ari í röntgentækni við Tækniskóla
Íslands 1987-90 og í hjúkrunarfræði
við HA 1988-89, dósent og síðar pró-
fessor í lyflæknisfræði við lækna-
deild HÍ 1989-1999, gistiprófesor í
læknisfræði og lýðheilsuvísindum
við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við
HÍ 2008, forseti heilbrigðisvísinda-
sviðs HÍ 2008-2012 og prófessor við
læknadeild frá 2012.
Sigurður sat í Stúdentaráði HÍ
1969-71, var formaður Félags lækna-
nema 1973-74, hefur setið í fjölda
nefnda á vegum læknadeildar HÍ,
Borgarspítalans, heilbrigðis-
yfirvalda og Læknafélags Reykja-
víkur frá 1985 og sat í stjórn Sam-
taka íslenskra lækna gegn
kjarnorkuvá.
Sigurður hefur skrifað fjölda
greina í innlend og erlend fagtímarit
sem og bókarkafla, einkum um smit-
sjúkdóma og sýklafræði, hefur flutt
fjölda fyrirlestra á innlendum og er-
lendum ráðstefnum og ritað greinar
og haldið fjölda erinda um alnæmi.
Hann hefur hlotið fjölda rannsókn-
arstyrkja úr Vísindasjóði Íslands og
Rannsóknarsjóði HÍ.
– Munt þú hætta störfum nú um
sjötugt, Sigurður?
„Nei, ég verð áfram í hálfu starfi.
Mér hefur alltaf fundist það vægast
sagt svolítið gróflega klippt og skor-
ið, að fólk hætti skyndilega öllu sem
það hefur verið að vinna við, kannski
í áratugi, vegna eins afmælisdags. Á
mínum starfsferli hef ég sinnt al-
mennri umönnun sjúklinga, marg-
víslegri kennslu og stjórnsýslu á
heilbrigðissviði og mér finnst ég enn
eiga ýmsu ólokið og ýmsu að miðla
nemendum. Þegar ég lít um öxl þyk-
ir mér vænt um að hafa fengið tæki-
færi til að koma að þessum ólíku
sviðum heilbrigðisþjónustunnar.“
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 16.5. 1970 Sig-
ríði Snæbjörnsdóttur, f. 4.6. 1948, fv.
framkvæmdastjóra Klínikurinnar í
Ármúla. Hún er dóttir Snæbjörns
Jónassonar, f. 18.12. 1921, d. 16.7.
1999, vegamálastjóra, og k.h., Bryn-
dísar Jónsdóttur, f. 7.9. 1925, hús-
móður.
Börn Sigurðar og Sigríðar eru: 1)
Bryndís, f. 7.10. 1970, smitsjúkdóma-
læknir við LSH, búsett í Reykjavík, í
sambúð með Jóni Gunnari Tynes,
viðskiptafræðingi hjá Bílanausti, en
börn hennar eru Hjalti Gunnlaugur,
f. 1994; nemi í klínískri taugasálfræði
í Hollandi, Guðmundur Ingvi, f. 2003,
og Halldóra Hörn, f. 2007; 2) Kristín,
f. 30.7. 1972, rekstrarfræðingur í
Bandaríkjunum en maður hennar er
Scott Bricco vélfræðingur og eru
börn þeirra Emma Katrín, f. 2003,
og Amanda Sigríður, f. 2007. og 3)
Guðmundur Ingvi, f. 2.11. 1977, hrl. í
Reykjavík, en kona hans er Magda-
lena Sigurðardóttur viðskiptafræð-
ingur og eru börn þeirra Sigurður
Atli, f. 2004, Thelma Guðrún, f. 2007,
og Benedikt Kári, f. 2013.
Systkini Sigurðar eru Þórður
Ingvi, f. 6.9. 1954, sendifulltrúi í
Reykjavík, og Þórunn, f. 9.7. 1957,
hrl. í Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar eru Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson, f. 16.6.
1922, d. 21.2. 2011, hrl. í Reykjavík,
og k.h., Kristín Þorbjarnardóttir, f.
4.6. 1923, d. 23.12. 2008, húsmóðir.
Sigurður
Guðmundsson
Arndís Pétursdóttir Eggerz
húsfr. í Vatnsfirði,
systurdóttir Ragnheiðar,
langömmu Ástu, ömmu
Davíðs Oddssonar
Morgunblaðsritstj.
Páll Ólafsson
prófastur og alþm. í Vatnsfirði, systur-
sonur Stefáns Stephensen amtmanns,
af Stephensenum og ætt Jóns eldklerks
Guðrún Pálsdóttir
húsfr. á Bíldudal
Þorbjörn Þórðarson
héraðslæknir á Bíldudal
Kristín Þorbjarnardóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. á Neðra-Hálsi
Þórður Guðmundsson
hreppstj. og dannebrogsm. á Neðra-Hálsi í Kjós
Halldóra Ólafsdóttir
geðlæknir í Rvík
Sigurður
Örlygsson
myndlistar-
maður í Rvík
Þórður Ingvi Guðmunds-
son sendiráðunautur
Þórunn Guðmundsdóttir
hrl. í Rvík
Jón Oddsson tómt-
húsm. íMýrarholti í Rvík
Þórður
Þórðarson
lögfr. í Rvík
Guðrún
Ágústsdóttir
fv. forseti
borgarstjórnar
Bjarni Jónsson vígslu-
biskup og dómkirkjupr.
Ólafur Sigurðsson
yfirlæknir á Akureyri
Örlygur Sigurðsson listmál-
ari og rithöfundur í Rvík
Þórður Þ. Þor-
bjarnarson
borgarverkfr.
Þorbjörn Broddason pró-
fessor emeritus við HÍ
Broddi Broddason
varafréttastjóri á RÚV
Ólafur Ólafsson pr. í Saurbæjarþingum
Ágúst
Bjarna-
son skrif-
stofustj. í
Rvík
Þórður Þor-
bjarnarson dr. í
lífefnafr. í Rvík
Guðrún Þor-
bjarnardóttir
húsfr. í Rvík
Steingrímur Sigurðsson
listmálari
Þórunn Ólafsdóttir
húsfr. í Kálfholti, fráMýrarhúsum, systurdóttir
Þórðar, afa Kristjáns Albertssonar rithöfundar
Ólafur Finnsson
pr. í Kálfholti, systursonur
Hans, langafa Ögmundar
Jónassonar fv. ráðh., af Steph-
ensenum og Presta-Högna ætt
Halldóra Ólafsdóttir
húsfr. á Akureyri
Sigurður Guðmundsson
skólameistariMA
Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfr. íMjóadal
Guðmundur Erlendsson
b. áÆsustöðum, bróðursonur Jóns, afa Jóns á Akri, Jóns Leifs, Jóns
Kaldal ljósmyndara og Jóns, alþm. í Stóradal, af Skeggstaðaætt
Úr frændgarði Sigurðar Guðmundssonar
Guðmundur Ingvi Sigurðsson
hrl. í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Guðmundur Magnússon fædd-ist í Holti í Ásum í Torfalækj-arhreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu 25.9. 1863. Hann var
sonur Magnúsar Péturssonar, bónda
í Holti, og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur húsfreyju.
Systir Guðmundar var Margrét á
Gilsstöðum, móðir Friðriks Björns-
sonar, háls-, nef- og eyrnalæknis.
Eiginkona Guðmundar var Katrín
Sigríður, dóttir Skúla Sigurðar Þor-
valdssonar Sívertsen, óðalsbónda í
Hrappsey á Breiðafirði, og Hlífar
Jónsdóttur Sívertsen húsfreyju.
Guðmundur lauk stúdentsprófi frá
Lærða skólanum 1883, læknisfræði-
prófi við Hafnarháskóla 1890, var
kandídat í Kaupmannahöfn og í
framhaldsnámi í Berlín og Edinborg.
Guðmundur var fyrst héraðs-
læknir með aðsetur á Sauðárkróki,
var skipaður kennari við Læknaskól-
ann 1894, var skipaður prófessor við
læknadeild Háskóla Íslands við
stofnun hans 1911 og kenndi þar alla
tíð handlæknisfræði og auk þess
lengi almenna sjúkdómafræði og líf-
eðlisfræði. Hann var rektor Háskóla
Íslands 1912-13.
Fjölgun íslenskra lækna og verk-
fræðinga var ein helsta forsenda al-
mennra framfara í lok nítjándu aldar
og í upphafi þeirrar tuttugustu. Á
þessum árum fóru þrír Guðmundar,
allir Húnvetningar, fyrir hinni ungu
en vaxandi læknastétt hér á landi,
þeir Guðmundur Björnsson land-
læknir, Guðmundur Hannesson, pró-
fessor og háskólarektor, og Guð-
mundur Magnússon prófessor.
Brautryðjendastarf þeirra í heil-
brigðismálum verður seint fullmetið
enda voru þeir dáðir af alþýðu
manna.
Guðmundur var formaður Lækna-
félags Reykjavíkur, sat í stjórn
Læknafélags Íslands, sat í nefnd um
varnir gegn berklum, sat í stjórn
Hins íslenska náttúrufræðifélags, var
félagi í Vísindafélagi Íslendinga og
heiðursfélagi í Dansk Medicinsk Sel-
skab.
Guðmundur lést 23.11. 1924.
Merkir Íslendingar
Guðmundur
Magnússon
95 ára
Lilja G. Pálsdóttir
90 ára
Guðlaug Pétursdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Magnús Guðmundsson
María Rósinkarsdóttir
85 ára
Katrín Gunnarsdóttir
Ólafur Árni Benediktsson
80 ára
Bjarni Kristinsson
Bragi Óskarsson
Guðrún Klara Daníels
Gunnhildur Schram
Kristín Haraldsdóttir
Þórir Jónsson
75 ára
Guðbjörg J. Sigurðardóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Kristjana Ingvarsdóttir
Sigríður R. Sigurðardóttir
Sigurbjörg K. Magnúsdóttir
70 ára
Erla María Eggertsdóttir
Jón H. Magnússon
Kristbjörg Ólafsdóttir
Leó Þorsteinsson
Oddný Ólafsdóttir
Ragnar R. Jóhannesson
Ragnheiður G. Gestsdóttir
Rúna Jónsdóttir
Sigmar Magnússon
Sigurbjörg Kristinsdóttir
60 ára
Brynja G. Guðmundsdóttir
Chung T. Augustine Kong
Guðbjörg M. Hákonardóttir
Halldór K. Jóhannesson
Ingibjörg Þórdís Þórisdóttir
Jóhanna K. Sigtryggsdóttir
Kristín H. Guðmannsdóttir
Kristrún Ólafía Tómasdóttir
María Anna Vigfúsdóttir
Páll Theódórs
Sigríður Magnúsdóttir
Sigríður Ósk Jónasdóttir
Sveinbjörn Rúnar Emilsson
Theodór Már Sigurjónsson
50 ára
Andrea M. Gunnarsdóttir
Arndís Björk Ásgeirsdóttir
Eygló Linda Hallgrímsdóttir
Gunnar Valgeirsson
Helgi Örn Guðmundsson
Hjalti Sveinn Einarsson
Hlynur Hallsson
Inger Rigmor Rossen
Jónas Vignir Grétarsson
Kenneth William Frederick
Linda Björk Bjarnadóttir
Sigurður Hannesson
Sigurlaug Sigurðardóttir
Steinn Jóhannsson
Steinunn Óskarsdóttir
Sunan Toplod
Valtýr Þórisson
Þorlákur G. Halldórsson
Örn Svavarsson
40 ára
Anna Sólveig Smáradóttir
Berglind Björg Harðardóttir
Helgi Gunnlaugsson
Kristján Garðar Arnarson
30 ára
Alfreð Þeyr Magnússon
Hjördís Hólm Harðardóttir
Hrafnkatla Visser
Ingeborg J. Klarenberg
Jónas B. Þorsteinsson
Konráð Þorleifsson
Kristjana K. Ragnarsdóttir
Lilja Dögg Guðnadóttir
Linda Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Soffía ólst upp í
Reykjavík, býr í Hafnar-
firði og er í fæðingarorlofi
um þessar mundir.
Maki: Einar Gíslason, f.
1982, húsasmiður.
Börn: Magnea Ein-
arsdóttir, f 2003 (stjúp-
dóttir) Garðar Einarsson,
f. 2014, og Saga Karitas
Einarsdóttir, f. 2018.
Foreldrar: Gunnhildur
Friðþjófsdóttir, f. 1961, og
Kári Elíasson, f. 1961,
Soffía Tinna
Gunnhildard.
30 ára Sindri ólst upp á
Siglufirði, býr þar, lauk
sveinsprófi í múrverki og
rekur, ásamt öðrum, fyr-
irtækið Sjö verktaka.
Maki: Ásdís Eva Sigurð-
ardóttir, f. 1992, leikskóla-
kennari.
Börn: Þórdís Arna, f.
2013, og óskírður, f. 2018.
Foreldrar: Ólafur Magn-
ússon, f. 1962, og Arna
Arnarsdóttir, f. 1967. Þau
búa í Reykjanesbæ.
Sindri
Ólafsson
30 ára Ragna Lind býr í
Kópavogi, lauk BSc-prófi í
viðskiptafræði frá HR, er
að ljúka MAcc-prófi í end-
urskoðun og starfar hjá
Deloitte.
Maki: Bjarni Þór Schev-
ing, f. 1982, hótelstjóri.
Börn: Patrekur Smári, f.
2005, og Elmar Thor, f.
2015.
Foreldrar: Magnea Rögn-
valdsdóttir, f. 1964, og
Bjarni G. Gylfason, f.
1962.
Ragna Lind
Bjarnadóttir
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Höfuðlausnir
Voss-Helme hjálmar og hjálmhúfur
Þýsk gæðavara framleidd í samræmi við
EN 397 og EN 812.
Til í öllum regnbogans litum.
Allir koma þeir með 6-punkta höfuðneti, með svitabandi og
stillihnapp til að tryggja örugga setu á höfði.
Hægt að fá með eða án hökubands.
Vertu klár í kollinum