Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 29

Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. Umburðarlyndi þitt hefur aukist og þú finnur velvild í garð samferðamanna þinna. 20. apríl - 20. maí  Naut Gefðu voninni byr undir báða vængi og láttu ekkert aftra þér frá því að láta drauma þína rætast. Þú getur komið ýmsu í verk ef þú bara hefur áhuga á því. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur raunhæfar hugmyndir um það hvernig þú getur gert umhverfi þitt meira aðlaðandi. Haltu ótrauð/ur áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni á ólíklegustu stöðum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér hentar best að vinna einn í dag enda eru litlar líkur á að þú hljótir þá við- urkenningu sem þú átt skilið fyrir vinnusemi þína. Láttu því þínar eigin þarfir hafa forgang. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Heppnin verður þér hliðholl í dag í sam- skiptum við aðra. Taktu þátt í glensi og gamni og láttu gamminn geisa við vini og fé- laga, nú er ekki rétti tíminn til þess að draga sig í hlé. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver öfund gæti komið upp í mann- legum samskiptum svo þú mátt gæta þess að bregðast ekki of harkalega við. Líttu á þetta sem tækifæri til að sýna góðvild þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú vekur athygli umhverfisins í dag, þótt þú sért ekki sérstaklega að reyna það. Aðrir ættu að fara að fordæmi þínu því þú ert bæði hagsýn/n og útsjónarsöm/samur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er eitthvað að vefjast fyrir þér, en þú átt erfitt með að fá á hreint hvað það er. Láttu ekki smáatriðin vefjast fyrir þér og sýndu hugrekki því enginn er fullkominn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut- unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að skila vel unnu verki. Gerðu þér því far um að kynna þér málin áður en þú tekur afstöðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þig langar til að brjótast út úr viðj- um vanans. Það er kraftur í þér í dag og þú vilt skipuleggja þig betur. Haltu því utan um alla hluti bæði í starfi sem heima fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Leyfðu öðrum að kynnast kostum þínum í ró og næði. Taktu þér tíma því að flas er ekki til fagnaðar. Fólk er ekki upp til hópa neikvætt eða þröngsýnt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt fá góða hugmynd um hvern- ig hægt sé að bæta ákveðna hluti á vinnu- staðnum. Að breyta bara einum sið kostar mikinn aga og honum býrðu yfir nú. Sigrún Haraldsdóttir orti „Haust-kul“ á Leir á fimmtudag: Haustkulið hefur blæju lagt á brúnir efstar strokið hönd um starengjar í kvöldstilltu húmi heyri ég daufan hófadyn veit þar fer Vetur á vængskjóttum hesti með vindstrokið fax sem frýsar og blæs og bryður mél „Líður að hausti,“ sagði Ólafur Stefánsson: Ég treini mér haustið tek því í smáum skömmtum, teyga svalann kominn til mín af fjöllum. Enn er birta, slikja á bölum og hjöllum. Bíða í ofvæni dauða síns stargresi’ og blóm. Kólna mun betur er kemur nær aðventu og jólum Þá kalmyrkrið ríkir og élhryðjan slettir í góm. Ingólfur Ómar bætir við: Sól á fætur silast sveipar daufum geislum grundir mel og mó. Foldargróður fölnar falla lauf af trjánum, fölvi þekur skóg. Lyng og lautir roðna, lindin tæra niðar lágt við mosató. Klökkvir svanir kveða kul í sefi þýtur. Kyrr er haustsins ró. Á sunnudag slóst Pétur Stef- ánsson í hópinn: Gerast veðrin heldur hörð, haustið brýnir róminn. Grána heiðar, balar, börð, bliknar sumarljóminn. Fennt hefur í fjöll og skörð, frostið sannar dóminn. Hema pollar, hrímgast jörð, höfði lúta blómin. Og að síðustu Davíð Hjálmar Haraldsson: Fundvís á holu og fylgsni við stein Frosti að hagamús kreppir. Okkurgult laufblað á ísaðri grein uppgefið takinu sleppir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hausthljóð í skáldum og hagyrðingum „ÞETTA ER HLIÐARSALATIÐ. ERTU VISS UM AÐ ÞÚ VILJIR SESAR?“ „ÉG HEF KYNNT MÉR MÁL ÞITT OG TEL AÐ BESTI KOSTUR ÞINN SÉ JARÐGÖNG.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa svo margt til að þakka fyrir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER ERFITT AÐ FYLGJAST MEÐ ÖLLUM ÞESSUM TÆKNIFRAMFÖRUM ÉG SKAL HJÁLPA ÞÉR, JÓN ÞETTA ER BLÝANTUR MÁ ÉG BJÓÐA ÞÉR UPP Á DRYKK? NEI! HÚN VIRÐIST VERA Í BINDINDI! Sú var tíð að myndatökur voruhálfheilög stund. Gæta þurfi að hverjum ramma enda voru bara ríf- lega 20 myndir á hverri filmu og jafn- vel kubbur ofan á vélinni sem fara þurfti sparlega með. Fólk stillti sér því upp og augnablikið var fest á filmu. x x x Enda þótt ákveðinn sjarmi hafi ver-ið yfir þessu, því að láta fram- kalla myndirnar og skoða þær á pappír, er sennilegast ekki hægt að kvarta mikið yfir því að símar þjóni þessu hlutverki í dag. x x x Lífið gengur að minnsta kosti sinnvanagang og fólk tekur myndir sem aldrei fyrr. Það sá Víkverji sem brá undir sig betri fætinum fyrir skemmstu og sótti heim höfuðborg þeirra í Katalóníu. x x x Ferðamennskan í stórborg semBarcelona er slík að auðvelt er að láta bugast í mannhafinu. Ef farið er á fjölförnustu staðina verður ekki þverfótað fyrir fólki sem er að taka af sér sjálfsmyndir. Margir eru með selfie-prikin, sumir með vél á þrífæti og enn aðrir láta samferðamenn sína um myndatökurnar. x x x Inni á einum ferðamannastaðnumhorfði Víkverji upp á unga stúlku eyða svona fimmtán mínútum í að ná „réttu“ myndinni af sér. Aumingja kærastinn varð að sitja undir skömmum og leiðbeiningum þar til hann náði loks skotinu sem boðlegt var inn á samfélagsmiðlana. Þessi unga stúlka virtist ekkert vera að spá í að njóta þess sem staðurinn hafði upp á að bjóða, allt snerist um mynd- ina einu. x x x En líklegast er þetta eitthvað semVíkverji verður bara að sætta sig við. Tímans þungi niður verður ekki stöðvaður. Á dögunum var það til að mynda auglýst að Einar Bárðarson ætlaði að halda tónleika til að fagna 20 ára höfundarafmæli sínu. Það þýðir að lagið Farin með Skítamóral hefur hljómað á öldum ljósvakans í tvo áratugi. 20 ár! vikverji@mbl.is Víkverji Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði, fögnum og verum glaðir á honum. Sálmarnir 118.24 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.