Morgunblaðið - 01.10.2018, Page 1

Morgunblaðið - 01.10.2018, Page 1
M Á N U D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  230. tölublað  106. árgangur  SAFNAÐI SAM- AN BÆNUM ÚR HANDRITUM VALUR ÍSLANDSMEISTARI FERILLINN SPANNAR UM FIMM ÁRATUGI ÍÞRÓTTIR KIM LARSEN ALLUR 11SVAVAR SIGMUNDSSON 26 Marriott Edition-hótelið í miðborginni verður nú smátt og smátt til á hafnarbakkanum við hlið Hörpu. Ofan á steyptan kjallara verður byggður sjö hæða hótelturn, en þar verða um 250 hótel- herbergi. Byggingin breytir talsvert landslaginu við Reykjavíkurhöfn, en það gerir einnig hið nýja Hafnartorg sem lengra er komið í byggingu og sjá má hægra megin við Arnarhól. Þar hafa íbúðir nú verið settar á sölu. Morgunblaðið/Eggert Ásýnd miðborgarinnar breytist smám saman Marriott Edition-hótel rís við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu Talið er að dauðsföll í Indónesíu eftir jarðskjálftann sem reið yfir á föstu- daginn muni fara yfir þúsund manns. Jarðskjálftinn var 7,5 að stærð og í gær voru yfir 830 taldir af en flóðbylgja í kjölfar jarðskjálftans lenti á borginni Palu á eyjunni Sula- wesi, þar sem 350.000 manns búa. Alvarlegt ástand er á eyjunni þar sem fjarskipti eru slæm, vegir illa farnir og samgöngur torveldar. Lítið er um þungar vinnuvélar til að eiga við rústirnar. Þá hafa eftirlifandi borgarar þurft að gista undir berum himni síðustu þrjár nætur. Illa geng- ur að koma nauðsynjavörum til eyj- unnar en hafnir eru stórskemmdar. Íbúar í Palu hafa rænt verslanir til að komast í mat og vatn en lögreglan hefur ekki burði til þess að taka á slíkum ránum. Heyra hróp undir rústunum Yfirvöld í landinu telja að 80 her- bergja hótelið Roa Roa hafi verið fullt þegar það hrundi í kjölfar jarð- skjálftans. Talsmaður almannavarna í Indónesíu, Sutopo Purwo Nugroho, segir í samtali við AFP að talið sé að 50 til 60 manns séu fastir undir rúst- unum og á lífi. Að sögn viðstaddra heyrast köll og barnsgrátur í rúst- unum. »15 Ófremdar- ástand í Indónesíu  Yfir 830 látnir eftir jarðskjálfta á föstudag AFP Lík Hinir látnu liggja úti meðan beð- ið er eftir að borin séu kennsl á þá. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er erfiðara að slökkva eld í rafbílum heldur en öðrum bílum,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins. Ástæða þess felst í rafhlöðum og byggingu bílsins. Hætta er á að eldur í rafbíl blossi upp aftur og aftur og slökkvistarf- ið tekur lengri tíma því það getur verið erfitt að komast að eldsupp- tökunum. „Það þarf alveg nýja aðferð og verklag. Við höfum verið að þjálfa okkar fólk og er verið að horfa á til dæmis að setja viðkomandi bíl inn í eldvarnarteppi, svipað og þegar er verið að slökkva eld í potti,“ sagði Jón Viðar. Við elds- voða í rafbílum þarf og einnig að afstýra því að slökkviliðsmenn fái rafstuð. Norðmenn eru komnir lengra í þessu en við og hafa ís- lenskir slökkviliðsmenn fengið að njóta reynslu þeirra. „Við höfum ekki lent í neinu svona óhappi hér á landi, þrátt fyrir fjölgun rafbíla,“ sagði Jón Viðar. Hann sagði að tíðni elds- voða í rafbílum væri ekki há. Drifrafhlöður eru ekki enn inni í kerfinu hjá Úrvinnslusjóði. Inn- flytjendur bíla hafa borgað fyrir endurvinnslu rafhlaða úr tjónabíl- um, kostnaðurinn nemur 200-300 þúsund krónum á bíl. Úrvinnslu- gjald fyrir drifrafhlöður er í skoð- un. Morgunblaðið/Ófeigur Rafbílar Nýja aðferð og verklag þarf til að slökkva eld í rafbílum. Eldur í rafbílum reyn- ist erfiður viðureignar  Beita þarf nýjum aðferðum við slökkvistarf  Innflytj- endur hafa borgað endurvinnslugjald, 200-300 þúsund á bíl MDýrt að senda ... »16  Búðahnupl á sjálfsafgreiðslu- kössum í Bret- landi er útbreitt að sögn Emmel- ine Taylor, af- brotafræðings og yfirmanns rannnsókna við samfélags- fræðideild City, University of London. Í könnun sagðist fimmtungur fólks stela reglulega í sjálfsafgreiðslu, að jafn- aði fyrir 15 pund á mánuði. Á árs- vísu gæti tjónið fyrir breskar versl- anir numið allt að 1,6 milljörðum punda. Öryggismiðstöðin stóð fyrir ráð- stefnu á fimmtudag þar sem þessi mál voru rædd, en hér á landi hafa sjálfsafgreiðslukassar verið að ryðja sér til rúms. »14 Mikið um þjófnað í sjálfsafgreiðslu Emmeline Taylor  Sala á nýjum bílum í september dróst saman um 23,7% borið sam- an við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bíl- greinasambandinu en þar segir einnig að 935 fólksbílar hafi ver- ið nýskráðir í mánuðinum. Sú tala var 1.266 í september í fyrra. Ef horft er á tímabilið frá ára- mótum hefur bílasala dregist saman um 12,6% miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir rafmagnsbílum aukist en skráningar á rafsmagnsbílum hafa aukist um 34% yfir árið og á tengiltvinnbílum hafa skráningar aukist um 29%. Bílgreinasambandið telur helstu ástæðu fyrir samdrætti í bílasölu vera mikla óvissu sem var í ákvörðun stjórnvalda varð- andi vörugjöld á bíla í byrjun sumars og segja að bílaumboð hafi fundið fyrir minnkun sér- pantana. Sú afleiðing sé nú að koma fram þegar horft er til skráðra ökutækja í september. Samdráttur í bíla- sölu í september

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.