Morgunblaðið - 01.10.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
Orkuveita Reykjavíkur hefur rat-að mjög í fréttir að undanförnu
af heldur óskemmtilegu tilefni. Þar
eru ekki öll kurl komin til grafar, til
dæmis um hver vissi hvað og hve-
nær, þannig að málinu er fjarri því
lokið.
Annað málsem snýr
að þessu opin-
bera fyrirtæki
hefur vakið
minni athygli
þó að frá því hafi verið sagt í frétt-
um, meðal annars í þessu blaði.
Orkuveitan á dótturfyrirtækiðGagnaveitu Reykjavíkur sem
leggur ljósleiðara af miklu kappi í
samkeppni við einkaaðila.
Síminn á til dæmis Mílu semkeppir við Gagnaveituna, en
Míla er bundin eðlilegum takmörk-
unum sem einkafyrirtæki búa jafn-
an við á því hvað hún getur ráðist í
miklar fjárfestingar.
Gagnaveitan virðist á hinn bóg-inn ekki búa við neinar hefð-
bundnar takmarkanir. Um daginn
var til dæmis sagt frá því að fyrir-
tækið hefði í fyrra fjárfest fyrir
150% af tekjum ársins! Og skuld-
irnar eru miklu hærri en einkafyrir-
tæki gæti staðið undir, en Gagna-
veitan skákar í skjóli Orku-
veitunnar og safnar skuldum
óhindrað.
Og þetta er ekkert nýtt. Gagna-veitan hefur stundað þetta í
tvo áratugi og fjárfest á því tímabili
fyrir um 30 milljarða króna, þrátt
fyrir að hafa aldrei skilað jákvæðu
fjárstreymi af starfseminni.
Ætli það geti nokkuð verið aðþetta komi óbeint fram á
orkureikningi borgarbúa?
Djúpir vasar
borgarbúa
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Íslenski hópurinn sem keppti á Euro-
Skills, Evrópumóti iðn- og verk-
greina, hlaut á dögunum ein silfur-
verðlaun og þrjár viðurkenningar
fyrir framúrskarandi árangur (e. me-
dal of excellence) fyrir frammistöðu á
mótinu. Keppnin fór að þessu sinni
fram í Búdapest í Ungverjalandi og
var keppt í 48 greinum. Átta íslenskir
keppendur tóku þátt, m.a. í bakstri,
trésmíði og framreiðslu.
Ásbjörn Eðvaldsson keppti í raf-
eindavirkjun og hlaut 710 stig, sem
skilaði honum silfurverðlaunum í
greininni.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Georg Páll Skúlason, formaður Verk-
iðnar, verðlaunin hafa komið nokkuð
á óvart en þegar Morgunblaðið náði
af honum tali var hann ásamt íslenska
liðinu að bíða eftir flugi heim á flug-
vellinum í Búdapest.
„Það er alveg hægt að segja að það
hafi verið óvænt. Ísland hefur aldrei
náð á verðlaunapall áður á þessum
vettvangi. Þetta var auðvitað afskap-
lega gleðilegt og við í hópnum erum
að springa úr stolti yfir árangrinum
hjá Ásbirni,“ sagði Georg.
Hann segir það einnig vera mikið
afrek að fá áðurnefndar viðurkenn-
ingar fyrir framúrskarandi árangur,
en þær hljóta þeir sem komast ekki á
verðlaunapall en ná 700 eða fleiri stig-
um í keppninni. Eins og áður segir
fengu þrír Íslendingar slíka viður-
kenningu, Haraldur Örn prentsmið-
ur, Jón Þór Einarsson rafvirki og
Kristinn Gísli Jónsson matreiðslu-
maður. Aðrir íslenskir keppendur
voru Finnur Ingi Harrýsson sem
keppti í málmsuðu, Sigurður Borgar
Ólafsson sem keppti í framreiðslu,
Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir bak-
ari og Þröstur Kárason trésmiður.
Íslendingur með
silfur á EuroSkills
Átta Íslendingar kepptu á mótinu
Ljósmynd/Aðsend
Verðlaunaður Ásbjörn tekur við
silfurverðlaunum í Búdapest.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Vel gekk í stærstu stóðrétt á Ís-
landi sem fór fram um helgina í
Laufskálarétt í Hjaltadal í
Skagafirði. Fjöldi fólks sótti rétt-
irnar í ár en þó færri en á árum
áður að sögn fréttaritara Morg-
unblaðsins, sem hefur mætt
reglulega í réttirnar. Líklegast
væri veðri þar um að kenna, en
réttað var í súld og skúraveðri.
Réttarstörfin gengu vel venju
samkvæmt enda voru þátttak-
endur vel reyndir í réttarstörf-
um.
Ýmislegt gekk á í kringum
réttirnar og byrjaði dagskráin á
föstudagskvöld með stórsýningu
og skagfirskri gleði í reiðhöllinni
Svaðastöðum. Meðal viðburða þar
var skeiðkeppni þar sem keppt
var í skeiði með venjulegu sniði
og voru vegleg verðlaun í boði. Á
laugardagsmorgun var síðan rétt-
að með tilheyrandi söng og gleði
en stóðið var rekið úr Kolbeins-
dal og í Laufskálarétt um hádeg-
isbil. Að réttarstörfunum loknum
hófust hátíðarhöld víða. Á laugar-
dagskvöld fór síðan fram Lauf-
skálaréttarball í Reiðhöllinni
Svaðastöðum þar sem Stuðla-
bandið og Jónsi í Í svörtum föt-
um skemmtu lýðnum.
Vel gekk í skúraveðri í Laufskálarétt
Fjölmargir sækja réttirnar á ári hverju Viðamikil dagskrá kringum réttirnar
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Réttir Vel gekk í Laufskálarétt.