Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018 Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS Ég var í afmælisferð í Sitges ásamt vinkonum mínum og fór það-an beint á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og er nýkominheim þaðan. Ætli ég taki því ekki rólega heima í faðmi fjöl- skyldunnar,“ segir María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, en hún á 40 ára afmæli í dag. Þetta er í níunda skiptið sem hún situr allsherjarþingið. „Mér finnst alltaf jafn gaman að sækja allsherjarþingið. Sameinuðu þjóðirnar eru eins og heimsþorp í þessari viku þegar leiðtogarnir koma saman. Ætli það sé ekki eftirminnilegast þegar Heimsmarkmiðin voru samþykkt eftir langar og strangar samningaviðræður.“ María hefur séð ýmsa þjóðarleiðtoga halda ræður á þinginu, Gaddafí, Ahmadinejad, Pútín, Obama, Trump og Theresu May, meðal annarra. María Mjöll var sjálf í fastanefndinni í New York frá 2007 til 2015, en hún hóf störf í utanríkisráðuneytinu 2001 og hefur unnið þar allan sinn starfsferil. Hún er með BA próf í spænsku og stjórnmálafræði og meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá Columbia-háskóla. „Starfið er afar fjölbreytt og vinnustaðurinn mjög skemmtilegur,“ segir María Mjöll sem stýrir upplýsinga- og greiningardeild utanríkis- ráðuneytisins. „Við sinnum bæði ytri og innri upplýsingamiðlun og fáumst því að einhverju leyti við flest þau málefni sem tilheyra ráðu- neytinu í samstarfi við okkar frábæra fólk.“ Eiginmaður Maríu Mjallar er Brynjólfur Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Íslandssjóðum. Synir þeirra eru Stefán Borgar, 11 ára, Jón Steinar, 8 ára, og Sigurður Hilmar sem er 7 ára. Á Ítalíu Fjölskyldan á ferðalagi í sumar og er þarna stödd í þorpinu Locorotondo í Puglia-héraði. Fjölskyldufaðirinn tók myndina. Nýkomin heim frá allsherjarþinginu María Mjöll Jónsdóttir er fertug í dag J órunn fæddist á sjúkrahús- inu í Stykkishólmi 1.10. 1968 og átti m.a. heima í Grundarfirði fyrstu árin og síðar í Kópavogi og í Reykjavík. Hún var í Kársnesskóla, Hólabrekkuskóla og Álftamýr- arskóla og lauk stúdentsprófi frá MS 1988. Jórunn æfði íþróttir af kappi, svo sem knattspyrnu og handbolta. Hún var sumardvöl á Jaðri, í sveit í Miðdal, ásamt Frímanni, bróður sínum, sumarlangt á Hornafirði og Hoffelli við barnagæslu og vann alltaf með skóla, gætti barna, bar út blöð og þreif á verkstæði for- eldra sinna. Á menntaskólaárunum sinnti hún þjónustustörfum og þrifum: „Sum- arið 1986 bjó ég hjá ömmu á Siglu- firði, vann hjá Þormóði ramma og lék fótbolta. Það var gott sumar.“ Jórunn stundaði nám í hjúkr- unarfræði við HÍ, lauk BSc-prófi 1993, MPA-prófi í opinberri stjórn- sýslu frá HÍ 2015 og öðlaðist skip- stjórnarréttindi á strandveiðibát, undir 24 metrum, árið 2017. Jórunn sinnti hjúkrun á geðdeild- um Landspítalans, á hjúkrunar- heimilum og heilsugæslustöðvum 1993-94, sá um rekstur hjúkrunar- deildar Rekstrarvara hf. 1994-97, var hjúkrunarfræðingur hjá Nord- sjællands Vikar Service í Dan- mörku 1998-99, markaðsstjóri hjá Austurbakka hf. - skurðstofu og svæfingarvörur 1999-2002, ritstýrði og starfrækti vefsíðuna Doktor.is 2002-2006 og starfaði jafnframt við Sóltún hjúkrunarheimili. Jórunn var varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 2002-2006 og borgarfulltrúi 2006-2010, var for- maður velferðarráðs Reykjavíkur 2006-2010, fulltrúi Reykjavík- urborgar í Launanefnd sveitarfé- laga 2006-2010, formaður stjórnar Strætó bs. 2008-2010, fulltrúi í vel- ferðarráði, skipulagsráði, inn- kauparáði og hverfaráði Reykjavík- urborgar 2010-2012. Ertu mjög pólitísk Jórunn? „Erum við ekki flest pólitísk í þeim skilningi að við viljum láta gott af okkur leiða. Ég hef alltaf haft áhuga á heilbrigðismálum og sem borgarfulltrúi leiddi ég til lykta sameiningu heimahjúkrunar og heimaþjónustu í Reykjavík, vann að breytingum á félagslega leiguíbúða- kerfinu, að stefnumótun í málefnum utangarðsfólks, vann að flutningi á málefnum fatlaðra frá ríki til borg- ar og að stefnumótun í málefnum aldraðra til lengri tíma, einkum Jórunn Ó. Frímannsdóttir, forstöðum. á Droplaugarstöðum – 50 ára Fjölskyldan Jórunn og Hörður á brúðkaupsdegi sínum, 20. júní 2014, ásamt börnum Jórunnar og syni Harðar. Með fjölþætta reynslu af heilbrigðismálum Gönguflugurnar Íþrótta- og útivistarkonan með gönguhópnum sínum. Vinkonurnar Katrín Embla og Kristín Vala héldu tom- bólu til styrktar Rauða krossinum. Söfnunin fór fram við Iceland í Setbergi og söfnuðust alls 4.790 kr. og 5 dollarar. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.