Morgunblaðið - 01.10.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Flest virðist ganga þér í haginn en
gættu þess að ganga ekki á rétt annarra því þá
getur margt farið úrskeiðis. Láttu ekkert aftra
þér frá því að vera sá gleðigjafi sem þú ert.
20. apríl - 20. maí
Naut Samskipti þín við annað fólk eru mjög
góð í dag því þú ert til í að setja sjálfa/n þig í
annað sæti. Þú ert friðsæl/l og í góðu jafnvægi
og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver ótti steðjar að þér í sam-
bandi við það að þú náir ekki takmarki þínu.
Reyndu að sjá hlutina í réttu ljósi áður en þú
lætur til skarar skríða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það mun reyna verulega á hæfni þína á
næstunni og þú mátt búa þig undir að sum
verka þinna verði fyrir óvæginni gagnrýni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur í mörgu að snúast og skalt fá
fólk í lið með þér til að leggja hönd á plóg því
þá gengur allt eins og í sögu. Það freistar þín
mjög að reyna eitthvað nýtt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sýndu öðrum þolinmæði og sér-
staklega börnunum sem eiga stundum bágt
með að átta sig á því hvað fullorðna fólkið er
að fara. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru
sálar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur verið of upptekin/n að und-
anförnu og ekki veitt athygli þeim sem næst
þér standa. Þú mátt ekki láta söknuðinn draga
þig niður, þótt vík sé á milli vina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Finnist þér þú ganga á vegg ætt-
irðu að setjast niður og íhuga þinn gang. Allt
sem maður getur sigrast á í huganum, getur
maður yfirbugað í raunveruleikanum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Forðastu alla árekstra við vinnu-
félaga þína. Sýndu öðrum tillitssemi og um-
burðarlyndi og þú munt fá þá framkomu end-
urgoldna þúsundfalt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum hafa þeir sem greina,
fylgjast með og þróa vinnu þína eitthvað til
málanna að leggja líka. Láttu góðan árangur
ekki stíga þér til höfuðs.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nýjar hugmyndir láta á sér kræla.
Vertu hvergi smeyk/ur því þú hefur alla burði
til að hrinda þeim í framkvæmd. Vertu því vel
undirbúin/n og láttu svo til skarar skríða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú kemur þér að kjarnanum í vinnunni
og gerir þér grein fyrir að hingað til hefur þú
eytt of miklum tíma til einskis. Einhver gerir
þér greiða sem þú kannt mjög vel að meta.
Í Reykjavík myndast að morgni allavirkra daga bílalest sem nær ofan
úr Mosfellsbæ og niður að Miklu-
braut. Sama endurtekur sig aftur
síðdegis. Eigi úthverfisfólk erindi
niður fyrir Ártúnsbrekku ætti það að
forðast ferðir þangað milli klukkan 8
og 9 á morgnana og svo milli klukkan
4 og 5 síðdegis. Hjá því verður þó
stundum ekki komist, til dæmis þeg-
ar fólk er á leiðinni í og úr vinnu, í
skóla og slíkt. Þjóðflutningar þessir
nánast stífla göturnar en umferðin
er þó jafnan aðeins í aðra áttina. Til
vesturs að morgni og austurs að
kvöldi. Borgarlínan er sögð eiga að
leysa úr þessari heljarslóðarorrustu,
en Víkverji hefur þó miklar efasemd-
ir um slíkt. Skynsamlegast væri að
efla atvinnustarfsemi í úthverfum í
austurhluta borgarinnar sem myndi
jafna álagið á götum borgarinnar.
Að flestir stærstu vinnustaðirnir séu
í vesturborginni er tómt rugl.
x x x
Víkverji las í síðustu viku minning-argrein um ungan mann sem
hafði að því er lesa mátti á milli lín-
anna misst trúna á lífið og gefist upp.
Slíkt er átakanlegt í alla staði og
auðvitað má velta svona málum fyrir
sér á ýmsa lund. Nefnt var á dög-
unum að fullveldi Íslands væri lítil
lítils virði ef vanlíðan og sálarmein
herjuðu á fólkið, slíkur væri vandinn.
Þetta er auðvitað hárrétt og mætti
þá líka tiltaka efnahagsmálin, póli-
tíkina og jafnvel veðráttuna. Ef sálin
segir stopp er fólki um megn að
mæta verkefnum daglegs lífs. Grein-
ar um þetta efni sem Guðrún Hálf-
dánardóttir skrifar og hafa birst á
mbl.is síðustu daga sýna beint í sár-
ið. Efling heilbrigðisþjónustu í þessu
skyni er gott mál en að við séum til
staðar hvert fyrir annað og sýnum
skilning þegar eitthvað bjátar á
skiptir þó mestu.
x x x
Haustið hellist yfir og framundaner fullt af áhugaverðum menn-
ingarviðburðum. Sálin heldur
kveðjutónleika í Eldborgarsal
Hörpu síðar í mánuðinum og Vík-
ingur Heiðar verður á sama stað og
spilar píanóverk Johanns Sebastians
Bach. Þetta verður bara skemmti-
legt! vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, athvarf á degi neyð-
arinnar, hann annast þá sem leita
hælis hjá honum
(Nahúm 1.7)
Ólafur Stefánsson birti á Leirsnjalla þýðingu sína á „Heiðar-
jálkinum“ eftir Heinz Erhardt –
með þessari athugasemd: „Ekki al-
veg frír við Jóhann Wolfgang Ama-
deus von Goethe!“
Drengur gráan drösul sá,
drösul úti í heiði.
Hann gamall var með glákusjón,
gigt og annað heilsutjón.
Það lak af honum leiði.
Drösull, drösull, drösull lá
drösull grár í heiði.
Drengur mælti, dýrð finnst mér,
drösull minn í heiði.
Hvergi ský á himni er,
heimurinn er að skemmta sér
– hvað um margur beiði –
Drösull, drösull, dátt er hér,
drösull grár í heiði.
Drösull leit með deyfð í lund
á drenginn þar í heiði:
Mig bóndinn lætur puða’á plóg,
og púla fæ ég meira en nóg,
– pískar mig fram í reiði
Drengur, eg á dapra stund,
og daga hér í heiði.
Friðrik Erlingsson yrkir á Boðn-
armiði:
Sopið hef ég fjörufjöld,
fór þá oft einn saman.
En nú ætla ég á krá í kvöld,
(hef ekki gert það í hálfa öld),
og hafa svolítið gaman.
Gunnar J. Straumland yrkir
skemmtilega og heitir „Dróttkveð-
inn tíminn“:
Morgundaga marga
mundi ég, því stundir
gærdagsins og gárur
geyma morgna heimsins.
Tímann enginn temur
tif hans alla lifir
ljóð þó tímans leiðum
leitast við að breyta.
Magnús Halldórsson hefur orð á
því að nú eigi að leggja fram á þingi
frumvarp þess efnis að dýralæknar
þurfi ekki að tala eða skilja ís-
lensku:
Í framsögn þér förlast mun Skjalda
fram ef að mál þetta gengur.
Og hvers eiga kusur að gjalda,
ef kvartað þær geta ei lengur
Hallmundur Guðmundsson dreg-
ur úr vísnabingnum:
Var dapur í morgun hann Muggur
og maulaði rauðbrúnar tuggur.
Ekk’ átt’ ’ann fé,
og ekkert hans spé
er mænd’ ’ann á mjóslegnar „guggur“.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Heiðarjálkurinn
og kráarganga
„ÞAÐ VAR SKIPT UM HEILA EÐA LÍKAMA
– EFTIR ÞVÍ HVERN ÞÚ SPYRÐ.“ „HANN HEFUR NAGAÐ SIG AFTUR GEGNUM SJÓNVARPSSNÚRUNA!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum vonlaus
málstaður.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ó,
GREEETTIIIR
ÞETTA GETUR EKKI
BOÐAÐ GOTT
HRÓLFUR VERÐUR Í FRÁBÆRU SKAPI Í DAG!
EFTIRLÝSTUR
HRÓLFUR
VERÐLAUN
800
GULLPENINGAR
EFTIRLÝSTUR
ATLI
VERÐLAUN
400
GULLPENINGAR
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum