Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 29
» Hið árlega og vinsælasundlaugarbíó fór fram í Sundhöllinni í Reykjavík um helgina. Þar var fólki í sundfötum svamlandi í vatni boðið upp á að horfa á kvikmynd Luc Besson frá 1997, The Fifth Ele- ment. Myndin sú hefur verið flokkuð sem „Brús Villis sci-fi költ-klassík“ og vakti lukku meðal sund- bíógesta. Kvikmyndinni var varpað upp á tjald í gömlu innilauginni og hin- ir ýmsu gjörningar voru hér og þar í Sundhöllinni til að skapa rétta and- rúmsloftið fyrir þessa sér- stöku mynd. Sundlaugarbíó í Sundhöllinni er fastur liður á RIFF og fjölmenni sótti viðburðinn um helgina Slökun Fólk lét fara vel um sig á meðan það horfði á kvikmyndina The Fifth Element á sundklæðunum ofan í laug. Margir Fjöldi fólks á öllum aldri naut þess að horfa saman á bíó. Gaman Þessum leiddist greinilega ekkert að mæta í bíó í sundlaug. Dulúðleg Þessi stúlka var líkt og úr öðrum heimi þar sem hún sveif um. Ofursvalur Þessi vélræni maður gekk um bakka sundlaugarinnar. Morgunblaðið/Eggert MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018 Brynhildur Oddsdóttir hlaut fyrir helgi Gullnöglina, gítarverðlaun Björns Thoroddsen, fyrir áræðni, kjark og þor í tónlistarsköpun sinni, eins og segir í tilkynningu. Þar segir að með starfi sínu hafi Brynhildur rutt brautina fyrir fjölda stúlkna sem eigi sér nú fyrirmynd, gítarleikara og hljóm- sveitarstjóra sem náð hafi langt og spilað á tónleikum víða um heim. Brynhildur lærði á fiðlu í Nýja tónlistarskólanum og lauk 5. stigi í því námi, auk þess sem hún lærði síðar söng við sama skóla. Fiðlan vék síðar fyrir rafmagnsgítarnum sem hefur verið hennar aðal- hljóðfæri síðan. Árið 2011 lauk Brynhildur námi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og með hljóm- sveit sinni Beebee and the blue- birds hefur hún gefið út tvær breiðskífur þar sem blúsinn er í öndvegi, auk þess sem hún hefur verið öflug þegar kemur að tón- leikahaldi. Gullnöglin var afhent í tengslum við Guitarama, gítarhátíð Björns, sem fram fór í Salnum í Kópavogi föstudagskvöldið 28. september. Ánægð Brynhildur Oddsdóttir og Björn Thoroddsen. Brynhildur Oddsdóttir hlaut Gullnögl Björns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.