Morgunblaðið - 01.10.2018, Side 32
Í tilefni af
fullveldis-
afmæli Ís-
lands gefur
Bókmennta-
borgin
Reykjavík út
tvær ljóðaark-
ir sem fagnað
verður með upplestri í Iðnó í kvöld
kl. 20. Ljóðin voru ort í ritsmiðjum
undir stjórn Fríðu Ísberg, en þær
voru haldnar í Gröndalshúsi í
Reykjavík og á Skriðuklaustri í
Fljótsdal fyrr á árinu. Meðal skálda
sem þátt taka í Mótþróa eru Hertha
Richardt Úlfarsdóttir, Jón Örn
Loðmfjörð, Ragnheiður Harpa
Leifsdóttir og Úlfur Bragi Einars-
son.
Mótþrói í Iðnó í tilefni
fullveldisafmælisins
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Alfreð Finnbogason bauð stuðn-
ingsmönnum Augsburg upp á
magnaða frammistöðu í 4:1-sigri
liðsins á Freiburg í þýsku knatt-
spyrnunni í gær. Framherjinn, sem
var að leika sinn fyrsta leik síðan á
HM í Rússlandi, skoraði þrennu og
hefur hann alls gert þrjár slíkar í
deildinni, sem er ein sú sterkasta í
heimi. »1
Þriðja þrenna Alfreðs
í Þýskalandi á einu ári
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Karlalið Skautafélags Akureyrar er
enn ósigrað í Evrópuleikjum eftir
frumraun sína á þeim vettvangi í
Búlgaríu. SA er komið áfram í 2.
umferð Evrópubikars félagsliða í ís-
hokkíi eftir 2:0-sigur gegn ísra-
elsku meist-
urum í Bat
Yam í undan-
keppni Evr-
ópubikarsins
í Sofiu í gær.
Akureyringar
léku þrjá leiki
og unnu þá alla.
Önnur umferðin fer
fram dagana 19.-21.
október í Riga í Lett-
landi en þar mætir SA
meistaraliðum Úkraínu,
Lettlands og Spánar. »2
Akureyringar unnu alla
leikina í Búlgaríu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fulltrúar Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, SÍK, eru nýkomnir
frá Eþíópíu, þar sem þeir lögðu
grunninn að byggingu heimavistar í
Konsó fyrir 32 ungar konur, sem
hyggja á framhaldsnám.
María Finnsdóttir, sem studdi vel
starf Kristniboðssambandsins í Eþí-
ópíu, lést í fyrra. Hún arfleiddi SÍK
að töluverðum fjármunum, sem
skyldi varið í að efla menntun stúlkna
og kvenna í Eþíópíu, þar sem starf
SÍK hófst 1956. Arfurinn verður not-
aður til að reisa fyrrnefnda heimavist
sem áformað er að taka í notkun að
ári. Áætlaður kostnaður er um 12 til
15 milljónir króna.
Bræðurnir Karl Jónas og Guð-
laugur Gíslasynir, Brynjar Hall-
dórsson og Rúnar Sigurður Birgisson
fóru til Eþíópíu til að hnýta lausa
enda í tengslum við bygginguna.
Bræðurnir þekkja vel til á svæðinu og
bjuggu þar í níu ár í æsku, en for-
eldrar þeirra, Katrín Guðlaugsdóttir
og Gísli Arnkelsson, voru þar kristni-
boðar í 11 ár. Systkinin eru sex og
fimm þeirra hafa starfað sem trúboð-
ar í Eþíópíu.
Fæddist í Eþíópíu
Karl fæddist í Eþíópíu og hefur bú-
ið í landinu í samtals yfir 20 ár. Hann
segir að SÍK reyni að fylgja öllum
verkefnum eftir frá upphafi til enda
og þeir hafi farið til þess að fara yfir
teikningar og annað og ýta verkefn-
inu úr vör. Greiðslur verða inntar af
hendi eftir því sem verkinu miðar og
fulltrúar SÍK taka verkið út í vor eða
næsta sumar. Karl segir að þeir hafi
gefið verktökum myndavélar svo þeir
geti reglulega sent myndir af fram-
gangi mála. „Þetta er samstarfsverk-
efni og við fylgjumst vel með öllu,“
segir hann, en kvenfélag kirkjunnar í
Konsó kemur til með að sjá um rekst-
ur heimavistarinnar. „Við leggjum
mikla áherslu á að starfsmenn heima-
vistarinnar verði konur til að tryggja
öryggi stúlknanna varðandi misbeit-
ingu og valdbeitingu, sem viðgengst
víða í Afríku.“
Mikil fátækt er í Eþíópíu og
ástandið þar hefur oft verið slæmt
vegna hungursneyðar. Karl rifjar
upp að í barnæsku hafi hann átt vin
sem hafi verið kallaður „Á morgun“.
„Ástæðan var sú að á hverju kvöldi
sagði hann „ég vona að við sjáumst á
morgun“, en hann var vannærður, lá
fyrir dauðanum og vissi af því.“
Karl leggur áherslu á að menntun
sé helsti bjargvættur fólksins í Eþí-
ópíu. Heimavistin sé hugsuð fyrir
stúlkur eða ungar konur í 9.-12. bekk
í Konsó og Suður-Ómó, „stúlkur sem
langar, vilja og hafa getuna til náms,“
segir Karl. Hann segir að þær sem
útskrifist úr 12. bekk geti síðan farið í
háskóla en að loknum 10. bekk opnist
dyr í sérstaka fagskóla eins og til
dæmis kennaraskóla og sjúkraliða-
skóla. Konurnar eru 17 til 25 ára.
„Það er ótrúlegt að hugsa til þess
hvað nokkrar milljónir króna geta
breytt framtíð 32 stúlkna um ókomin
ár,“ segir Karl.
Ljósmynd/Brynjar Halldórsson
Konsó Karl Jónas Gíslason spjallar við drengi og sýnir þeim fingraleik þar sem hann virðist taka fingur af.
Reisa heimavist fyrir
ungar konur í Eþíópíu
Kristniboðssambandið nýtir arf til góðra verka