Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  240. tölublað  106. árgangur  TÓNLIST, TÆKNI OG VÍSINDI MÆTAST VERÐUG SAGA FEÐGININ FÓRU SAMAN Í LEIKFÉLAG ÉG HEITI GUÐRÚN 33 SIGGI OG ABBA 12HÁTÍÐIN ERKITÍÐ 31 Víðtæk áhrif lægra gengis  Hótelin og flugfélögin sögð hagnast á lægra gengi  Styrkir ferðaþjónustuna  Hagfræðingur telur merki um að verið sé að veðja á lægra gengi krónunnar Íslandshótela, segir það hafa mark- verð áhrif á afkomu íslenskra hótela að 134 krónur fáist fyrir evruna. Hót- elin hafi liðið fyrir of hátt gengi. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir aðspurður það geta komið sér vel fyrir íslensku flugfélögin að krónan veikist. „Félög- in hafa tekjur í erlendri mynt. Launa- kostnaður er hins vegar að mestu í krónum. Veiking krónu ætti því að styðja félögin.“ Stefán Broddi Guðjónsson, for- stöðumaður greiningardeildar Arion banka, segir hætt við að verðbólga aukist og kaupmáttur minnki ef krón- an styrkist ekki aftur. Gústaf Steingrímsson, hagfræðing- ur hjá Landsbankanum, telur merki um að eigendur gjaldeyris séu að veðja á frekari lækkun krónunnar og bíði með að selja gjaldeyri. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gengi krónu hefur gefið eftir undan- farið og kostaði evran 134 krónur í gær. Gengislækkunin er sögð styrkja stöðu ferðaþjónustunnar. Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, segir lægra gengi vonandi verða til þess að fjölga ferða- mönnum frá Þýskalandi á ný. Ólafur Torfason, stjórnarformaður Sveifla með haustinu » Evran kostaði rúmlega 123 krónur í byrjun ágúst en kost- aði í gær 134 krónur. » Á sama tímabili fór gengi bandaríkjadals úr 105,6 krónum í 116,15 krónur. MVeiking krónu góð fyrir hótel »4 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði 2:2 jafntefli við Frakka í vináttulandsleik á Rou- dourou-leikvanginum í Guingamp í gærkvöld. Frakkar urðu heimsmeistarar í Rússlandi í sum- ar og langflestir þeirra bestu leikmanna komu við sögu í leiknum. Birkir Bjarnason og Kári Árnason komu Íslandi 2:0 yfir en Frakkar jöfn- uðu á lokakaflanum. Á myndinni sjást Íslend- ingar fagna marki Birkis. » Íþróttir AFP Heimsmeistararnir sluppu með skrekkinn Jafntefli í vináttuleiknum í Frakklandi Þrír forystumenn verkalýðsfélaga sækjast eftir emb- ættum varafor- seta Alþýðu- sambands Íslands. Ragnar Þór Ing- ólfsson, formaður VR, býður sig fram í embætti 1. varaforseta og Vil- hjálmur Birg- isson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í 2. varaforseta. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðn- aðarsambands Ís- lands, stefnir á annað hvort emb- ættið. Fleiri gætu átt eftir að bætast við. Skipt verður um forystu á þingi Alþýðusambands- ins sem hefst 24. október. Drífa Snædal og Sverrir Már Albertsson bjóða sig fram í embætti forseta í stað Gylfa Arn- björnssonar. Ragnar Þór segir eðlilegt að styrk- ur VR sem stærsta stéttarfélags landsins endurspeglist í forystu ASÍ og rödd verslunarmanna verði skýr á þeim vettvangi. Vilhjálmur vísar til þess að hann og Ragnar hafi unnið vel saman og með formanni Eflingar og forystumönnum fleiri félaga. „Nú eru að renna upp nýir tímar í ís- lenskri verkalýðshreyfingu,“ segir hann. »8 helgi@mbl.is Vilja emb- ætti vara- forseta  Þrír forystumenn bjóða sig fram Ragnar Þór Ingólfsson Vilhjálmur Birgisson Kristján Þórður Snæbjarnarson Einstakur gripur frá því fyrir kristni fannst fyrir til- viljun í Þjórsárdal í síðustu viku. Þetta er þórshamar úr sandsteini sem einhver hefur að líkindum borið um hálsinn fyrir meira en þúsund árum. Þórshamrar úr steini hafa ekki fundist hér á landi áður. Ragnheiður Gló Gylfadóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands, segir að fornleifafræðingar sem vinna við fornleifaskráningu í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi hafi fengið ábendingu um áður óþekkt bæj- arstæði í Þjórsárdal. Þegar farið var á staðinn á föstu- daginn fundust þar nokkrir forngripir í lausum jarðvegi, heinarbrýni, alur og sylgja auk þórshamars- ins. Ragnheiður segir fornleifafræðingana hafa glaðst mjög yfir þessum óvænta fundi. Áhugi sé á því að kanna bæjarstæðið forna frekar. gudmundur@mbl.is Einstakur 1.000 ára fundur Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands Forngripur Þórshamarinn forni sem fannst í Þjórsárdal.  Þórshamar úr sandsteini fannst í Þjórsárdal á föstudag  Kanna á bæjarstæðið nánar  Fleiri forngripir fundust  „Það var lögð áhersla á að stytta afgreiðslutímann þetta ár. Það hafði verið mikið í umræðunni að afgreiðslutími væri langur hjá okk- ur og þetta virðist meðal annars vera afleiðing þess,“ segir Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til nýgengis öryrkja á Íslandi 2016. Það ár fór nýgengi örorku í fyrsta skipti yfir náttúrulega fjölg- un á vinnumarkaði. Sigríður Lillý segir fjöldann hafa fallið mjög síð- an þá og að ekki sé um nýtt norm að ræða. „Árið 2016 rísa þessar töl- ur hæst í 1.757, en ári síðar eru þær strax komnar niður í 1.524,“ segir hún og bendir á að í ár verði heildarfjöldinn að líkindum um 1.250. »15 Nýgengi örorku minna nú en í fyrra  Formaður og framkvæmdastjóri Eflingar voru harðlega gagnrýnd á fundi með starfsfólki félagsins fyrir að hafa í engu svarað gífuryrðum og hörðum árásum Gunnars Smára Egilssonar á starfsmann félagsins til áratuga, fjármálastjórann. Kem- ur þetta fram í samtali við starfs- mann félagsins. „Hver á fætur öðr- um lýsti óánægju sinni með þegjandahátt tvímenninganna og frómt frá sagt var fátt um svör hjá Sólveigu Önnu [Jónsdóttur] og Við- ari [Þorsteinssyni],“ segir starfs- maðurinn. Þessara umræðna var í engu get- ið í yfirlýsingu „vegna umfjöllunar í fjölmiðlum“ sem Sólveig og Viðar birtu á vef Eflingar að fundi lokn- um. Þar var þó sagt að þau bæru traust til starfsfólksins. »14 Forysta Eflingar gagnrýnd harðlega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.