Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 25
á trillunni sinni og kom síðan í mat þegar búið var að matbúa það. Ég verð reyndar að við- urkenna að við systkinin vorum mishrifin af þessari búbót, rauð- magi og grásleppa átti ekki upp á pallborðið hjá okkur en for- eldrarnir kunnu að meta það. Harðfiskur, hákarl og jafnvel selkjöt var einnig meðal þess hann færði okkur, allt sem hann hafði veitt eða unnið sjálfur. Bangsi var líka mjög hand- laginn og var alltaf boðinn og búinn að aðstoða við að laga það sem úrskeiðis fór á heimilinu, hvort sem það var tréverk, múrverk eða annað. Samverustundirnar voru margar og okkur systkinunum eru t.d. minnisstæð kvöldin þegar Bangsi horfði á fréttir með foreldrum okkar og sam- tölin að þeim loknum voru óborganleg þar sem engum bar saman um hvað hefði verið í fréttum því allir höfðu dottað sitt á hvað. Bangsi var þeim mikla kosti búinn að hann fór ekki í mann- greinarálit og börnin áttu sér- stakt skjól hjá honum. Kynslóð- irnar eru a.m.k. orðnar þrjár sem hafa átt því láni að fagna að alast upp með Bangsa. Fræðast um umhverfið og nátt- úruna hjá honum en Bangsi var náttúrubarn eins og þau gerast mest. Bangsi hélt upp á alla af- mælisdaga sína, sama hvaða vikudag þá bar upp á. Afmælin byrjuðu gjarnan eftir skóla þeg- ar yngsta kynslóðin mætti og setti upp leikrit og fékk gos í flösku. Þegar leið á daginn mættu þeir sem eldri voru og eftir því sem leið á kvöldið urðu drykkirnir sterkari. Það verða mikil viðbrigði fyr- ir samfélagið á Hvammstanga þegar Bangsa nýtur ekki lengur við. Fram á síðasta dag mætti hann á öll mannamót og var á sinn rólega hátt hrókur alls fagnaðar þar sem hann sat brosandi á spjalli við mann og annan. Öllum þótti vænt um Bangsa og aldrei átti hann í úti- stöðum við einn né neinn. Slíkt fólk er vandfundið. Það er skrítið til þess að hugsa að eiga ekki eftir að rek- ast á Bangsa á ferðinni á Hvammstanga, á rúntinum í litla bílnum sínum, í Kaup- félagshorninu eða á mannamót- um. Takk fyrir samfylgdina og allt sem við lærðum af þér, guð blessi minningu þína. Guðný, Kristinn og Páll (systkinin í Árnesi).  Fleiri minningargreinar um Björn Þórir Sigurðs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 25 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Tilboð/útboð Þingeyjarsveit Deiliskipulag þéttbýliskjarna í Aðaldal Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 4. október 2018 að auglýsa skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að uppfærðu eldra deiliskipulagi af þéttbýliskjarna í Aðaldal. Um er að ræða fjórar lóðir fyrir parhús og ellefu lóðir fyrir einbýlishús við Víðigerði og þrjár iðnaðar- og athafnalóðir við Iðjugerði. Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá og með föstudeginum 12. október 2018 með athugasemdarfresti til og með föstudeginum 23. nóvember 2018. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar: https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/skipulagsmal/deiliskipulag/tillogur-i-auglysingu. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 23. nóvember 2018. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið: bjarni@thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir. Bjarni Reykjalín skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30- 11.30. BINGÓ kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl.13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, föstudagshópur- inn kl. 10-11.30, heilsuefling kl. 10-11.15, hittumst í setustofunni kl. 10 og farið er í þjálfun / gönguferð / botsía / æfingatæki, handaband, skapandi vinnustofa með leiðbeinendum kl. 13-15.30, bingó kl. 13.30- 14.30, 250 kr. spjaldið og góðir vinningar í boði, okkar rómaða vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411-9450. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7. kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10- 10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Qigong kl. 10.30-11.30, bók- band með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Velkomin. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK. Við minnum á opið hús sem verður á morgun, laugardag kl. 14. Hlökkum til að sjá ykku.r Gullsmári Handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10, ljósmyndaklúbbur kl. 13, bingó kl. 13.30. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og ný- liðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hraunsel Föndur í vinnustofu kl. 9-12. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju kl. 9-10, botsía kl. 10.15-11.20, hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið hjá Mar- gréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30, zumba með Auði kl. 13-13.50, Hæðargarðsbíó kl. 14, eftirmiðdagskaffi 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum, sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9. Bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og tréútskurð- ur á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag, allir velkomnir og vöfflukaffið sívin- sæla kl. 14.30 til 15.30 í dag í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingó kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln- um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Íslendingasögunámskeið kl. 13; Hávarðarsaga Ísfirðings, kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Nýtt 8 vikna zumba gold námskeið fyrir styttra komna / byrjendur hefst mánudag- inn 15. október kl. 9.45. Enskunámskeið, talað mál byrjendur, hefst miðvikudaginn 17. október, skráning hafin. Útboð           Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV- 2018-25 Stofnlögn vegna virkjunar holu RJ-45“ Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu Orkuveitunnar frá föstudeginum 12.10.2018 https://www.or.is/utbod Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur., Bæjar- hálsi 1, 110 Reykjavík, föstudaginn19.10.2018 kl. 10:30 VEV-2018-24 12.10.2018 Veitur ohf., óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið: STOFNLÖGN VEGNA VIRKJUNAR HOLU RV-45 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Peysur Sími 588 8050. - vertu vinur Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Einstök íbúð fyrir 60 ára og eldri Nýstandsett 101 fm, 3 herbergja íbúð á 1. hæð, að Grandavegi 47 til leigu. Húsvörður er í húsinu sem er ætlað 60 ára og eldri. Leigjandi óskast, upplýs í síma 8924454. Húsnæði íboðiBókhald atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.